Varafréttastjóri

Árni Sæberg

Árni er varafréttastjóri á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flug­stöðinni

Nýjar stoppistöðvar hafa verið settar upp á tveimur stöðum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar, merkingar bættar og gönguleiðin að almenningsvögnum fyrir farþega sem eru að koma úr flugi er nú yfirbyggð. Eftir breytingar verða þrjár stoppistöðvar við flugstöðina en í dag er ein stoppistöð fyrir almenningsvagna, í talsverðri fjarlægð frá flugstöðinni.

Dæmdur fyrir mann­dráp af gá­leysi við Vík

Erlendur karlmaður hefur verið dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir manndráp af gáleysi, með því að verða valdur að banaslysi á Suðurlandsvegi við Vík í júní. Aðstandendur hins látna krefja manninn um tæplega fimmtíu milljónir króna í skaða- og miskabætur.

Á­rásin rann­sökuð sem til­raun til manndráps

Karlmaður sem réðst á konu í heimahúsi í Engihjalla í Kópavogi á mánudagskvöld beitti hnífi við árásina og konan var í lífshættu um tíma. Málið er rannsakað sem tilraun til manndráps.

Af­greiðsla launakrafna Play fyrir­huguð 16 mánuðum eftir fallið

Ábyrgðasjóður launa ráðgerir að hefja afgreiðslu launakrafna vegna Play 1. febrúar á næsta ári, rúmum sextán mánuðum eftir að flugfélagið hætti starfsemi. Bjarki Þór Runólfsson forstöðumaður sjóðsins segir að stefnt sé að því að ljúka afgreiðslunni 15. mars.

Ráð­gjöf Heiðu Kristínar kostaði fjór­tán milljónir

Utanríkisráðuneytið greiddi félagi Heiðu Kristínar Helgadóttur og eiginmanns hennar alls fjórtán milljónir króna vegna sérlegrar ráðgjafar hennar við utanríkisráðherra í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hún starfaði fyrir ráðuneytið í sex mánuði.

Gæslu­varð­hald sonar þing­mannsins aftur fram­lengt

Karlmaðurinn sem grunaður er um að hafa banað föður sínum í Kópavogi þann 26. júlí síðastliðinn hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. október á grundvelli almannahagsmuna. Hinn látni var eiginmaður þingmanns.

Þrota­bú Play krefur Einar um skaða­bætur

Skiptastjórar þrotabús flugfélagsins Play hafa höfðað mál á hendur flugvélaleigusala félagsins fallna og Einari Erni Ólafssyni, fyrrverandi forstjóra og eins eigenda félagsins. Þess er krafist að greiðslum til flugvélaleigunnar verði rift og þrotabúinu verði dæmdar skaðabætur vegna þeirra.

Aðal­með­ferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi

Aðalmeðferð er hafin í máli grísks karlmanns sem er ákærður fyrir að drepa portúgalskan karlmann á Kársnesi í Kópavogi í nóvember. Hann er sagður hafa stungið og skorið fórnarlamb sitt á háls. Fórnarlambið er sagt hafa látist vegna meiriháttar blóðmissis.

Fella niður rann­sókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fellt niður rannsókn á E. coli-sýkingu á leikskólanum Mánagarði, án útgáfu ákæru. Einn var með réttarstöðu sakbornings svo mánuðum skipti vegna gruns um líkamsmeiðingar af gáleysi. 

Sjá meira