Höfnuðu því að afnema frjálsa för innan ESB Afgerandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu um að afnema frjáls för fólks innan Evrópusambandsins í Svisslandi hafnaði tillögunni. 27.9.2020 12:10
Tuttugu bætast í hóp smitaðra á milli daga Kórónuveirusmituðum fjölgaði um tuttugu manns í gær. Af þeim greindust fimm manns í sóttkví eða við handahófskennda skimun en fimmtán hjá Landspítalanum og Íslenskri erfðagreiningu. Fjórir eru nú á sjúkrahúsi, þar af einn á gjörgæslu. 27.9.2020 11:06
Einn í öndunarvél með Covid-19 Fjórir liggja nú á Landspítalanum með Covid-19, þar af einn á gjörgæslu. Tveir voru lagðir inn á spítalann í gær samkvæmt upplýsingum Landspítalans. 27.9.2020 10:18
Mesta íhaldssveifla í hæstaréttinum í áratugi Hugmyndafræði Hæstaréttar Bandaríkjanna er líklegt til að taka skarpa hægribeygju til næstu áratuganna eftir að Donald Trump forseti tilnefndi Amy Coney Barrett, íhaldssaman áfrýjunardómara, til að taka sæti Ruth Bader Ginsburg í gær. 27.9.2020 10:06
Lægð gengur yfir landið í dag Rignt gæti af talsverðum ákafa á suðausturhluta landsins í dag, þar á meðal í Mýrdal og í Öræfum, þegar vaxandi lægð sunnan úr hafi gengur norður yfir landið í dag. Vindur snýst í norðlæga átt á morgun með kólnandi veðri. 27.9.2020 08:23
Sextán fórust í námuslysi í Kína Kolmónoxíðeitrun varð sextán kolanámumönnum að bana í suðvestanverðu Kína í dag. Aðeins einn þeirra sem festust í námunni komst lífs af og er hann sagður á sjúkrahúsi. 27.9.2020 08:11
Fjórir erlendir ferðamenn handteknir, grunaðir um brot á sóttkví Erlendur ferðamaður sem var handtekinn í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi er grunaður um brot á sóttkví. Maðurinn er sagður hafa verið afar ölvaður og reynt að efna til slagsmála. Þrír aðrir erlendir ferðamenn voru handteknir fyrir að brjóta sóttkví í gærkvöldi. 27.9.2020 07:37
Stærsti jarðskjálfti í Bárðarbungu frá því í apríl Jarðskjálfti upp á 4,8 að stærð varð í austanverðri Bárðarbungu rétt eftir miðnætti í nótt. Hann er sá stærsti í eldstöðinni frá því í janúar og apríl en þeir skjálftar voru jafnstórir þessum. 27.9.2020 07:24
Árásarmaðurinn sagður hafa verið á eftir starfsmönnum Charlie Hebdo Ungur maður sem er talinn hafa sært tvennt með kjötöxi utan við fyrri skrifstofur skopritsins Charlie Hebdo í París í gær segir lögreglu að skotmark hans hafi verið starfsmenn blaðsins. 26.9.2020 14:34
Ríkisstjórnarmyndun í Líbanon farin út um þúfur Tilraunir til þess að mynda nýja ríkisstjórn í Líbanon eru farnar út um þúfur eftir að Mustapha Adib, tilnefndur forsætisráðherra, sagðist ekki vilja leiða ríkisstjórn sem væri dæmd til þess að springa. 26.9.2020 13:58