Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Áróra L Davíðsdóttir skrifar 14. september 2026 00:13 Vinstri og hægri blokkirnar berjast um sætin við ríkisstjórnarborðið. Til vinstri er Magdalena Andersson leiðtogi Sósíaldemókrata og til hægri Ulf Kristersson, formaður Moderaterna og forsætisráðherra. Samsett/EPA Enn er afar mjótt á munum milli hægri og vinstri blokkanna í sænsku þingkosningunum nú þegar búið er að telja 91 prósent atkvæða. Fylking stjórnarandstöðunnar leiðir með örlitlum meirihluta en aðeins eitt þingsæti skilur að fylkingarnar tvær sem berjast um stjórnartaumana.
Sósíaldemókratar undir forystu Magdalenu Andresson er stærsti flokkurinn og hlaut 28 prósent atkvæða nú þegar 91 prósent atkvæða hafa verið talin. Þar á eftir kemur hægriflokkurinn Moderaterna með 19,9 prósent og næst á eftir fjarhægriflokkurinn Svíþjóðardemókratar með 17,6 prósent, sem missa fylgi frá því í síðustu þingkosningum. Samkvæmt nýjustu spá SVT mun rauðgræna vinstri blokkinn fá 175 þingsæti og borgaralega bláa blokkin 174. En í ljósi þess hve mjótt er á munum er líklegt að úrslitin muni ekk ráðast fyrr en seint í nótt eða jafnvel á næstu dögum. Möguleiki er á því að úrslitin ráðist ekki fyrr en á miðvikudag þegar svokölluð miðvikudagsatkvæði verða talin. Það eru atkvæði Svía sem búa erlendis og önnur utankjörfundaratkvæði sem ekki bárust fyrir lokun kjörfundar. Hátt í 370 þúsund eru á kjörskrá sem búa erlendis. Kjósendur hafi sent skýr skilaboð en úrslitin óljós Ulf Kristersson forsætisráðherra sagði í ræðu sinni á kosningavöku Moderaterna að þó að úrslitin séu ekki ljós hafi kjósendur sent skýr skilaboð. „Flokkunum þremur til vinstri hefur enn og aftur mistekist að ná meirihluta á sænska þinginu,“ sagði hann. Hann sér fyrir sér ansi flókin samtöl í framhaldinu,“ sagði hann í samtali við SVT eftir ræðuhöldin en vildi ekki gefa upp við hvaða flokksleiðtoga hann hyggðist hafa samband við. Ebba Busch, leiðtogi Kristilegra demókrata, sagði í samtali við SVT að leiðtogar stjórnarflokkanna ætluðu að funda annað kvöld. Í útgangsspám fyrr í kvöld var ekki jafnt mjótt á munum en þá leit út fyrir að miklar líkur væru á stjórnarskiptum í Svíþjóð. Í þeirri spá var stjórnarandstöðufylkingin með Magdalenu Andersson í forystuhlutverki með 4,5 prósentustiga forskot. Sjá einnig: Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám Haldist forystan fái Svíar nýja ríkisstjórn Á kosningavöku Sósíaldemókrata sagði Magdalena Andersson að staðan væri afar jöfn en Sósíaldemókratar væru reiðubúnir að axla ábyrgð á niðurstöðunni. „Núna erum við með forystu. Ef hún helst fær Svíþjóð nýja ríkisstjórn. En við verðum að bíða eftir endanlegum úrslitum,“ hefur SVT eftir henni. Síðustu fjögur ár hefur minnihlutastjórn hægriflokka verið við völd í Svíþjóð með Ulf Kristersson, formann Moderaterna, í forystu. Auk Moderaterna eiga Frjálslyndi flokkurinn og Kristilegir demókratar sæti við ríkisstjórnarborðið. Fjarhægriflokkurinn Svíþjóðardemókratar ver síðan stjórnina falli og er það hluti af svokölluðu Tidö-samkomulagi sem undirritað var eftir síðustu kosningar en þeir hafa aldrei verið hluti af ríkisstjórn. Myndun nýrrar ríkisstjórnar gæti reynst flókið Saga og tenging Svíþjóðardemókrata við hreyfingar nýnasisma gera það að verkum að forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa útilokað algjörlega samstarf með Svíþjóðardemókrötum. Þó að fylking Magdalenu Andersson fengi meirihluta þingsæta gætu viðræður um stjórnarmyndunarsamstarf reynst erfiðar. Miðflokkurinn hefur til að mynda útilokað samstarf með Vinstriflokknum en báðir flokkar tilheyra rauðgrænu vinstriblokkinni. Fréttin hefur verið uppfærð.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Sjá meira