Starfsfólk Pharmarctica slegið yfir slysinu og fær áfallahjálp Samfélagið á Grenivík er slegið vegna eldsprengingar sem varð í verksmiðju í bænum í gær að sögn sveitarstjóra Grýtubakkahrepps. Kona og karl, starfsfólk Pharmarctica, slösuðust alvarlega þegar þau voru að vinna með hreinsað bensín. Aðstandendur og starfsfólk verksmiðjunnar fengu áfallahjálp frá Rauða krossinum í gær. 24.3.2022 13:08
Vildi feta aðrar og myrkari slóðir: „Þær voru svolítið skrítnar á svipinn“ Í ár hlýtur Ragnheiður Gestsdóttir Blóðdropann, hin íslensku glæpasagnaverðlaun fyrir bókina Farangur. Hún er önnur glæpasaga Ragnheiðar sem hefur skrifað mikið fyrir börn og unglinga. Sagan segir frá Ylfu sem leggur á flótta frá ofbeldisfullum sambýlismanni. 23.3.2022 23:55
Fá að kenna á því um leið og „ástríðufull“ fjölmiðlaumfjöllun fer af stað Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar harmar fréttir af endurkomu hvalveiða í sumar. Ferðaþjónustufyrirtæki finni fyrir neikvæðum áhrifum um leið og fréttir af hvalveiðum taka að spyrjast út. 23.3.2022 13:12
Mikið inngrip að svipta trúfélag sóknargjöldum Bryndís Haraldsdóttir, formaður allsherjar-og menntamálanefndar Alþingis segir útskúfunarmál í söfnuði Votta Jehóva, sem gerð voru skil í Kompás í gær, vekja þingheim til umhugsunar. 15.3.2022 13:30
Sauð upp úr á Alþingi: „Ég hef sjaldan séð þingmann jafn æstan“ Það sauð upp úr á Alþingi nú síðdegis undir liðnum fundarstjórn forseta. Forsaga málsins er sú að Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, spurði Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptamálaráðherra, hvort hún hygðist hækka veiðigjöld í ljósi þess að þingmeirihluti væri fyrir málinu og það óháð ríkisstjórnarvilja. 14.3.2022 20:57
Mál yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis fellt niður Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur fellt niður mál á hendur starfsmönnum yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis í kjölfar Alþingiskosninganna í september. Að minnsta kosti tveir starfsmenn yfirkjörstjórnar hafa fengið send bréf þess efnis. Þeirra á meðal Ingi Tryggvason, sem gegndi formannsstöðu, og Katrín Pálsdóttir sem sæti átti í yfirkjörstjórn. 14.3.2022 12:34
Rúta með 40 farþegum lenti utan vegar í Þrengslunum Björgunarsveitir voru kallaðar út skömmu fyrir hádegi vegna rútu sem hafnaði utan vegar í Þrengslunum en um borð voru 40 farþegar sem þurfti að aðstoða. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi slysavarnafélagsins Landsbjargar segir auk þess að björgunarsveitarfólk hafi þurft að aðstoða ökumenn fleiri ökutækja á svæðinu. 14.3.2022 12:07
Ófriður í álfunni gæti sett ferðasumarið í uppnám Stríðshörmungar eru það síðasta sem Evrópa þurfti eftir tvö ár af heimsfaraldri. Þetta á ekki síst við um ferðaþjónustuna sem fékk hvert höggið á fætur öðru síðastliðin ár þegar ýmist var hert eða slakað á sóttvarnaaðgerðum sem orkaði á ferðaþjónustuna eins og fjárhagslegur harmónikkuleikur þótt höggin væru milduð með fjárhagslegum úrræðum stjórnvalda. 11.3.2022 12:20
Samþykktu að ráðast í úttekt á vöggustofum Borgarráð samþykkti í dag að setja á stofn þriggja manna sérfræðinganefnd til að ráðast í heildstæða athugun á starfsemi Vöggustofunnar að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins sem reknar voru í Reykjavík á síðustu öld. 10.3.2022 16:48
Sakar ráðherra og Útlendingastofnun um valdarán Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, sakaði Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og Útlendingastofnun um valdarán á Alþingi í dag undir liðnum fundarstjórn forseta. 10.3.2022 14:21