Tottenham Hotspur

Tottenham Hotspur

Fréttir af enska fótboltaliðinu Tottenham Hotspur FC frá London.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

De Zerbi tekinn við Tottenham

Roberto De Zerbi hefur verið ráðinn þjálfari enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham. Hann skrifar undir fimm ára samning í Norður-Lundúnum og er þriðji stjóri liðsins á tímabilinu.

Enski boltinn
Fréttamynd

„Þeir eru líka að skíta á sig“

Í síðasta þætti af Sunnudagsmessunni á Sýn Sport var farið vel yfir lygilegan meiðslalista Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. Mikil meiðsli hafa herjað á Spurs á tímabilinu en liðið situr nú í 16. sæti deildarinnar með 30 stig.

Enski boltinn
Fréttamynd

Peter Schmeichel: „Hann rústaði ferli hans“

Fjöldi markvarða, þar á meðal Peter Schmeichel og Joe Hart, hafa lýst yfir stuðningi við Antonín Kinsky, markvörð Tottenham Hotspur, eftir skelfilega frammistöðu hans í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Atlético Madrid.

Enski boltinn
Fréttamynd

Hjör­var ó­sam­mála goð­sögn í hita­máli dagsins

Hjörvar Hafliðason, helsti sparkspekingur þjóðarinnar, er ósammála stórum prófílum í knattspyrnuheiminum sem hafa gagnrýnt Igor Tudor, knattspyrnustjóra Tottenham harðlega fyrir það hvernig hann tók á aðstæðum í gær þegar að markmaður Tottenham hafði gerst ítrekað sekur um slæm mistök. Hjörvar telur Tudor hins vegar ekki stætt lengur í starfi.

Fótbolti
Fréttamynd

„Þú ert bara að niður­lægja þinn eigin leik­mann“

Antonin Kinsky, 22 ára markvörður Tottenham, upplifði algjöra martröð í Meistaradeildinni í gærkvöldi þegar hann var tekinn af velli á sautjándu mínútu eftir að hafa gefið tvö mörk og fengið á sig þrjú. Kinsky og skiptingin voru til umræðu í Meistaradeildarmörkunum eftir leikinn.

Fótbolti
Fréttamynd

Tottenham í martraðarlandi og dagar Tudor taldir?

Tottenham er í afar erfiðri stöðu eftir stórt tap gegn Atletico Madrid á útivelli í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Dagar Igor Tudor í starfi knattspyrnustjóra liðsins gætu verið taldir. Lokatölur í kvöld 5-2 sigur Atletico Madrid.

Fótbolti