Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Tómas Arnar Þorláksson skrifar 2. október 2026 15:41 Fyrra atvikið átti sér stað í Laugardal. vísir/einar Tveir unglingar voru bundnir þannig að þeir voru ósjálfbjarga og skildir eftir annars vegar fyrir utan heimili og hins vegar í kjallara fjölbýlishúss. Atvikin áttu sér stað á sitthvorum staðnum í Reykjavík. Málin eru bæði á borði lögreglunnar. Í byrjun september var drengur á unglingsaldri bundinn af öðrum ungmennum þannig að hann var ósjálfbjarga og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss í Laugardalnum. Skilinn eftir í kjallara Þetta staðfestir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Mannlíf greindi fyrst frá málinu en þar segir að límband hafi verið sett yfir munn drengsins áður en hann var skilinn eftir. Samkvæmt Unnari var lögregla kölluð á vettvang og kom hún drengnum til aðstoðar. Málið sé nú til rannsóknar en ekki liggi fyrir hvernig atvikið komi til eða hvort einhverjir hafi verið yfirheyrðir vegna málsins. Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Fullum trúnaði er heitið. Hringdu dyrabjöllu og flúðu Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu átti annað sambærilegt atvik sér stað í byrjun vikunnar en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Þar var annar unglingur bundinn á bæði höndum og fótum af hópi unglinga. Hópurinn fór með umræddan dreng að heimili sem drengurinn hafði engin tengsl við. Þegar þangað var komið var drengurinn lagður niður fyrir utan útidyrnar. Gerendur hringdu þá dyrabjöllu og flúðu áður en húsráðandi kom til dyra. Íbúinn kom þá að drengnum bundnum og hringdi á lögregluna. Lögreglustöð 1 barst útkallið en hún sér um miðborgina, Vesturbæinn, Hlíðarnar, Laugardal, Háaleiti og Seltjarnarnes. Drengurinn hafi ekki verið með neina áverka og virðist sem að um einhvers konar at hafi verið að ræða. Í umfjöllun Mannlífs um málið segir að íbúar í Laugardal hafi orðið varir við fleiri sambærileg tilfelli á svæðinu. Stjórnendur hjá lögreglunni sem fréttastofa ræddi við könnuðust ekki við fleiri slík mál á sínu borði. Ofbeldi gegn börnum Reykjavík Grunnskólar Lögreglumál Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Í byrjun september var drengur á unglingsaldri bundinn af öðrum ungmennum þannig að hann var ósjálfbjarga og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss í Laugardalnum. Skilinn eftir í kjallara Þetta staðfestir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Mannlíf greindi fyrst frá málinu en þar segir að límband hafi verið sett yfir munn drengsins áður en hann var skilinn eftir. Samkvæmt Unnari var lögregla kölluð á vettvang og kom hún drengnum til aðstoðar. Málið sé nú til rannsóknar en ekki liggi fyrir hvernig atvikið komi til eða hvort einhverjir hafi verið yfirheyrðir vegna málsins. Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Fullum trúnaði er heitið. Hringdu dyrabjöllu og flúðu Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu átti annað sambærilegt atvik sér stað í byrjun vikunnar en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Þar var annar unglingur bundinn á bæði höndum og fótum af hópi unglinga. Hópurinn fór með umræddan dreng að heimili sem drengurinn hafði engin tengsl við. Þegar þangað var komið var drengurinn lagður niður fyrir utan útidyrnar. Gerendur hringdu þá dyrabjöllu og flúðu áður en húsráðandi kom til dyra. Íbúinn kom þá að drengnum bundnum og hringdi á lögregluna. Lögreglustöð 1 barst útkallið en hún sér um miðborgina, Vesturbæinn, Hlíðarnar, Laugardal, Háaleiti og Seltjarnarnes. Drengurinn hafi ekki verið með neina áverka og virðist sem að um einhvers konar at hafi verið að ræða. Í umfjöllun Mannlífs um málið segir að íbúar í Laugardal hafi orðið varir við fleiri sambærileg tilfelli á svæðinu. Stjórnendur hjá lögreglunni sem fréttastofa ræddi við könnuðust ekki við fleiri slík mál á sínu borði.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Fullum trúnaði er heitið.
Ofbeldi gegn börnum Reykjavík Grunnskólar Lögreglumál Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira