Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Stefán Árni Pálsson skrifar 18. september 2026 15:02 Richarlison er fastur í frystikistu hjá Tottenham. Getty/Marc Atkins Richarlison verður áfram hjá Tottenham eftir að Vasco da Gama reyndi að fá brasilíska framherjann heim á lokadögum félagaskiptagluggans.
Admar Lopes, framkvæmdastjóri knattspyrnumála hjá brasilíska félaginu, greindi frá því að félagið hefði lagt mikið undir til að ná samningum við Richarlison en leikmaðurinn sjálfur hefði hafnað tilboðinu. „Við reyndum allt,“ sagði Lopes. Vasco da Gama hafi upphaflega skoðað möguleikann á lánssamningi eftir að hugmyndin kom frá fólki í kringum leikmanninn. Sá möguleiki reyndist hins vegar ekki framkvæmanlegur vegna reglna um alþjóðleg félagaskipti. Vasco skipti því yfir í að reyna að kaupa Richarlison alfarið og tókst félaginu að tryggja fjármögnun fyrir slíku tilboði á aðeins tveimur til þremur dögum. „Við lögðum í raun fram kauptilboð, en leikmaðurinn samþykkti ekki skilmálana. Við reyndum fram á síðasta dag og gerðum allt sem í okkar valdi stóð til að sannfæra hann, en hann sagði að þetta væri ekki rétti tíminn til að snúa aftur til Brasilíu,“ sagði Lopes. Richarlison, sem er mikill stuðningsmaður Vasco frá æsku, var einnig í viðræðum við Everton fyrr í sumar um endurkomu til félagsins. Þær viðræður sigldu hins vegar í strand vegna þess að ekki náðist samkomulag um persónulega skilmála. Trabzonspor sýndi einnig áhuga á leikmanninum en ekkert varð úr þeim skiptum. Í kuldanum hjá Tottenham Richarlison er nú í erfiðri stöðu hjá Tottenham. Hann er ekki í 25 manna leikmannahópi félagsins í ensku úrvalsdeildinni og Roberto De Zerbi hefur jafnframt sagt að Brasilíumaðurinn muni ekki fá tækifæri í deildabikarnum. De Zerbi sagðist hafa reynt að sannfæra Richarlison um að vera áfram hjá Tottenham og jafnframt boðið honum nýjan samning í upphafi tímabils. Leikmaðurinn hafnaði því.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Fleiri fréttir Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Sjá meira