Fréttamaður

Samúel Karl Ólason

Samúel Karl er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Fjaðra­fok vegna á­sakana um kynlífsþrælkun á Wall Street

Nokkrum mánuðum eftir að Chirayu Rana hætti hjá JPMorgan, höfðaði hann mál gegn fyrirtækinu og fyrrverandi samstarfskonu sinni sem hann sakaði um kynferðislega áreitni og kynferðisbrot og sagði hana hafa gert sig að kynlífsþræl. Ásakanir hans þóttu nokkuð sjokkerandi og hafa fregnir af málinu dreifst um internetið eins og eldur um sinu, með tilheyrandi rangfærslum.

Vill tæpa tvo milljarða frá Samsung vegna myndar

Dua Lipa, poppstjarnan heimsfræga, hefur höfðað mál gegn Samsung, tæknirisanum frá Suður-Kóreu. Hún segir fyrirtækið hafa notað mynd af henni utan á kassa fyrir sjónvörp í leyfisleysi og fer fram á fimmtán milljónir dala (um 1,8 milljarða króna) í skaðabætur.

Alvotech stóðst út­tekt FDA

Reglubundinni úttekt Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) á framleiðsluaðstöðu Alvotech er lokið. Henni lauk á föstudaginn en forsvarsmenn Alvotech segja hana staðfesta að fyrirtækið uppfylli „ströngustu kröfur góðra framleiðsluhátta í lyfjaframleiðslu (cGMP).

Sátu um tóman banka í sex tíma

Umsátri um banka í þýska bænum Sinzig lauk eftir um sex klukkustundir. Þegar lögregluþjónar fóru inn í bankanna fundu þeir eingöngu tvo starfsmenn sem höfðu verið læstir inni í hvelfingu. Ræninginn eða ræningjarnir virðast ekki hafa verið inni í bankanum og eru því taldir ganga lausir.

Sam­föngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig

Samföngum Ghislaine Maxwell, fyrrverandi kærustu og aðstoðarkonu Jeffreys Epstein, var refsað fyrir að kvarta yfir því að hún hefði verið sett í sama lágmarksöryggisfangelsi og þær. Nokkrar konur voru fluttar í verra fangelsi eftir að þær tjáðu sig um veru Maxwell í fangelsinu og voru skammaðar af yfirmanni fangelsisins, þótt reglur fangelsisins leyfðu þeim tæknilega séð að tjá sig við fjölmiðla.

Um­sátur í Þýska­landi: Banka­rán varð að gíslatöku

Umfangsmikil lögregluaðgerð stendur nú yfir í bænum Sinzig í Þýskalandi þar sem bankaræningjar hafa tekið fólk í gíslingu. Þungvopnaðir lögregluþjónar sitja um útibú Volksbank í miðbæ Sinzig. Óljóst er hve margir ræningjarnir eru en þeir reyndu að ræna bankann þegar brynvörðum bíl var ekið þangað í morgun.

Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður

Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna segja að bréf sem Jefrey Epstein á að hafa skrifað áður en hann reyndi að svipta sig lífi í fangelsi hafi aldrei ratað til ráðuneytisins. Bréfið var opinberað fyrr í vikunni í tengslum við annað mál en starfsmenn ráðuneytisins eiga lögum samkvæmt að hafa opinberað öll skjöl þeirra sem tengjast máli auðjöfursins og kynferðisbrotamannsins heitna.

Ekkert vopna­hlé heldur um­fangs­miklar á­rásir í Rúss­landi

Bæði Rússar og Úkraínumenn hafa sakað hvor annan um að brjóta gegn vopnahléi sem Vladimír Pútín, forseti Rússlands, krafðist einhliða um helgina á meðan að Rússar halda upp á sigur sinn á Þýskalandi í seinni heimsstyrjöldinni. Eftir að Rússar gerður umfangsmiklar árásir á Úkraínu í gær hafa Úkraínumenn gert dróna- og eldflaugaárásir víðsvegar um Rússland í dag.

Af­koma um­fram á­ætlanir

Afkoma Sýnar á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var umfram áætlanir og þykir stjórnendum félagsins það til marks um áframhaldandi viðsnúning í rekstri. Herdís Dröfn Fjelsted, forstjóri, segir þetta staðfestingu á að aðgerðir og umbreyting síðasta árs séu að skila árangri.

Þrjár „brúðir ISIS“ á­kærðar fyrir hryðju­verk og þræla­hald

Þrjár konur sem dvalið hafa um árabil í búðum fyrir fjölskyldur erlendra vígamanna Íslamska ríkisins lentu í Ástralíu í dag. Ein verður ákærð fyrir hryðjuverkastarfsemi og hinar tvær fyrir þrælahald. Konurnar eru hluti af stærri hópi kvenna frá Ástralíu sem ferðuðust á sínum tíma til Sýrlands til að ganga til liðs við Íslamska ríkið og börn þeirra.

Sjá meira