Frekari ESB-umræður í þinginu Fyrsta umræða um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu heldur áfram á Alþingi á þingfundi dagsins. Málið var rætt langt fram á kvöld í gærkvöldi. 10.3.2026 13:30
„Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Fjármálaráðherra boðar enn aðgerðir gegn verðbólgu á næstu dögum, líkt og hann gerði fyrir tæpum tveimur vikum. Þá segir hann blasa við öllum að athugasemdir Samtaka atvinnulífsins muni engum árangri skila í baráttunni. 10.3.2026 12:15
Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri Víðistaðaskóla í Hafnarfirði, snýr ekki aftur til starfa í skólanum. Hún var send í leyfi í nóvember á meðan ráðist var í úttekt á stjórnunarháttum í skólanum. Úttekt sem kostaði 3,9 milljónir króna. 10.3.2026 11:10
Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Lögreglan hefur dregið rafbyssur fram hundrað sinnum frá því að þær voru teknar í notkun í september árið 2024. Vopnunum hefur þó aðeins verið beitt ellefu sinnum við handtöku. 10.3.2026 10:09
Innleiða gervigreindina í MS Menntaskólinn við Sund og upplýsingatæknifyrirtækið Apró hafa gert með sér samning um víðtækt þróunarsamstarf á sviði gervigreindar. Samstarfið lýtur annars vegar að innleiðingu á Vitanum, öruggu gervigreindarumhverfi fyrir nemendur og starfsfólk, og hins vegar að ráðgjöf og stefnumótun fyrir þróun kennslu og náms í gervigreind. 10.3.2026 09:07
Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Þingmenn stjórnarandstöðunnar fara hörðum orðum um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra vegna ákvörðunar hennar um að bera þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB ekki undir utanríkismálanefnd. Þeir segja það brot á þingsköpum en stjórnarliðar vísa því alfarið á bug. Hún biður stjórnandstöðuna um að treysta þjóðinni „í guðanna bænum.“ 9.3.2026 16:10
Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælir fyrir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu á þingfundi dagsins, sem hefst klukkan 15. Ætla má að hart verið tekist á um málið og fylgjast má með fundinum í beinni á Vísi. 9.3.2026 14:48
Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Niðurrif húsa í Grindavík hófst í morgun en alls er áætlað að rífa á milli 35 og 40 altjónuð hús sem skemmst hafa í jarðhræringunum síðustu misseri. 9.3.2026 14:10
Opna Lindex þar sem Útilíf var S4S hefur undirritað leigusamning við Smáralind um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Rýmið er 675 fermetrar að stærð og er staðsett við hlið Hagkaupa í Smáralind, þar sem Útilíf var áður til húsa. 9.3.2026 13:08
Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Samtök atvinnulífsins standa fyrir hádegisfundi um áhrif tengingar bóta við launavísitölu á vinnumarkað og ríkisútgjöld. Fylgjast má með fundinum í beinni útsendingu hér á Vísi. 9.3.2026 11:02