Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. maí 2026 10:53 Landsmenn liggja sem á bæn í von um að sumarið verði gott þegar kemur að veðrinu. Vísir/Anton Brink Veðurfræðingur segir landsmenn eiga von á hlýrra veðri eftir tæpar tvær vikur. Hann sér hagstætt sumar í kortunum og fólk þurfi ekki að óttast sumar á borð við árið 2024 sem margir landsmenn gráta enn. „
Nú er staðan þannig að við erum í bölvanlegri tíð, það verður ekkert hægt að segja það öðruvísi,“ segir Sigurður Ragnarsson veðurfræðingur sem var fenginn til að rýna í sumarveðrið í Bítinu á Bylgjunni. „Það er frost á landinu sums staðar og hiti um kringum núllið hér í Reykjavík snemma í morgun. Það dregur úr þessu strax á sunnudaginn og það verður skaplegra í framhaldinu.“ Hann segir að veðrið verði í framhaldinu nokkuð brokkgengt en þó batamerki. „Síðan er að sjá að í kringum 21. eða 22. maí, dagsetningin getur aðeins hnikast til, að það komi alvöru hlýindi yfir landið. Eitthvað sem minnir á að sumarið sé svona á næsta leiti,“ segir Sigurður. Hann segir í góðu lagi að fólk fagni því þegar „alvöru hlýindi“ séu á leiðinni. Eitthvað í kringum 15–18 stigin á Norðausturlandi að minnsta kosti. „Við erum að tala um 15 til 20 stig svona þegar best lætur og ef allt fer á besta veg.“ Hlýjast verði fyrir norðan og austan. Sigurður hefur rýnt í veðrið hér á landi um árabil og má segja að um áhættuatriði sé að ræða. Hann lofaði, eins langt og það nær, góðu sumri árið 2024 en það rættist því miður víðast hvar ekki. „Það verður engu að síður hlýtt í borginni og sunnanlands og vestan. En ég er svolítið hræddur við að það gæti orðið þar væta. En það er allt of snemmt að fara að spá í hvað klukkan hvað rignir svona langt fram í tímann.“ Gengið verður til kosninga 16. maí og á Sigurður von á blautum kjördegi suðvestan- og vestanlands. Annars staðar verði þurrt og hægur vindur. „Það er nú þannig að í könnun sem ég gerði fyrir mörgum árum skoðaði ég úrslit kosninga og síðan veðurlag, veðrið á kjördag. Það kemur í ljós að vinstrimenn eru kraftmeiri í að mæta þótt veður séu válynd eða veður sé ekki gott en hægrisveiflan kemur meira með góða veðrinu. Þá fara fleiri út, eldri borgarar og fleiri kannski út að leika og kjósa í leiðinni.“ Sigurður var spurður að því hvort hætta væri á því að sumarið 2024 myndi endurtaka sig. Landsmenn gráta margir hverjir sumarið 2024 þótt það fari vissulega eftir landshlutum. Fínasta veður var stóran hluta sumars á Austurlandi. „Nei, nei, nei, það er ekki að endurtaka sig. Við megum ekki gleyma því að það var hitabylgja í maí í fyrra og þá nutu menn þess að sumarið lengdist bara um tvær vikur miðað við það sem við eigum að venjast og þetta var alveg yndislegasta sumar þó að það hafi auðvitað komið viðeigandi dagar inn á milli. Ég er ekkert að spá neinu um slíkt eins og var 2024 og raunar þvert á móti. Mér sýnist að sumarið verði okkur hagfellt í alla staði.“ Vendipunktur verði í kringum 21. maí þegar hlýni í veðri.
Veður Bítið Mest lesið Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Fleiri fréttir Þúsund myndavélar fylgjast með því sem fram fer á flugvellinum Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Sjá meira