Myndi fara stystu leið upp í sveit Hægviðri er í kortunum víða um landið um helgina. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir að útlitið sé „bara þokkalegt.“ Hann myndi fara stystu leið upp í sveit um helgina. Innlent 9. ágúst 2024 23:45
Hæglætisveður um helgina Um helgina verður hæglætisveður um helgina. Það verður skýjað með köflum og lítilsháttar væta af og til í flestum landshlutum og milt. Norðan til á landinu verður hins vegar fremur þungbúið og svalt í dag, en það ætti að birta til og hlýna þar á morgun. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. Veður 9. ágúst 2024 07:12
Milt veður fram að og um helgi en svo tekur djúp lægð við Það verður hæg norðlæg eða breytileg átt í dag og á morgun. Það verður fremur þungbúið norðan- og austanlands og svalt, en bjartara sunnan heiða og mildara. Hiti er á bilinu 7 til 17 stig. Þetta kemur frami hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. Veður 8. ágúst 2024 09:55
Ísland gæti kólnað þrátt fyrir hlýnun á heimsvísu Undanfarið hafa margir eflaust velt því fyrir sér hvernig standi á því að sumarið hafi verið svo alíslenskt í Reykjavík í ár og víðar fyrst hnötturinn okkar hlýnar. Til að mynda var heimshitamet slegið þann 22. júlí síðastliðinn og svo aftur daginn eftir en áhrifa þessarar hlýnunar virðist ekkert gæta hér á landi. Veður 7. ágúst 2024 15:43
Myndaveisla: Loksins lét sú gula sjá sig Veðrið hefur leikið landsmenn grátt í sumar, víðast hvar skýjað dag eftir dag eftir dag. Á vestan- og sunnanverðu landinu lét sólin þó loksins sjá sig þó margir séu farnir aftur til vinnu eftir sumarfrí. Gleðin skein úr hverju andliti í höfuðborginni í dag þegar Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari fréttastofunnar fór á stúfana. Lífið 7. ágúst 2024 15:37
Lokað vegna linnulausrar rigningar Tjaldsvæðinu í Reykholti hefur verið lokað vegna mikilla rigninga. Framkvæmdastjóri segir þetta gert til að verja grasið og jarðveginn en nær linnulaus væta hefur verið þar að undanförnu. Innlent 7. ágúst 2024 12:47
Útlit fyrir rólegt veður fram á föstudag Spáð er hægu og rólegu veðri á landinu í dag og á morgun. Hiti á Suður- og Suðvesturlandi, þar sem verður bjartara yfir en annars staðar á landinu, gæti náð allt að átján stigum þar sem best lætur í dag. Veður 7. ágúst 2024 07:22
Rólegra veður en líkur á síðdegisskúrum Spáð er rólegra veðri í dag en undanfarna daga með hægri austlægri eða breytilegri átt. Bjart verður með köflum en líkur á síðdegisskúrum allvíða. Áfram er þó spáð leiðinlegu veðri á Suðausturlandi með norðaustan kalda eða strekkingi og rigningu öðru hverju. Veður 6. ágúst 2024 07:26
Dregur úr vindi með morgninum Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, í Breiðafirði, Ströndum, Norðurlandi vestra, Faxaflóa og á Austfjörðum. Spáð er norðaustan 10 - 18 m/s, hvassast norðvestan til, og talsverðri eða mikilli rigningu á Austfjörðum og Ströndum. Veður 5. ágúst 2024 07:37
Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Búist er við talsverðri rigningu í kvöld á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Það styttir upp snemma í fyrramálið á frídegi verslunarmanna. Innlent 4. ágúst 2024 19:05
Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum Gular veðurviðvaranir ganga í gildi víða á Suður- og Austurlandi síðdegis í dag og í kvöld. Búist er við norðaustan hvassviðri eða storm syðst á landinu síðdegis með snörpum vindhviðum við fjöll. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hvetur ferðalanga til að fylgjast vel með veðri og aðstæðum áður en lagt er af stað. Þá er búist er við úrhellis rigningu á Suðausturlandi og Austfjörðum á morgun með tilheyrandi skriðuhættu. Sumarið hefur verið mjög blautt og jarðvegur víða mettaður sem eykur lýkur á skriðuföllum að sögn sérfræðings. Innlent 4. ágúst 2024 13:56
Leiðindaveður um allt land vegna djúprar lægðar Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða rigningar taka gildi á landinu sunnan- og austanverðu í dag. Djúp lægð stefnir að landinu og veldur leiðindaveðri um landið allt Veður 4. ágúst 2024 08:17
Kom úr sundi að brotnu tjaldinu „Við vorum í sundi og komum bara að þessu þegar allt var komið í sundur,“ segir Friðrik Dúi Þórólfsson 21 árs þjóðhátíðargestur. Hann er á meðal þeirra fjölmörgu sem veðrið í Eyjum hefur leikið grátt. Innlent 3. ágúst 2024 19:35
Önnur djúp lægð á leiðinni Önnur djúp lægð er á leiðinni til landsins á morgun með tilheyrandi leiðindaveðri um allt land, að því er fram kemur í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofunnar. Veður 3. ágúst 2024 18:04
