Viðar Örn á leið í aðgerð og verður frá næstu vikurnar Íslenski landsliðsframherjinn Viðar Örn Kjartansson verður frá næstu fimm til sex vikurnar þar sem hann er með brákað bein í fæti. Fer hann í aðgerð á morgun, fimmtudag. 2.6.2021 07:01
Dagskráin í dag: Dregið í Mjólkurbikar kvenna, úrslitaviðureign í Olís- og Domino´s-deild kvenna Nú fer að styttast í annan endann á tímabilunum hér heima í hand- og körfubolta. Það eru því ekkert nema stórleikir á dagskrá Stöðvar 2 Sport í dag. 2.6.2021 06:00
Viktor Bjarki í tveggja leikja bann Viktor Bjarki Arnarsson, aðstoðarþjálfari HK í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann. Var bannið staðfest á fundi aga- og úrskurðarnefndar Knattspyrnusambands Íslands í dag. 1.6.2021 23:30
Selfoss og Valur örugglega áfram á meðan FH sló Þór/KA úr leik eftir vítaspyrnukeppni Öllum fjórum leikjum kvöldsins í Mjólkurbikarkvenna er nú lokið. Valur vann 7-0 sigur á Völsungi á Húsavík. FH lagði Þór/KA í vítaspyrnukeppni eftir að leiknum lauk með 1-1 jafntefli og Selfoss vann 3-0 sigur á KR. 1.6.2021 21:30
Haukur Helgi í Njarðvík Landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Briem Pálsson mun leika með Njarðvík á næstu leiktíð í efstu deild karla í körfubolta. 1.6.2021 20:45
Real staðfestir komu Ancelotti Real Madrid hefur staðfest að Carlo Ancelotti verði næsti þjálfari liðsins. Tekur hann við af Zinedine Zidane sem sagði starfi sínu lausu að lokinni nýafstaðinni leiktíð. 1.6.2021 20:00
Úrslitakeppnis Aggi mætti með byssuna hlaðna Agnar Smári Jónsson mætti heldur betur tilbúinn í leik Vals og KA í 8-liða úrslitum Olís-deildar karla í handbolta sem nú fer fram á Akureyri. 1.6.2021 19:01
Andrea Rán gengur í raðir Houston Dash Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, miðjumaður Íslandsmeistara Breiðabliks, hefur samið við Houston Dash sem leikur í bandarísku atvinnumannadeildinni í knattspyrnu. Gengur hún í raðir liðsins á næstu dögum. 1.6.2021 17:45
Alexandra spilaði í grátlegu tapi í bikarúrslitum Alexandra Jóhannsdóttir lék í grátlegu 0-1 tapi Eintracht Frankfurt gegn Wolfsburg í úrslitum þýska bikarsins. Leikurinn fór alla leið í framlengingu og sigurmarkið kom ekki fyrr en á 119. mínútu leiksins. 30.5.2021 16:45
Alexander vann Íslendingaslaginn og lærisveinar Guðmundar unnu góðan sigur Alls voru fjögur Íslendingalið að keppa í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Aðeins Melsungen og Flenburg lönduðu sigri. 30.5.2021 16:00