Ekki allir sammála því að ekki eigi að lækka vexti Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að það séu ekki allir í íslensku samfélagi sammála því að hér eigi ekki að lækka vexti. Hann segist þó vona það besta en búa sig undir það versta fyrir stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans á morgun. Hann veltir því fyrir sér hvort umfangsmiklar fjárfestingar lífeyrissjóðanna í íslensku hagkerfi valdi þrálátri verðbólgu og háu vaxtastigi. 20.8.2024 22:58
Skaftárhlaup líklega að hefjast Rafleiðni í Skaftá hefur hækkað hægt og rólega síðan í gærkvöldi og vatnshæð og rennsli árinnar við Sveinstind aukist síðustu klukkustundir. Athuganir benda til þess að Skaftárhlaup sé að hefjast. Næstu daga munu flóðaðstæður ríkja við bakka Skaftár, og brennisteinsvetni getur borist með hlaupvatninu. 20.8.2024 21:16
Íbúð í Grafarvogi á floti í sjóðandi vatni Íbúðareigandi í Grafarvogi er eitt stórt spurningamerki eftir umfangsmikinn leka í íbúð hans sem þó er ekki á stóru lokunarsvæði á höfuðborgarsvæðinu sem nær til 120 þúsund íbúa. Heitt vatn fossaði úr lögn í íbúðinni í gær sem olli einnig skemmdum á hæðinni fyrir neðan. Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna segir að bilun hafi orðið í dreifikerfinu í Grafarvogi í gær, sem er alveg ótengd viðgerðinni á Suðuræð. 20.8.2024 19:21
Ökumaður stöðvaður á nagladekkjum og fékk engan afslátt Ökumaður var stöðvaður í Reykjavík í dag þar sem bifreið hans var á nagladekkjum. Í dagbók lögreglunnar segir að ökumaðurinn hafi reynt að nota allar bestu afsakanirnar í bransanum, en lögreglumennirnir hafi engan afslátt gefið, þar sem þeir væru ekki fæddir í gær. 20.8.2024 17:40
Sér ekki vaxtalækkun í kortunum fyrr en í nóvember Engar líkur eru taldar á að vaxtalækkunarferli Seðlabankans hefjist á miðvikudag eins og margir höfðu vonast til. Reiknað er með að stýrivextir verði áfram 9,25 prósent og munu þá hafa staðið óbreyttir í heilt ár. Hörður Ægisson ritstjóri Innherja, telur að þeir verði ekki lækkaðir fyrr en í nóvember. 19.8.2024 23:43
Vill neyðarlög verði stýrivextir ekki lækkaðir „Ég tel bara að ef vextir eiga að haldast óbreyttir, þá þurfi hreinlega að setja neyðarlög. Ég er bara komin þangað.“ Þetta segir Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður hagsmunasamtaka Heimilanna, þingmaður Flokks Fólksins og nefndarmaður í efnahags og viðskiptanefnd Alþingis. 19.8.2024 22:24
Fimmtíu ár frá opnun Hringvegar Fimmtíu ár eru frá því að Skeiðarárbrú var vígð í júlí 1974, og Hringveginum þar með lokað. Í telefni af þessum tímamótum standa Vegagerðin og sveitarfélagið Hornafjörður fyrir málþingi og hátíðardagskrá föstudaginn 30. ágúst 2024. 19.8.2024 19:12
Beiðnin afturkölluð og Helgi þarf ekki að skila lyklum Beiðni ríkissaksóknara um að Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari skili lyklum að húsnæði embættisins, fartölvu og öðru slíku hefur verið afturkölluð. Helgi fékk tölvupóst þess efnis fyrir um fjórum klukkutímum en fékk svo annan fyrir hálftíma þar sem beiðnin var afturkölluð. 19.8.2024 18:42
Helgi beðinn um að skila lyklunum Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hefur verið beðinn um að skila lyklum og fartölvu til embættis ríkissaksóknara, að beiðni skrifstofustjóra embættisins. Hann telur þessa ákvörðun ólögmæta, en dómsmálaráðherra hefur ekki tekið ákvörðun í máli hans. 19.8.2024 17:53
Tugir barna á bið eftir leikskólaplássi á höfuðborgarsvæðinu Börn eru á biðlista eftir leikskólaplássi í nærri öllum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Um 36 bíða í Garðabæ, 23 í Hafnarfirði og 141 barn í Kópavogi. Ekkert barn bíður í Mosfellsbæ en fimm á Seltjarnarnesi. Í Reykjavík er enn verið að vinna að innritun og fjöldi á bið enn óljós. 18.8.2024 22:54