Selfyssingar syrgja Stefán Árni Pálsson skrifar 24. september 2026 07:03 Árni lést á þriðjudaginn eftir erfiða og snarpa baráttu við krabbamein. Árni Þór Grétarsson er látinn. Árni var mörgum kunnugur á Selfossi enda einn helsti sjálfboðaliði félagsins. Hann lést á þriðjudaginn á Sjúkrahúsi Suðurlands eftir snarpa baráttu við illvígt krabbamein.
Félagið greinir frá þessu og minnast margir Selfyssingar Árna. „Árni Þór hefur mörg undanfarin ár verið öflugasti sjálfboðaliði og stuðningsmaður Handknattleiksdeildar Selfoss. Hann hefur um árabil verið sjálfboðaliði á öllum heimaleikjum allra meistaraflokka félagsins ásamt fjölda leikja og móta yngri flokka. Árni Þór var óþreytandi sjálfboðaliði þar sem hann sá meðal annars um samfélagsmiðla, myndatökur og var lykilmaður í SelfossTV auk þess að vera um árabil liðsstjóri, fararstjóri, bílstjóri og félagi yngri og eldri iðkenda deildarinnar í keppnisferðum bæði innanlands og utan. Með Árna Þór er genginn einstakur öðlingur sem Handknattleiksdeild Umf. Selfoss, allir iðkendur og sjálfboðaliðar deildarinnar þakka fyrir góða samveru og einstaka vináttu um leið og fjölskyldu hans eru færðar innilegar samúðarkveðjur,“ segir í færslu handknattleiksdeildarinnar en segja má að hann hafi lagt mikla áherslu á að styðja við bakið á handboltanum á Selfossi. Árni var tilnefndur sem íþróttaeldhugi ársins hjá ÍSÍ um síðustu áramót. Þá var hann sæmdur gullmerki HSÍ og UMF Selfoss fyrir fyrsta leik á Ragnarsmótinu í ár, en Ragnarsmótið fer fram fyrir hvert tímabil í handboltanum og er eins konar æfingamót. Árni kom einnig við hjörtu knattspyrnuáhugamanna á Selfossi. „Árni var dyggur stuðningsmaður Selfoss og lagði sitt af mörkum fyrir félagið. Þótt handboltinn hafi verið fyrirferðamestur hjá honum fylgdist hann vel með knattspyrnunni, gladdist þegar liðinu þegar vel gekk og mætti á völlinn þegar heilsan leyfði. Árni kom með ýmsum hætti að knattspyrnunni á Selfossi. Um tíma textalýsti hann leikjum Selfoss fyrir Fótbolta. net og aðstoðaði félagið við tæknimál tengdum útsendingum frá leikjum á JÁVERK-vellinum. Heima hjá Árna hafði hann komið upp hlaðvarpsstúdíói þar sem um tíma voru teknir upp þættir um boltann. Þangað komu leikmenn, sérfræðingar og aðrir gestir til að ræða málin. Árni lagði til herbergið og græjurnar og skapaði þannig vettvang fyrir meiri umræðu um boltann og íþróttalíf á Selfossi. Árni var einn af þeim sem lét sér félagið sitt varða og var tilbúinn að leggja sitt af mörkum fyrir það. Slíkt framlag er ómetanlegt fyrir íþróttafélag og samfélagið í kringum það. Árni var alltaf tilbúinn að gefa ráð og svara símanum þegar þurfti að leita í hans viskubrunn,“ segir í færslu knattspyrnudeildar Selfoss. View this post on Instagram
UMF Selfoss Andlát Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Sjá meira