Fréttamaður

Árni Sæberg

Árni er viðskiptafréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar

Mál Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á hendur Margréti McArthur Friðriksdóttur verður flutt munnlega á ný klukkan 14. Ástæðan er sú að ekki tókst að kveða upp dóm í málinu innan fjögurra vikna frá málflutningi, líkt og kveðið er á um í lögum um meðferð sakamála.

Ís­land sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildar­við­ræður

Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum.

Þjóðar­at­kvæða­greiðslan fer fram 29. ágúst

Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fer fram þann 29.ágúst, að því gefnu að þingsályktunartillaga þess efnis verði samþykkt. Mælt verður fyrir þingsályktunartillögunni í upphafi næstu viku.

Bein út­sending: Kynna lista Við­reisnar borginni

Viðreisn í Reykjavík kynnir lista sinn fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor við hátíðlega athöfn í Laugarnesskóla klukkan 18. Sjá má beina útsendingu frá viðburðinum hér á Vísi.

Dómur barnaníðingsins Brynjars stað­festur

Brynjar Joensen Creed hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Landsrétti fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán stúlkum. Dómurinn er til viðbótar við sjö ára dóm sem hann hlaut í Hæstarétti í fyrra fyrir fjölmörg kynferðisbrot gegn ungum stúlkum.

Bein út­sending: Iðnþing 2026

Iðnþing Samtaka iðnaðarins, sem ber yfirskriftina Finnum samhljóminn, hefst klukkan 14 í Silfurbergi í Hörpu. Beina útsendingu frá þinginu má sjá á Vísi.

And­stæðingum borgarlínu hafi verið bolað af lista

Kjartan Magnússon, fráfarandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að andstæðingum borgarlínunnar í borgarstjórnarflokknum hafi verið bolað af lista fyrir komandi kosningar, eða færðir lengst niður. Þau Marta Guðjónsdóttir bókuðu á borgarstjórnarfundi á dögunum að réttast væri að hætta við verkefnið eins og það leggur sig.

Skrif­stofu­stjórinn fær ekki á­heyrn og situr uppi með feitan reikning

Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, fær ekki áheyrn Hæstaréttar í deilu hans við Landsbankann. Páll tapaði greiðslukorti sínu í París í Frakklandi og óprúttnir aðilar náðu tæpum 600 þúsund krónum út af reikningi hans. Landsréttur taldi Pál hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi og Landsbankinn þyrfti því ekki að endurgreiða honum fjármunina.

Sjá meira