Fréttamaður

Samúel Karl Ólason

Samúel Karl er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum

Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna hafa ákveðið að hætta tilraunum með sérstaka drónahersveit, sem hefur verið staðsett í Evrópu, og reynt að læra af reynslu Úkraínumanna. Hermennirnir eiga að snúa sér aftur að grunngildum sínum sem fótgönguliðar en eiga að miðla reynslu sinni til yfirmanna hersins.

Hand­tekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth

Lögreglan í Svíþjóð hefur handtekið norskan mann sem er talinn tengjast hvarfi Anne Elisabeth Hagen. Hún, ein ríkasta kona Noregs, hvarf sporlaust af heimili sínu í Lørenskógi í nágrenni Óslóar árið 2018. Maðurinn var þó ekki handtekinn vegna þessa máls heldur vegna gruns um umfangsmikil fíkniefnabrot.

Sjó­ræningjar tóku tyrk­neskt hergagnaskip

Útlit er fyrir að sómalskir sjóræningjar séu aftur byrjaðir að láta til sín taka á Adenflóa og Rauðahafi, eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara um árabil. Fyrr í vikunni réðust sjóræningjar um borð í tyrkneskt skip sem var meðal annars að flytja vopn og sigldu því til Sómalíu.

Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli

Ráðamenn í Rúmeníu sendu í morgun F-16 orrustuþotu til að granda drónabát sem sást í nokkur hundruð metra fjarlægð frá mikilvægum borpalli á Svartahafi. Rúmenar kenna Rússum um atvikið, sem Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir lið í blönduðum hernaði.

Fyrr­verandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífs­tíðar­fangelsi

Stofnandi kínverska fjárfestinga- og fasteignafélagsins Evergrande Group hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hui Ka Yan var um tíma auðugasti maður Asíu en fall Evergrande, sem var einn af hornsteinum kínverska hagkerfisins, hafði umfangsmikil áhrif á Kína og varð að eins konar táknmynd fyrir vandræði á fasteignamarkaði Kína.

Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“

Einn af nánustu ráðgjöfum Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, er í sviðsljósinu eftir að öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins nefndi hana á nafn í ræðu. Lengi hafa verið uppi spurningar um samband hennar og forsetans en hún fylgir honum hvert sem hann fer, hún sendir öðrum þjóðarleiðtogum skilaboð fyrir hans hönd, skrifar færslur á samfélagsmiðlum fyrir hann og stýrir að einhverju leyti hverjir hafa aðgang að forsetanum.

Einka­réttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur at­hygli

Nýjasta stikla Grand Theft Auto 6 verður ekki fyrst sýnd á YouTube eða samfélagsmiðlum Take-Two og Rockstar, fyrirtækjanna á bakvið leikinn. Þess í stað verður hún sýnd fyrst á Netflix en forsvarsmenn streymisveitunnar hafa líklega greitt fúlgur fjár fyrir sex klukkustunda einkarétt á stiklunni. Myndböndum úr leiknum var lekið á netið í gær.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna við­vörunar um „samfélagskrísu“ í Rúss­landi

Rússum hefur ekki vegnað vel á víglínunni í Úkraínu í sumar og hafa lítið sótt fram en þó eitthvað og á nokkrum stöðum. Framsókn þeirra hefur að mestu verið bundin við víglínuna norður af Pokrovsk og í Dónetsk-héraði. Færa má þó rök fyrir því að þungamiðja stríðsins sé ekki lengur víglínan og að staðan þar skipti minna máli en langdrægar árásir Rússa og Úkraínumanna.

Kærastinn var á staðnum

Kærasti Hayden Panettiere og bróðir hans voru í íbúðinni þegar hún lét lífið um helgina. Þeir tóku á móti fyrstu lögregluþjónunum sem mættu á staðinn, en um er að ræða íbúð í eigu fjölskyldu þeirra í Greenville í Suður-Karólínu. Bræðurnir fylgdust með endurlífgunartilraunum sjúkraflutningamanna.

Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur

Donald Trump hefur beðið aðstoðarmenn sína um að koma á fundi milli hans og Kim Jong Un. Forsetinn vill hitta einræðisherrann strax í haust, gangi það eftir, og segist ætla að sannfæra Kim um að leggja niður kjarnorkuvopnaáætlun Norður-Kóreu.

Sjá meira