Skoða að heimila utanlandsferðir án þess að bætur skerðist Forstjóri Vinnumálastofnunar segir allsherjar endurskoðun á lögum um atvinnuleysisbætur standa nú yfir sem búist er við að ljúki í haust. Ekki sé búið að taka ákvörðun um hvort heimilt verði að ferðast tímabundið til annarra EES-ríkja án þess að bætur skerðist 11.5.2023 13:31
Segir Kópavog hafa þegar tekið við fjölda flóttamanna Bæjarstjóri Kópavogs vísar til húsnæðisskorts og vanfjármögnunar sem ástæður þess að bærinn hafi ekki gert samning við ríkið um móttöku flóttamanna. Kópavogur hafi engu að síður þegar tekið við ríflega hundrað flóttamönnum. 8.5.2023 18:32
„Ef þetta væri sláturhús væri því lokað tafarlaust“ Stjórnarmaður Dýraverndarsambands Íslands segir skýrt koma fram í nýrri skýrslu Matvælastofnunar um hvalveiðar að óásættanlega hátt hlutfall veiddra hvala hafi þjáðst. Hann segir að ef þarna væri einhver önnur matvælaframleiðsla á ferð væri löngu búið að stöðva þetta. 8.5.2023 15:07
„Það er mikill smánarblettur fyrir sveitarfélagið“ Félagið Vinir Kópavogs segja með öllu óskiljanlegt að meirihlutanum í Kópavogi hafi ekki enn tekist að ganga frá samningi við ríkið um samræmda móttöku flóttafólks, um tíu mánuðum eftir að þeir voru tilbúnir af hálfu ríkisins. Þau vísa allri ábyrgð til bæjarstjóra og meirihluta bæjarstjórnar í Kópavogi. 8.5.2023 13:31
Rannsókn beinist að hugsanlegu manndrápi Rannsókn lögreglu á andláti ungrar konu á Selfossi í síðustu viku beinist nú að hugsanlegu manndrápi til samræmis við bráðabirgðaniðurstöður krufningar. Héraðsdómur Suðurlands hefur framlengt gæsluvarðhald til 19. maí yfir öðrum af tveimur mönnum sem handteknir voru í tengslum við málið. Maðurinn var leiddur fyrir dómara nú fyrir stundu. 5.5.2023 16:42
Starfsfólk Flensborgar uggandi og óttast uppsagnir Formaður kennarafélags Flensborgarskólans segir starfsfólk skólans uggandi yfir mögulegri sameiningu Flensborgarskólans og Tækniskólans. Þau hafi fyrst frétt af mögulegum samruna í fjölmiðlum. Þetta sé sparnaðaraðgerð sem þýði að öllum líkindum uppsagnir. 5.5.2023 13:01
Frumvarpið sé viðbragð við stóra kókaínmálinu og sjö vikna banni fjölmiðla Þingmenn Viðreisnar hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um meðferð einka- og sakamála sem beinir sjónum að frásögn fjölmiðla af skýrslutökum úr dómsal. Frumvarpið er hugsað sem viðbragð við stóra kókaínmálinu og því ástandi sem skapaðist þegar dómari bannaði fréttaflutning úr dómsal í heilar sjö vikur. 4.5.2023 13:30
„Fullkominn skortur af samningsvilja af hálfu sambandsins“ Fundi samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara lauk án niðurstöðu klukkan ellefu í morgun. Formaður BSRB segist ekki hafa fundið fyrir því að Samband íslenskra sveitarfélaga hafi viljað semja. 2.5.2023 15:07
Ferðamálastofa og SAF taka undir ákall leiðsögumanna um betri neyðarþjónustu Ferðamálastofa og Samtök ferðaþjónustunnar taka undir ákall leiðsögumanna um betri neyðarþjónustu á vinsælum ferðamannastöðum. Framkvæmdastjóri SAF segir óásættanlegt að símasamband á neðra plani Gullfoss sé svo slitrótt að símtal leiðsögumanns við Neyðarlínuna hafi slitnað eftir að maður hneig þar niður fyrir tveimur vikum. 2.5.2023 14:31
Útskrifaður af gjörgæslu eftir skipsbrunann í Njarðvíkurhöfn Skipverji sem slasaðist þegar Grímsnes GK-555 brann í Njarðvíkurhöfn fyrir viku er útskrifaður af sjúkrahúsi. Rannsókn lögreglu á brunanum mannskæða er sögð miða vel áfram en ekki er talið að upptök eldsins hafi borið að með saknæmum hætti. 2.5.2023 13:47