Jóhanna tekur við sem forstjóri Valdimar Kristjónsson mun í október láta af störfum sem forstjóri Rafals ehf. eftir fimmtán ára starf hjá fyrirtækinu. Jóhanna Klara Stefánsdóttir tekur við af Valdimar. 21.9.2026 08:00
Sonur Cindy Crawford er látinn Presley Gerber, fyrirsæta og sonur ofurfyrirsætunnar og leikkonunnar Cindy Crawford, er látinn, 27 ára að aldri. Óvíst er með dánarorsök en hann er sagður hafa verið í meðferð vegna fíknivanda þegar hann lést. 21.9.2026 07:18
Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gular viðvaranir eru í gildi á Suðurlandi og við Faxaflóa vegna vinds. Viðvaranirnar fallar úr gildi klukkan níu. 21.9.2026 07:05
Sjóðurinn tómur Potturinn sem ætlaður var fyrir endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi kláraðist um mitt ár. Nokkrar umsóknir bíða afgreiðslu. Sótt verður um aukafjárveitingu frá Alþingi. 21.9.2026 06:47
Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Lögreglu barst tilkynning um glæfralegan akstur bifhjóls í Mosfellsbæ í gær. Ungur ökumaður ók þar um á rafmagnskrossara, ekki með skráningarnúmer. Því mátti hann ekki aka á akbraut. Lögregla stöðvaði akstur hans en hann var ekki með aldur til að vera í umferðinni. Foreldrar komu og sóttu hann á vettvang. 21.9.2026 06:23
Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Stjórnmálaleiðtogar Danmerkur og Grænlands halda nú til Bandaríkjanna til að undirrita samkomulag um framtíð varnarmála á Grænlandi. Sérfræðingur í varnarmálum segir stöðu Íslands í það minnsta ekki verri reisi Bandaríkjamenn þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi. 20.9.2026 16:25
Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Hvalveiðivertíð Hvals hf. er lokið. Hvalbátarnir eru komnir til hafnar í Reykjavík. Í Hvalfirði er unnið að því að vinna hráefni síðustu hvalanna. 20.9.2026 15:49
Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Bæjarráð Kópavogs skorar á ríki og sveitarfélög að takmarka gjaldskrárhækkanir gagnvart barnafjölskyldum. Bæjarstjórinn segir það vonbrigði að ríkið hækki allar gjaldskrár um 5,2 prósent. Við náum ekki tökum á verðbólgunni ef ríkið keyrir upp sínar gjaldskrár langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. 20.9.2026 14:29
Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni og stórfellt brot í nánu sambandi gegn barnabarni sínu, stúlku á ótilgreindum aldri. Brotið átti sér stað á heimili afans. 20.9.2026 13:43
Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Stjórnmálaleiðtogar Danmerkur og Grænlands halda nú til Bandaríkjanna til að undirrita samkomulag um framtíð varnarmála á Grænlandi. 20.9.2026 11:47