Úkraína

Úkraína

Höfuðborg: Kænugarður. Mannfjöldi: 36,7 milljónir (2025). Flatarmál: 603.500 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Þúsundir Úkraínu­manna mót­mæla hrókeringum Selenskís

Þúsundir Úkraínumanna hafa í dag mótmælt í borgum víða í heimalandinu í kjölfar þess að Volodimír Selenskí Úkraínuforseti lét varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedorov óvænt taka pokann sinn í gær. Fedorov hafði verið ráðherra í hálft ár og ekki liggur fyrir hvers vegna hann var látinn fara.

Innlent
Fréttamynd

Úkraínu­menn uppi­skroppa með loft­varnar­flug­skeyti

Alvarlegur skortur á flugskeytum í bandarískt loftvarnarkerfi leiddi til þess að Úkraínumenn gátu ekki stöðvað neina þeirra rúmlega tuttugu skotflauga sem Rússar skutu á Kænugarð í nótt. Tæplega tuttugu manns létust í árásum næturinnar.

Erlent
Fréttamynd

Ræddi við bæði Pútín og Selenskí

Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddi bæði við Volodimír Selenskí Úkraínuforseta og Vladimír Pútín Rússlandsforseta símleiðis í dag, á 250 ára afmæli Bandaríkjanna. Þeir ræddu meðal annars stöðuna á víglínu Úkraínu og framtíðarhorfur Bandaríkjahers í Íran.

Erlent
Fréttamynd

Óttast rúss­neskar ögranir gegn Eystra­salts­ríkjunum

Tvö Atlantshafsbandalagsríki vara við því að stjórnvöld í Kreml kunni að ráðast til atlögu gegn Eystrasaltsríkjunum eða Póllandi til þess að láta reyna á samstöðu bandalagsins. Örvænting vegna hrakfara Rússa í stríðinu gegn Úkraínu kunni að drífa þá áfram til þess.

Erlent
Fréttamynd

„Ég vil gera frá­bæra hluti eins og ég sé í sjón­varpinu“

Petro Gurido er úkraínskur töframaður sem ólst upp í Donetsk-héraði í Úkraínu. Hann naut mikillar velgengni sem töframaður áður en Rússar réðust inn í Úkraínu og ferðaðist um heiminn. Hann bjó til að mynda til töfrabrögð fyrir America’s Got Talent. Hann flúði Úkraínu fyrir tæpu ári síðan og undirbýr nú sjónhverfingasýningu í Keflavík. 

Lífið
Fréttamynd

Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu

Langdrægur úkraínskur dróni er sagður hafa hæft olíuhreinsistöð í grennd við Moskvu. Forseti Úkraínu segir þetta svar við árásum Rússa en þeir drápu ellefu manns og skemmdu dómkirkju í Kænugarði í dróna- og flugskeytaárás í gær.

Erlent
Fréttamynd

Réðust á dóm­kirkjuna í Kænu­garði

Níu eru látnir og tugir særðir eftir árásarhrinu Rússa í Úkraínu í nótt. Fjórir létu lífið í höfuðborginni Kænugarði og í borginni Kharkiv fórust fimm slökkviliðsmenn sem voru að reyna að slökkva í húsi sem brann eftir rússneska árás.

Erlent
Fréttamynd

Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heims­styrj­öldin

Innrás Rússa í Úkraínu, sé hún talin hafa byrjað þann 24. febrúar 2022, hefur nú staðið yfir lengur en fyrri heimsstyrjöldin. Í gær hafði innrásin staðið yfir í 1.569 daga eða rúmlega fjögur ár og þrjá mánuði en ráðamenn í Rússlandi töldu upprunalega að Úkraína myndi falla í þeirra hendur á nokkrum dögum.

Erlent