Sjóðir Vanguard keyptu í Kviku fyrir nærri milljarð króna Bandaríski sjóðastýringarrisinn Vanguard ræður yfir nálægt eins prósenta hlut í Kviku eftir að hafa keypt nánast öll þau bréf sem voru seld í bankanum í lokunaruppboði í Kauphöllinni á föstudaginn fyrir rúmlega viku í aðdraganda þess að Ísland færðist upp í flokk nýmarkaðsríkja. 24.9.2022 14:01
Sjóvá stækkaði stöðu sína í Marel fyrir um 800 milljónir á skömmum tíma Sjóvá margfaldaði hlutabréfastöðu sína í Marel yfir nokkurra vikna tímabil í aðdraganda þess að íslenski markaðurinn var færður upp í flokk nýmarkaðsríkja hjá FTSE vísitölufyrirtækinu í byrjun vikunnar. 23.9.2022 17:32
Sjóðastýringarrisinn Vanguard kominn í hóp stærri eigenda Íslandsbanka Bandaríska eignarstýringarfélagið Vanguard er orðið á meðal stærri hluthafa Íslandsbanka eftir að nokkrir sjóðir í stýringu þess keyptu í bankanum fyrir samanlagt um 1.300 milljónir króna í sérstöku uppboði sem fór fram eftir lokun markaða fyrir helgi. 23.9.2022 07:00
Stærsta sjóðastýringarfyrirtæki heims keypti í Marel fyrir á fjórða milljarð Vísitölusjóðir bandaríska eignastýringarfyrirtækisins Vanguard keyptu nánast öll þau bréf í Marel sem voru seld í sérstöku lokunaruppboði í Kauphöllinni síðasta föstudag í aðdraganda þess að íslenski markaðurinn var færður upp í flokk nýmarkaðsríkja hjá FTSE vísitölufyrirtækinu. 22.9.2022 16:11
Gefur Seðlabankanum færi á að hægja á vaxtahækkunartaktinum Lækkun íbúðaverðs í ágúst kom greinendum og fjárfestum á óvart, sem endurspeglaðist í skarpri lækkun óverðtryggðra ríkisbréfa í dag, en eftir þær tölur er ljóst að nýjasta spá Seðlabankans er að ofmeta verðbólguna talsvert næsta kastið. Þótt ástandið sé enn viðkvæmt þá þýðir kólnandi fasteignamarkaður að útlit er fyrir að lítið sé eftir að vaxtahækkunarferli Seðlabankans, að sögn viðmælenda Innherja á fjármálamarkaði. 21.9.2022 17:15
Undirbúningur sjóða sem seldu íslensku bréfin „langur og vel skipulagður“ Ótti innlendra fjárfesta um að það sé talsvert uppsafnað framboð af hlutabréfum sem ekki hafi náðst að selja á þeim verðum þegar erlendir vísitölusjóðir komu inn á markaðinn í uppboði eftir lokun Kauphallarinnar síðasta föstudag skýrir meðal annars það verðfall sem hefur orðið á bréfum flestra skráða félaga í vikunni. 20.9.2022 17:30
Gjaldeyrisinnflæðið sem kom ekki þegar íslenskir fjárfestar voru teknir í bólinu Umfangsmikil sala erlendra fjárfestingarsjóða, sem hafa að undanförnu byggt upp stöður í skráðum félögum hér á landi, til erlendra vísitölusjóða í aðdraganda þess að íslenski hlutabréfamarkaðurinn var færður upp í flokk nýmarkaðsríkja olli því að hlutabréfaverð flestra fyrirtækja í Kauphöllinni lækkaði verulega þegar markaðir lokuðu fyrir helgi. 19.9.2022 16:17
Auknar líkur á efnahagssamdrætti á næsta ári, segir Analytica Minnkandi kortavelta innanlands og samdráttur í aflamagni er á meðal þeirra þátta sem valda því að leiðandi hagvísir Analytica, sem gefur vísbendingu um vendipunkta í efnahagsumsvifum að sex mánuðum liðnum, lækkar núna í fyrsta sinn frá árinu 2018. 18.9.2022 16:01
Biðstaða á meðan fjárfestar bíða eftir planinu hjá stjórn Símans Efnahagsreikningur Símans tekur stakkaskiptum núna þegar loksins er orðið ljóst að salan á Mílu fyrir tæplega 70 milljarða króna gengur í gegn. Stóra spurningin, sem ætti að opinberast á allra næsta vikum, er hvað félagið hyggst gera við það mikla reiðufé sem það situr á eftir söluna. Flestir eiga von á því að þeir fjármunir verði meira eða minna allir greiddir út til hluthafa. 18.9.2022 13:20
Gildi heldur áfram að stækka hlut sinn í Sýn Gildi lífeyrissjóður, sem hefur um langt skeið verið einn allra stærsti hluthafi Sýnar, er á síðustu vikum búinn að vera að stækka stöðu sína í fjölmiðla- og fjarskiptafélaginu, bæði í aðdraganda og eftir hluthafafund félagsins í lok síðasta mánaðar þar sem átök voru á milli einkafjárfesta og lífeyrissjóða um kjör stjórnarmanna. 16.9.2022 16:02