Hlutum gefið framhaldslíf í garðsölu í Hlíðunum Íbúar í Hlíðahverfi í Reykjavík nýttu veðurblíðuna og gáfu notuðum hlutum framhaldslíf á hverfismarkaði þar sem kenndi ýmissa grasa. Skipuleggjandinn vonast til að viðburðurinn verði haldinn árlega hér eftir. 2.7.2023 20:55
„Mér finnst þetta bara skelfilegt og ekki til fyrirmyndar“ Háværar kröfur eru um að starfslokasamningur Birnu Einarsdóttur, fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka, verði birtur strax. Stjórnarformaður bankans segir stjórnina ekki hafa tekið afstöðu til málsins en búið er að boða til hluthafafundar. Landsmenn segja málið hneyksli. 2.7.2023 20:03
„Við þurfum að setja upp fötlunargleraugun“ Formaður Öryrkjabandalags Íslands segir mál hreyfihamlaðrar konu sem hefur ítrekað verið hafnað um atvinnutækifæri á grundvelli fötlunar hennar ekki vera einsdæmi. Fordómar ríki í samfélaginu sem þurfi að uppræta. 2.7.2023 16:30
Stjórn hefur ekki tekið afstöðu til birtingar starfslokasamnings Nefndarmenn fjárlaganefndar Alþingis krefjast þess að starfslokasamningur Birnu Einarsdóttur, fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka, verði birtur strax. Stjórnarformaður bankans segir stjórn bankans ekki hafa tekið afstöðu til málsins. 2.7.2023 12:27
Fær ekki vinnu vegna fötlunar sinnar Hreyfihömluð kona á fertugsaldri sem hefur verið atvinnulaus í tæpt ár segir atvinnurekendur ítrekað hafa hafnað henni um starf á grundvelli fötlunar hennar. Hún segir málið skammarlegt og skrítið. 1.7.2023 20:10
Vilja vernda börn og ungmenni gegn viðskiptaboðum fyrir nikótínvörur Fjölmiðlanefnd segir Ríkisútvarpið hafa gerst brotleg við nýbreytt fjölmiðlalög með því að birta auglýsingar verslunarkeðjunnar Svens sem selur einungis nikótínpúða. Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar segir markmið breytinganna meðal annars hafa verið að vernda börn og ungmenni. 1.7.2023 12:52
Veðrið leikur við gesti á Írskum dögum á Akranesi Veðrið leikur við gesti á Írskum dögum á Akranesi sem settir voru í tuttugasta og fjórða sinn á fimmtudaginn og nær hápunkti í kvöld. Formaður bæjarráðs segir hátíðarhöld hafa gengið vel, bærinn sé fullur af fólki og tjaldsvæðið fullt. 1.7.2023 12:26
„Hér verður ekki flugvöllur og hér verða ekki blokkir“ Bessastaðanes var formlega friðlýst í morgun eftir að forsetaembættið og bæjarstjórn Garðabæjar óskuðu eftir því. Forseti Íslands fagnar því að sjónarmið náttúruverndar og útivistar hafi ráðið för við ákvörðunartökuna. Forstjóri Umhverfisstofnunar segir friðlýsinguna þýðingarmikla fyrir líffræðilegan fjölbreytileika. 30.6.2023 23:02
Ætlar að losa miðborgina við 38 þúsund tyggjóklessur Tyggjókarlinn svokallaði hefur störf sín á ný á morgun. Hann hyggst ná því stóra markmiði að gera miðborg Reykjavíkur tyggjóklessulausa í sumar. 30.6.2023 21:52
Fólk sem lifir með heilabilun þurfi rödd Teepa Snow, alþjóðlegur fyrirlesari um þjónustu við heilabilaða, segir skipta mestu máli að hafa jákvæðni að leiðarljósi. Það geti dregið úr álagi bæði hjá þeim sem eru með heilabilun og þeirra sem standa þeim næst. 27.6.2023 19:28
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent