Fiðla seld fyrir tvo milljarða króna Fiðla sem smíðuð var fyrir rúmum 300 árum, var seld í sumar á uppboði fyrir andvirði tveggja milljarða íslenskra króna. Ekki er vitað hver kaupandinn var. 7.8.2022 17:01
Kona sem drap nauðgara sinn ákærð fyrir manndráp 22ja ára mexíkósk kona á yfir höfði sér 7 ára fangelsi fyrir að hafa orðið manni, sem var að nauðga henni, að bana. Ákæruvaldið segir konuna hafa beitt óhóflegu ofbeldi. Tæplega 50 konum er nauðgað að meðaltali á degi hverjum í Mexíkó. 6.8.2022 15:15
Saksóknarinn sem fór í stríð við mafíuna Yfir 350 manns sitja nú á sakamannabekk í einum stærstu réttarhöldum sem ráðist hefur verið í gegn meðlimum ítölsku mafíunnar. Þetta má aðallega þakka einum saksóknara, sem undrast það verulega að hann skuli enn vera á lífi. 1.8.2022 14:30
Sakfelldur fyrir að bana unglingi sem hann hitti aldrei Rúmlega sextugur karl hefur verið sakfelldur í Katalóníu á Spáni fyrir að hafa banað 17 ára unglingi. Maðurinn hitti unglinginn aldrei og þeir höfðu einungis átt í samskiptum í einn sólarhring. 30.7.2022 14:31
Dularfull dauðsföll rússneskra auðmanna Tæpur tugur rússneskra milljarðamæringa hefur látist við grunsamlegar aðstæður frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Í sumum tilfellum hefur öll fjölskylda milljarðamæringanna verið myrt. 24.7.2022 14:31
Synjað um líknardauða Dómari hefur synjað manni sem lamaðist í skotbardaga við lögregluna, um líknardráp á Spáni, eftir að hann hafði áður fengið leyfi til þess að deyja. Maðurinn lamaðist í byssubardaga við lögreglu eftir að hafa reynt að drepa fyrrverandi samstarfsmenn sína. 23.7.2022 14:32
Áfengisneysla að öllu leyti skaðleg heilsu ungs fólks Ríki heims þurfa að grípa til sértækra ráðstafana til þess að draga úr áfengisneyslu ungs fólks. Niðurstöður stærstu rannsóknar sem gerð hefur verið á áhrifum áfengisneyslu benda til þess að þær séu að öllu leyti skaðlegar ungu fólki, en geti í hófi dregið úr sjúkdómum eldra fólks. 17.7.2022 14:31
Herra Réttlæti settur af sem bæjarstjóri vegna eiturlyfjamisferlis Bæjarstjóri í litlum bæ á Spáni hefur verið handtekinn, grunaður um aðild að stórtækum eiturlyfjahring sem teygir anga sína um 4 héruð Spánar. 16.7.2022 15:00
Evrópudómstóllinn dæmir í fótbolta Evrópudómstóllinn tekur fyrir á morgun deilu stærstu knattspyrnufélaga Evrópu við Knattspyrnusamband Evrópu, sem vill banna Ofurdeildina í fótbolta. Talsmenn félaganna segja að slík einokun sé bönnuð með lögum í ríkjum Evrópusambandsins. Þar ríki atvinnufrelsi á öllum sviðum. 10.7.2022 14:31
Andstæðingar þungunarrofs höfðu ótakmarkað aðgengi að fjármunum í baráttu sinni Bandarískur sagnfræðingur heldur því fram að bandarískur hæstaréttardómur frá árinu 2010 um heimild einkafyrirtækja til að styðja pólitíska frambjóðendur í Bandaríkjunum sé í raun rótin að því að Hæstiréttur sneri á dögunum við dómi um stjórnarskrárbundinn rétt kvenna til þungunarrofs. 9.7.2022 15:33