Kvöldfréttir RÚV færðar til klukkan níu í sumar
Kvöldfréttir Ríkisútvarpsins verða færðar frá klukkan sjö til klukkan níu. Er það gert til að lágmarka raskanir vegna Evrópumeistaramótsins í knattspyrnu sem hefst á föstudagskvöld sem og Ólympíuleikana í París.