Fréttamaður

Bjarki Sigurðsson

Bjarki er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hvanna­dals­hnjúkur lækkar

Óformleg mæling Loftmynda sýnir að Hvannadalshnjúkur sé 2.108 metrar, tæplega tveimur metrum minni en þegar hann var mældur fyrir 21 ári síðan. Sérfræðingur segir æskilegt að mæla þennan hæsta tind landsins á ný. 

Líkams­á­rás í Breið­holti

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um líkamsárás í Efra-Breiðholti. Brotaþoli er sagður hafa hlotið minniháttar áverka og var einn handtekinn. Sá var í annarlegu ástandi og vistaður í fangageymslu.

Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu

Gilhagi ehf., félag Arnalds Indriðasonar rithöfundar, hagnaðist um 113 milljónir árið 2025 og á tæplega 1,4 milljarða í hreina eign. Fyrirtæki Yrsu Sigurðardóttur rithöfundar, Yrsa Sigurðardóttir ehf., hagnaðist um rúmar tuttugu milljónir sama ár. 

Verk­fallið skaði orð­spor Ís­lands

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir boðað verkfall flugvirkja ekki einungis hafa tímabundin áhrif á rekstur Icelandair og ferðaþjónustu landsins heldur gæti það haft töluverð áhrif á orðspor bæði fyrirtækisins og Íslands. Hann á von á því að stjórnvöld grípi í taumana ef kemur til verkfalls.

Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“

Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) segir stuttan gjaldfrjálsan tíma í brottfararrennu Isavia við Keflavíkurflugvöll og hátt refsigjald vera ósanngirni og okur. Félagið kallar hana „ræningjarennuna“ og skorar á Isavia að stækka hana.

Rigning, rigning, rigning

Það gengur í suðvestan tíu til átján metra á sekúndu í dag. Víða skúrir, en þurrt að mestu á Austurlandi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast austanlands. Dregur úr vindi í kvöld. 

Ís­lensk ung­menni drekka minnst af orku­drykkjum

Fimmtungur íslenskra ungmenna á aldrinum fimmtán til nítján ára drekkur orkudrykk einu sinni á dag eða oftar. 36 prósent drekka orkudrykk vikulega eða oftar. Töluvert fleiri íslensk ungmenni drekka aldrei orkudrykk en ungmenni á öðrum Norðurlöndum. 

Vilja þing­kosningar og staðgöngumæður

Í stjórnmálaályktun Sambands ungra Sjálfstæðismanna (SUS) er skorað á ríkisstjórnina að boða til þingkosninga þar sem erindi hennar sé að þrotum komið. Einnig var ályktað að leyfa ætti staðgöngumæðrun á Íslandi, leggja niður Ríkisútvarpið og setja tímabundið hlé á afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd. Þá vilja félagsmenn að eingöngu íslenskir ríkisborgarar fái að kjósa í sveitarstjórnarkosningum. 

Samninga­nefnd Reykja­víkur­borgar leyst undan störfum

Borgarráð hefur samþykkt tillögu Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga (SÍS) umboð til kjarasamningsgerðar fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Samninganefnd verður þannig leyst undan störfum. Þá verður eignarhald og ábyrgð Jafnlaunastofu endurskoðað.

Sjá meira