Sneri til baka aðeins 146 dögum eftir að hann varð fyrir eldingu Hinn 12 ára gamli Ronnie spilaði um liðna helgi sinn fyrsta fótboltaleik í 146 daga eða síðan hann varð fyrir eldingu og hjarta hans stöðvaðist í 30 mínútur. 27.2.2024 07:00
Dagskráin í dag: Enska bikarkeppnin, Subway-deild kvenna og meira til Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Við bjóðum upp á ensku bikarkeppnina í knattspyrnu, Subway-deild kvenna í körfubolta, skoska fótboltann, padel, Counter-Strike og UEFA Youth League. 27.2.2024 06:00
Segir Guardiola besta þjálfara heims Joe Mazzulla, þjálfari Boston Celtics, er mikill knattspyrnuaðdáandi en hann horfir mikið upp til Pep Guardiola og nýtir sér hugmyndafræði Spánverjans þó svo að lið hans spili í NBA-deildinni í körfubolta. 26.2.2024 23:30
Blikar horfa út fyrir landsteinana Breiðablik er í þann mund að semja við tvo leikmenn frá Skandinavíu sem munu leika með liðinu í Bestu deild karla í knattspyrnu á komandi leiktíð. Annar er Dani sem spilaði síðast í Færeyjum og hinn er norskur framherji sem hefur nær eingöngu spilað í heimalandinu. 26.2.2024 23:01
Coventry fyrst liða í átta liða úrslit þeirrar elstu og virtustu Í kvöld fór fyrsti leikur 16-liða úrslita ensku bikarkeppninnar fram. Þar vann Coventry City spútniklið Maidenhead United örugglega 5-0. Enska bikarkeppnin í knattspyrnu, FA Cup, er elsta bikarkeppni í heimi. 26.2.2024 22:21
Þrenna Bowen sá um Brentford Jarrod Bowen var allt í öllu hjá West Ham United þegar Hamrarnir unnu 4-2 sigur á Brentford í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. 26.2.2024 22:00
Nýliðar Víkings fá liðsstyrk úr Vesturbænum Bikarmeistarar Víkings verða nýliðar í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í ár. Stefnt er að því að gera liðið eins samkeppnishæft og möguleiki er. Því hefur það ákveðið að sækja liðsstyrk vestur í bæ. 26.2.2024 21:15
Keflavík rúllaði yfir FH FH tók á móti Keflavík í Lengjubikar karla í knattspyrnu í kvöld. Fór það svo að gestirnir, sem leikur í Lengjudeildinni á komandi leiktíð, rúlluðu yfir heimamenn. Lokatölur í Skessunni í Hafnafirði 1-4. 26.2.2024 20:31
Orra-laust FCK vann mikilvægan sigur Orri Steinn Óskarsson var ekki í leikmannahóp FC Kaupmannahafnar þegar liðið FC Nordsjælland 2-0 í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson var hins vegar í hópnum en hann sat á bekknum að þessu sinni. 26.2.2024 20:00
Dybala skaut Rómverjum í Meistaradeildarbaráttu Roma lagði Torínó 3-2 í eina leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Þetta var fimmti sigur liðsins í síðustu sex leikjum. 26.2.2024 19:35