Fjárfestar selt í hlutabréfasjóðum fyrir nærri fjóra milljarða frá áramótum Almennir innlendir verðbréfasjóðir hafa horft upp á nettó útflæði í hverjum mánuði frá áramótum samhliða áframhaldandi erfiðum aðstæðum á mörkuðum. Fjárfestar hafa þannig minnkað stöðu sína í hlutabréfasjóðum um 3,6 milljarða á fyrstu fjórum mánuðum ársins sem kemur til viðbótar við útflæði úr slíkum sjóðum upp á samtals átta milljarða á öllu árinu 2022. 31.5.2023 08:55
Oculis að sækja um átta milljarða króna í nýtt hlutafé Augnlyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, sem var stofnað fyrir tuttugu árum af tveimur íslenskum prófessorum við Háskóla Íslands og Landspítalann, hefur ákveðið að efna til hlutafjárútboðs sem er beint að innlendum og erlendum fjárfestum en ætlunin er að sækja samtals um átta milljarða króna miðað við núverandi markaðsgengi. Hlutabréfaverð Oculis hefur hækkað um 20 prósent frá því að það var skráð í kauphöll Nasdaq í New York fyrr á árinu en niðurstöður nýlegra verðmata gefa til kynna að félagið sé verulega undirverðlagt á markaði. 30.5.2023 13:37
„Alveg klárt“ að Aztiq hefur fjárhagsstyrk og vilja til að styðja við Alvotech Of snemmt er slá því föstu hvort Alvotech þurfi yfir höfuð að sækja sér viðbótar fjármagn á þessu ári til að styðja við reksturinn, að sögn forstjóra og aðaleigenda félagsins. Í ítarlegu viðtali við Innherja segir hann að ef ráðist verður í „mjög lítið“ hlutafjárútboð vegna mögulegrar seinkunar á því að komast inn á Bandaríkjamarkað þurfi enginn að „velkjast í vafa“ um getu Aztiq, fjárfestingafélags Róberts Wessman, til að leggja til þá fjármuni sem þar þyrfti. FDA hefur fallist á að eiga fund með Alvotech eftir ríflega tvær vikur til að fara yfir svör félagsins við þeim athugasemdum eftirlitið gerði við framleiðsluaðstöðu þess. 30.5.2023 08:34
Mikil áskorun að ná 3,5 prósenta raunávöxtun með verðbólgu í hæstu hæðum Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) var með lökustu raunávöxtunina meðal stærstu sjóða landsins á árinu 2022 sem einkenndist af afar krefjandi aðstæðum á flestum eignamörkuðum. Sé litið til síðustu tíu ára hefur árleg raunávöxtun sömu lífeyrissjóða að jafnaði verið á bilinu 4,5 til 5,3 prósent en stjórnarformaður LSR varar við því að krafa um að sjóðirnir nái að skila ávöxtun yfir 3,5 prósenta viðmiðinu verði veruleg áskorun þegar verðbólgan er í hæstu hæðum. 29.5.2023 16:31
Lækkar verðmat á Alvotech vegna óvissu um innkomu á Bandaríkjamarkað Ólíklegt er að Alvotech takist að standa við áður yfirlýst áform um að hefja sölu á sínu stærsta lyfi í Bandaríkjunum um mitt þetta ár heldur má ætla að FDA muni ekki samþykkja umsókn félagsins um markaðsleyfi fyrr en í desember. Þær tafir valda því að greinendur bandaríska fjárfestingabankans Morgan Stanley hafa lækkað verðmat sitt á íslenska líftæknifyrirtækinu um 40 prósent. 28.5.2023 14:20
Erlendir fjárfestar ekki átt stærri hlut í Íslandsbanka frá skráningu Á sama tíma og Capital Group lauk við sölu á eftirstandandi hlutum sínum í Marel fyrr í þessum mánuði hefur bandaríski sjóðastýringarrisinn haldið áfram að stækka við stöðu sína í Íslandsbanka en samanlagður eignarhlutur erlendra sjóða í bankanum er nú farinn að nálgast tíu prósent. Samkvæmt nýju verðmati er bankinn metinn á liðlega 19 prósent yfir núverandi markaðsgengi. 26.5.2023 15:37
Forysta SA þarf að „standa í lappirnar“ gegn óraunhæfum launakröfum Seðlabankastjóri gagnrýnir forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins og segir þá þurfa að „standa meira í lappirnar“ þegar kemur að óraunhæfum kröfum verkalýðsfélaganna um miklar nafnlaunahækkanir en síðustu vaxtahækkanir bankans sýni að það kosti atvinnurekendur að gera dýra kjarasamninga. Kjölfesta verðbólguvæntinga hefur laskast og seðlabankastjóri viðurkennir að bankinn hafi mögulega gert mistök síðasta haust með því að tala ekki skýrar að hann myndi halda áfram sínu striki óháð því hvað aðrir armar hagstjórnarinnar myndu gera. 25.5.2023 11:01
Stærsta vaxtastökkið frá hruni með 125 punkta hækkun Seðlabankans Peningastefnunefnd kom markaðsaðilum og greinendum á óvart með því að hækka vexti Seðlabankans úr 7,5 prósentum í 8,75 prósentum, sem var umfram væntingar, til að ná böndum á undirliggjandi verðbólgu sem heldur áfram að hækka samtímis því að horfur eru á enn meiri vexti í innlendri eftirspurn í ár. Þrátt fyrir að vaxtahækkunin nú upp á 125 punkta sé sú mesta í einu vetfangi frá því við fall bankanna haustið 2008 þá boðar nefndin enn frekari hækkun vaxta á næstunni. 24.5.2023 08:57
Gott gengi Lotus eykur virði hlutar Róberts um tugi milljarða á einu ári Markaðsvirði samheitalyfjafyrirtækisins Lotus hefur liðlega þrefaldast frá því að fjárfestingafélagið Aztiq, aðaleigandi Alvotech og stýrt af Róberti Wessman, kom að kaupum á meirihluta í félaginu fyrir rétt rúmu einu ári og nemur nú jafnvirði yfir 400 milljörðum íslenskra króna. Hlutabréfaverð Lotus, sem er stærsta lyfjafyrirtækið á markaði í Taívan, rauk upp meira en tuttugu prósent þegar það birti árshlutauppgjör sitt um miðja síðustu viku sem sýndi yfir 40 prósenta tekjuvöxt. 23.5.2023 17:27
Grunnrekstur Kviku verið á pari eða umfram spár síðustu fjórðunga Hagnaður af grunnrekstri Kviku banka, sem undanskilur fjárfestingastarfsemi TM, var um 40 prósentum yfir áætlunum á fyrsta fjórðungi þessa árs og nam tæplega 1.200 milljónum króna. Að sögn forstjóra félagsins hefur grunnreksturinn gengið vel, sem endurspeglast í sífellt meiri umsvifum, en nýjar upplýsingar sem bankinn hefur birt sýna að hann hefur verið í samræmi við eða umfram spár frá því í ársbyrjun 2022. 22.5.2023 17:51