Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Stofna ó­háðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum

Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir munu stofna óháðan borgarstjórnarflokk sem þau munu sitja í út kjörtímabilið. Þau munu þó líta á sig sem borgarfulltrúa Miðflokksins í ræðu og riti. Það liggur fyrir að Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins mun víkja þeim úr ráðum og nefndum.

Brynja Dan í ó­vissu um oddvitasætið í Garða­bæ

Það stefnir í talsverða spennu hjá Framsóknarflokknum í Garðabæ á laugardag þegar uppstillingarnefnd kynnir lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Eins og staðan er í dag er vitað til þess að tveir hafi boðið sig fram sem oddvita flokksins, Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi flokksins í Garðabæ, og Hlynur Bæringsson varamaður hennar.

Krist­rún vísar þögn um ESB-málið á bug

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekki ætla að liggja á skoðunum sínum varðandi þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið, þvert á fullyrðingar pólitískra andstæðinga hennar þar um.

Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið

Síðustu sex árin hefur íslenska krónan oftar en ekki sveiflast minna en ýmsir aðrir gjaldmiðlar, þar á meðal bandarískur dollar, Evran og breska pundið. Íslenska krónan hefur því ekki verið stór áhrifavaldur í því verðbólguástandi sem Íslendingar fást við í dag heldur sinnt sínu hlutverki vel sem fljótandi gjaldmiðill sem mýkir hagsveiflur.

Ó­þolandi tafir vegna á­greinings við land­eig­endur heyri sögunni til

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fór mikinn á iðnþingi Samtaka iðnaðarins í dag þar sem hann boðaði róttækar breytingar á raforkulögum. Breytingar miða að því að ágreiningur við landeigendur tefji ekki þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir um mörg ár.

Hag­kerfið allt í hættu

„Það þarf að hafa verulegar áhyggjur því þetta mun hafa gríðarlegar afleiðingar,“ segir Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs um þær hækkanir sem hafa orðið á heimsmarkaðsverði olíu síðustu daga vegna átakanna í Íran.

Sjá meira