Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Einstaklingur, sem er sagður hafa verið talsvert ölvaður, var handtekin um hálfeitt leitið í nótt í miðbæ Reykjavíkur eftir að hafa haft í hótunum við dyravörð. 19.5.2024 07:15
Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Bergvin Oddsson, fyrrverandi formaður Blindrafélags Íslands, hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir kynferðislega áreitni gegn þremur konum. Hann fær sjö mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, vegna brotanna. 18.5.2024 15:11
Myndband sýnir árás Diddy Myndefni sýnir tónlistarmanninn Sean „Diddy“ Combs ráðast gegn fyrrverandi kærustu hans, Cassie Ventura. Myndefnið er frá árinu 2016 úr öryggismyndavélum InterContinental-hótelsins í Los Angeles-ríki Bandaríkjanna. 18.5.2024 11:37
Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið ákærður fyrir að kasta af sér þvagi á almannafæri. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu, en það er Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra sem höfðar málið. 18.5.2024 09:57
Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins, sem eru í meirihluta í Ölfusi, finnst leiðinlegt að fresta fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu íbúa um deiluskipulag fyrir mölunarverksmiðju sem átti að hefjast í dag. Hins vegar sé ekkert annað í stöðunni. 18.5.2024 09:23
„Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Jóni Gnarr þykir sérkennilegt að forsetaframbjóðendum hafi ekki verið boðið í bústað forseta Íslands á Bessastöðum. Þetta kom fram í forsetakappræðum á Stöð 2 síðastliðið fimmtudagskvöld. 18.5.2024 09:01
Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Þegar klukkan var hálffimm í nótt var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um slagsmál í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögregluna bar að garði voru allir þeir sem áttu hlut í máli að ganga á brott og enginn virtist slasaður eftir áflogin. 18.5.2024 07:17
Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Landsréttur staðfesti dóm yfir karlmanni í dag sem varðar fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot og peningaþvætti. Móðir hans hafði verið sakfelld í héraði í málinu en lést á síðasta ári. Landsréttur vísaði sakargiftum hennar frá dómi. 17.5.2024 16:22
Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu „Þetta er bara mitt „identity“. Þetta er minn karakter. Ég hef verið kallaður þetta í sautján ár,“ segir Rúnar Hroði Geirmundsson um ákvörðun Mannanafnanefndar að úrskurða að leyfa ekki fólki að bera nafnið Hroði. 17.5.2024 15:38
Slökktu eld á Seltjarnarnesi Slökkviliðið sinnir nú útkalli við Skólabraut á Seltjarnarnesi, en þar var eldur í tveggja hæða húsi með kjallara. 17.5.2024 11:56