Lyfjanotkun ekki lengur frágangssök í lögreglunáminu Notkun lyfseðilsskyldra lyfja verður ekki lengur útilokandi þáttur við inntöku í starfsnám í lögreglufræðum hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar. Þetta kemur fram í tölvupósti frá Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra til Ólafíu Kristínar Norðfjörð, sem hefur tvívegis verið neitað um námið sökum þess að hún tekur kvíða- og þunglyndislyfið Sertral. 6.1.2021 09:02
Kim Kardashian og Kanye West sögð leggja drög að skilnaði Skilnaður Kim Kardashian og Kanye West er yfirvofandi, ef marka má slúðurmiðla vestanhafs. „Hún er hætt,“ hefur Page Six eftir heimildarmanni en TMZ segir parið enn í hjónabandsráðgjöf. 6.1.2021 06:16
Pence tjáði Trump að hann hefði ekki vald til að breyta úrslitunum Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, er sagður hafa tjáð forsetanum að hann muni ekki getað komið í veg fyrir að Bandaríkjaþing staðfesti kjör Joe Biden sem næsta forseta landsins. 6.1.2021 06:01
Afar mjótt á munum í aukakosningunum í Georgíu Afar mjótt er á munum milli frambjóðenda Repúblikanaflokksins og Demókrataflokksins í aukakosningunum sem fram fóru í Georgíu í dag. Í húfi eru tvö þingsæti í öldungadeild Bandaríska þingsins. 6.1.2021 03:04
Fólk ekki flutt á sjúkrahús ef lífslíkur eru taldar afar litlar Sjúkraflutningamenn í Los Angeles-sýslu í Kaliforníu í Bandaríkjunum hafa fengið fyrirskipun um að flytja ekki sjúklinga á sjúkrahús þegar lífslíkur þeirra eru taldar afar litlar. 5.1.2021 22:02
Einn þekktasti stjórnspekingur Frakka ásakaður um barnaníð Olivier Duhamel, einn þekktasti stjórnmálafræðingur og -skýrandi Frakklands, hefur látið af störfum og eytt Twitter aðgangi sínum eftir að stjúpdóttir hans steig fram og greindi frá því að hann hefði misnotað tvíburabróður hennar. 5.1.2021 14:35
Vildi óska að hún hefði ekki skrifað Brokeback Mountain Rithöfundurinn Annie Proulx segist stundum sjá eftir því að hafa skrifað Brokeback Mountain, harmþrungna ástarsögu Jack og Ennis, sem voru leiknir af Jake Gyllenhaal og Heath Ledger í samnefndri kvikmynd. 5.1.2021 13:07
27 milljóna króna harmsaga sem endar vel Píanóleikarinn Angela Hewitt hefur fundið ástina á ný; 27 milljóna króna Fazioli flygil, sem var sérsmíðaður eftir að ástin hennar eyðilagðist í flutningum í fyrra. 4.1.2021 15:31
Biður fyrir því að sóttvarnayfirvöld „íhugi málin með visku“ „Ég lýsi yfir að þrátt fyrir góðan vilja getum við ekki fylgt öllum gildandi sóttvarnareglum í sambandi við messuhald í kirkjum okkar. Með harm í hjarta hef ég tekið þá ákvörðun að aflýsa öllum opinberum sunnudagsmessum og vigilmessum á laugardagskvöldum. Ákvörðunin tekur þegar gildi.“ 4.1.2021 11:46
Ticketmaster greiðir milljarð til að forðast ákærur Bandaríska miðasölufyrirtækið Ticketmaster hefur samþykkt að greiða jafnvirði 1,2 milljarða íslenskra króna í sekt fyrir að hafa brotist inn í tölvukerfi keppinautar. 30.12.2020 23:20