Gul viðvörun í Eyjum fram á kvöld og leiðindaspá áfram Austan eða norðaustan hvassviðri er nú á landinu sunnanverðu og Miðhálendinu og eru gula viðvaranir í gildi vegna þess. Viðvörun tekur gildi í Vestmannaeyjum og Suðurlandi nú klukkan 10:00 og gildir til 18:00. Varað er við að tjöld gætu fokið. Veður 3. ágúst 2024 07:47
Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Framkvæmdastjóri Herjólfs segir mikinn vind og töluverða ölduhæð á morgun ekki hafa áhrif á ferðir Herjólfs fyrir Þjóðhátíð. Gripið hefur verið til sérstakra ráðstafanna á hátíðinni til að bregðast við veðurspánni en formaður Þjóðhátíðarnefndar segir Íslendinga sem betur fer vera öllu vanir. Innlent 2. ágúst 2024 12:03
Úrkoman í júlí sló met Óvenjublautt var á vestanverðu landinu í júlí. Á nokkrum úrkomustöðvum var úrkoman sú mesta sem mælst hefur. Þetta kemur fram í yfirliti Veðurstofu Íslands yfir tíðarfarið í júlí. Innlent 2. ágúst 2024 09:55
Alldjúp lægð færir með sér gula viðvörun Gul viðvörun hefur verið gefin út vegna veðurs á Suðurlandi og Suðausturlandi á morgun vegna hvassviðris. Viðvörunin er í gildi frá klukkan sex í fyrramálið til fjögur á Suðurlandi þar sem gert er ráð fyrir fimmtán til tuttugu metrum á sekúndu með snörpum vindhviðum syðst á svæðinu, einkum í Vestmannaeyjum og undir Eyjafjöllum. Varað er við því að tjöld og lausamunir geti fokið. Veður 2. ágúst 2024 07:48
Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Sálfræðingur segir slæmt sumarveður geta haft neikvæð áhrif á líðan en einnig látið fólk finna fyrir létti. Erfitt geti verið fyrir foreldra að hlaða batteríin í fríi með börnum og mikilvægt að viðurkenna að það fylgi því vinna að sinna þeim. Ef fólki líði illa með að sumarið hafi ekki staðið undir væntingum geti verið ástæða til að líta inn á við. Innlent 2. ágúst 2024 07:01
Byrjar að rigna fyrir norðan en dregur úr vætu fyrir sunnan Spáð er rigningu norðanlands en minnkandi vætu sunnan heiða í dag. Við upphaf verslunarmannahelgar er útlit fyrir rigningu í flestum landshlutum og stífri austan- og norðaustanátt. Veður 1. ágúst 2024 08:56
Besta veðrið um verslunarmannahelgina? Útlit er fyrir nokkuð úrkomusama verslunarmannahelgi, þar á meðal í Vestmannaeyjum. Á Vesturlandi og suðvesturhorni verður ágætis veður að sögn Einar Sveinbjörnssonar veðurfræðings hjá blika.is. Hann vill ekkert gefa upp um það hvar hann verður staddur um helgina. Veður 31. júlí 2024 21:25
Verulega hvasst í Eyjum á laugardaginn Það er hætt við því að þeir sem eiga ferð með Herjólfi til Vestmannaeyja á laugardaginn fái aðeins í magann yfir veðurspánni. Hún hljóðar upp á 23 m/s í hádeginu en á að lægja með deginum þótt töluvert blási. Innlent 31. júlí 2024 10:51
Viðvaranir í gildi og vindasamt og blautt framundan Gular viðvaranir vegna hvassviðris tóku gildi við Breiðafjörð í nótt og við Faxaflóa og á Suðurlandi í morgun. Reikna má með vindasömu og blautu veðri en nokkuð hlýju næstu daga. Veður 31. júlí 2024 07:57
Illvænlegar vendingar á veðurspánni fyrir helgina Illvænlegar vendingar hafa orðið á veðurspánni fyrir verslunarmannahelgina að mati Einar Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Veður 30. júlí 2024 11:47
Hægt veður í dag en myndarleg lægð á leiðinni Spáð er hægri vestlægri átt og úrkomulitlu veðri á landinu í dag. Myndarleg og óvenju djúp lægð er hins vegar sögð taka völdin á morgun og næstu daga. Veður 30. júlí 2024 08:20
Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Það stefnir í einn besta dag sumarsins í Reykjavík um verslunarmannahelgina. Enn önnur lægðin er við landið og veldur rigningu og hlýjum blæstri um næstu helgi. Innlent 29. júlí 2024 12:13
Enn hætta á vatnavöxtum en dregur úr rigningunni Dregið hefur úr rigningu á sunnanverðu landinu en enn má búast við vatnavöxtum í Þórsmörk og nágrenni vegna hennar. Vatnsmagn jókst í ám á svæðinu í nótt samkvæmt mælitækjum og gæti haldið áfram í dag á þeim svæðum sem Veðurstofan telur ástæðu til að fylgjast með á Suðurlandi, Suðausturlandi og miðhálendinu. Veður 29. júlí 2024 07:30
Gul viðvörun vegna mikillar rigningar Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun á Suðurlandi, Suðausturlandi og á Miðhálendinu vegna mikillar rigningar. Veður 27. júlí 2024 23:31
Áfram vætusamt og skýjað um helgina Spáð er suðlægri eða breytilegri átt 3-10 m/s í dag. skýjað að mestu og dálítil væta á víð og dreif. Bætir í rigningu á Suður- og Vesturlandi seinnipartinn. Hiti víða 10 - 15 stig. Veður 27. júlí 2024 08:33
Hvernig skal takast á við slæma veðrið Veðrið á Íslandi í sumar hefur vægast sagt valdið vonbrigðum. Fullyrðingar um frábært sumar gerði landsmenn spennta og vonbrigðin vegna sólarleysis leyna sér ekki. Sálfræðingar segja þó að ýmislegt sé hægt að gera til að auka hamingjuna í slæma veðrinu. Lífið 26. júlí 2024 12:35