Stendur tæpt að stjórnarkjör geti farið fram í dag Mæti fulltrúar VR og Eflingar ekki á þing ASÍ í dag, þar sem fram á að fara stjórnarkjör, stendur tæpt að kosningin geti farið fram. Minnst 50 prósent þingfulltrúanna þurfa að vera viðstödd til að hægt sé að halda áfram með kosninguna en aðeins fjóra fulltrúa vantar upp á til að VR og Efling séu með helming þingfulltrúa. 12.10.2022 08:48
Adnan Syed hreinsaður af sök Hinn bandaríski Adnan Syed, sem hefur setið í fangelsi í 23 ár fyrir á morðið á fyrrverandi kærustu sinni, hefur verið hreinsaður af sök. Mál Syeds vakti heimsathygli í rannsóknarhlaðvarpinu Serial, sem kom út fyrir átta árum síðan. 12.10.2022 08:00
Fjárveitingar dugi varla til að viðhalda lyfjameðferð sem er þegar hafin Forstjóri Landspítalans segir að 2,2 milljarða króna vanti til spítalans svo hann geti tekið ný lyf til notkunar á næsta ári. Fjárveitingar sem gert er ráð fyrir í fjárlögum dugi varla til þess að viðhalda þeim lyfjameðferðum sem þegar eru hafnar. 12.10.2022 07:20
Rússneska leyniþjónustan handtekur átta vegna sprengingarinnar á Kerch brú Rússneska leyniþjónustan FSB hefur handtekið fimm Rússa og þrjá úkraínska- og/eða armenska ríkisborgara vegna sprengingarinnar á Kerch brúnni á laugardag. Brúin skemmdist allnokkuð í sprenginunni en hluti hennar féll í Kerch sundið. 12.10.2022 06:48
Fundu fíkniefnaræktun í Kópavogi Lögreglan fann á sjötta tímanum í gærkvöldi fíkniefnaræktun í iðnaðarbili í miðbæ Kópavogs. Voru bæði plöntur og tæki gerð upptæk og skýrsla tekin af húsráðanda. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en ekkert meira kemur fram um umrædda fíkniefnarækt. 12.10.2022 06:21
Rannsaka meðal annars hvort einhver hafi veitt konunni áverkana Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur meðal annars til rannsóknar hvort einhver hafi veitt konu, sem fannst látin í Laugardal um helgina, áverka sem fundust á líki hennar. Áverkarnir urðu til þess að lögregla hóf rannsókn með það í huga að konunni hafi verið banað og handtók tvo menn tengda henni. 11.10.2022 12:17
Phoenix vill verða fyrsti varaforseti ASÍ Phoenix Jessica Ramos hefur tilkynnt framboð sitt til fyrsta varaforseta Alþýðusambands Íslands. Hún fer upp á móti Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni, sem hefur verið fyrsti varaforseti undanfarið kjörtímabil og gegnt starfi forseta síðan Drífa Snædal sagði af sér embættinu. 11.10.2022 09:05
Stríðshaukar í Kreml krefjast skæðari árása í Úkraínu Embættismenn og stuðningsmenn stríðsreksturs Rússa í Úkraínu hafa fagnað mannskæðum árásum um alla Úkraínu í gær. Rússneski herinn hefur undanfarnar vikur verið harðlega gagnrýndur af hópi manna í Kreml vegna þess hve honum hefur gengið illa á vígvellinum undanfarnar vikur. 11.10.2022 08:38
Á þriðja tug hafa farist vegna fellibyljar í Mið-Ameríku Minnst 28 hafa látist í gríðarlegum rigningum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Fellibylurinn Júlía sem gekk yfir svæðið hefur misst kraft sinn en enn rignir mikið í bæði Gvatemala og El Salvador. 11.10.2022 07:49
Hafa borið kennsl á þann sem fannst látinn við Gróttu Búið er að bera kennsl á lík sem fannst í fjörunni við Gróttuvita á Seltjarnarnesi á sunnudag. Aðstandendur hafa verið látnir vita að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns. 11.10.2022 07:00