Samherji á nú aðild að fimmtungi heildarkvótans Með kaupum Síldarvinnslunnar á Vísi á Samherji aðild að fimmtungi heildarveiðiheimilda í landinu sem er verulega yfir lögbundnum viðmiðum. Forsætisráðherra hefur áhyggjur af samþjöppun í sjávarútvegi, tilfærslu veiðiheimilda og auðssöfnun fárra í greininni. 12.7.2022 19:00
„Þetta er grundvallarástæðan fyrir því að svo margir eru ósáttir við kvótakerfið“ Forsætisráðherra hefur áhyggjur af samþjöppun í sjávarútvegi í ljósi kaupa Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík. Kaupin sýni hvernig gríðarlegur auður getur safnast á fárra manna hendur vegna kerfis sem var búið til fyrir tugum ára. Fjármálaráðherra segir að sameiningar í sjávarútvegi hafi reynst þjóðarbúinu vel. 12.7.2022 13:01
Blendnar tilfinningar og gríðarlegir hagsmunir í húfi Forseti bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar segist hafa blendnar tilfinningar um kaup Síldarvinnslunnar á sjávarútvegsfyrirtækinu Vísir. Alls starfa 230 íbúar Grindavíkur hjá fyrirtækinu. 11.7.2022 21:42
Hafnar því að verið sé að koma kvóta milli kynslóða Forstjóri Síldarvinnslunnar er ánægður með kaup félagsins á Vísi. Fyrirtækið dansi á línunni í kvótaviðmiðum en þau muni aðlaga heimildir eftir þeim ramma sem þeim er sniðinn. Framkvæmdastjóri Vísis segir sameiningu fyrirtækjanna fela í sér eflingu starfseminnar og hafnar því að með sölunni sé verið að koma kvóta til næstu kynslóða. 11.7.2022 17:22
Hvert barn fær um 3,3 milljarða í sinn hlut fyrir Vísi Síldarvinnslan í Neskaupsstað hefur keypt allt hlutafé í sjávarútvegsfyrirtækinu Vísi í Grindavík. Kaupverðið er tuttugu milljarðar króna og yfirtekin lán ellefu milljarðar króna. Eigendur Vísis fá sex milljarða greitt í reiðufé og eignast átta prósenta hlut í Síldarvinnslunni 11.7.2022 13:17
Allt að þrefalt dýrara í hárri verðbólgu að taka verðtryggt húsnæðislán Höfuðstóll verðtryggðra húsnæðislána hækkar hratt þessa dagana vegna mikillar verðbólgu. Umboðsmaður skuldara segir afar mikilvægt að lántakendur séu meðvitaðir um áhættuna sem felist í slíkum lánum. Stærsti hluti húsnæðislána hjá lífeyrissjóðum er verðtryggður. 6.7.2022 19:05
Skothríð í verslunarmiðstöð í Kaupmannahöfn Skotmaður vopnaður haglabyssu hóf skothríð inni í verslunarmiðstöðinni Field's í Kaupmannahöfn upp úr sex að staðartíma í dag. Lögreglan segir að nokkrir séu látnir eftir árásina og nokkrir særðir. Þá hefur 22 ára danskur karlmaður verið handtekinn vegna málsins. 3.7.2022 16:25
Hægt að ná hæstu tindum ef fólk vinnur saman í hópflæði Doktor í sálfræði segir að með því að kenna fólki nýja nálgun í samvinnu og hópvinnu sé hægt að ná fram mun betri afköstum og starfsánægju á vinnustöðum. Í flóknari verkefnum sé ákjósanlegast að hafa ekki fleiri en 4-6 í hópi. 3.7.2022 07:01
Telur Íslendinga ofnota þunglyndislyf og mælir með núvitund Einn virtasti prófessor samtímans í sálfræði og geðlækningum telur Íslendinga ofnota þunglyndislyf. Hann bendir á að rannsóknir hafi sýnt að dagleg hugleiðsla í stuttan tíma geti haft mun jákvæðari áhrif á andlega heilsu fólks til lengri tíma en lyf. 1.7.2022 19:00
Þurfi að endurhugsa geðheilbrigðismálin Sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu segir mikilvægt að bregðast við aukinni vanlíðan hjá Íslendingum. Það skjóti skökku við að niðurgreiða aðeins þunglyndis-og kvíðalyf en ekki sálfræðiþjónustu. 1.7.2022 13:00