

Allt það nýjasta úr heimi tískunnar og fréttir af sviði hönnunar.
Leikkonur í Hollywood hafa ákveðið að klæðast svörtu á Golden Globes verðlaunahátíðinni í janúar til að sýna samstöðu gegn kynbundnu ofbeldi.
Demantar og 18 karata gull einkenna nýtt skart frá Orrifinn. Skartgripahönnuðurinn Helga G. Friðriksdóttir segir ákveðna áhættu fylgja því að vinna með svo dýrt efni en að nú sé rétti tíminn til að láta drauminn rætast.
Tónlistarparið Beyoncé og Jay-Z kann að gera vel við sig.
Það er ýmislegt sem gerist baksviðs á einum stærsta viðburði ársins.
Á meðal þeirra sem klæðst hafa hönnun Alaia í gegnum tíðina eru Naomi Campbell, Lady Gaga, Greta Garbo og forsetafrúin fyrrverandi Michelle Obama.
Það var stuð og stemning í útgáfuhófi sjötta tölublaðs HA, tímarits um íslenska hönnun og arkitektúr, á fimmtudaginn. Hófið var haldið í Marshall-húsinu sem hlaut Hönnunarverðlaun Íslands 2017 fyrr í mánuðinum.
Félagarnir Kormákur Geirharðsson og Skjöldur Sigurjónsson, mennirnir á bak við Herrafataverzlun Kormáks og Skjaldar, eiga sína dótturina hvor og hafa þær nú fetað í fótspor feðra sinna og reka saman Kvenfataverzlun Kormáks og Skjaldar.
Dóra Hansen hannar lampa, ljós og borð úr íslensku lerki úr Hallormsstaðaskógi og rekavið af Ströndum. Hún tekur þátt í Handverki og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur 23.-27. nóvember.
Fatamerkin Child og CCTV deila stúdíói þar sem sköpunargleðin ræður ríkjum. Þeir ætla að hræra upp í streetwear-markaðnum sem þeir segja staðnaðan. Á morgun halda þeir pop-up markað í stúdíóinu sínu út á Granda.
Stjörnurnar mættu í sínu fínasta pússi á CMA-verðlaunahátíðina.
Ester Auður Elíasdóttir hefur fjölbreyttan og litríkan fatastíl. Hún keypti sér armbönd fyrir fyrstu launin sem hún vann sér inn á sínum tíma, aðeins ellefu ára að aldri.
Þú ferð ekki í jólaköttinn í þessum dressum.
Íslenska fyrirtækið Monstri ehf. hefur handgert lítil ullarskrímsli úr afgangsefnum frá árinu 2011 sem hafa vakið lukku hjá bæði Íslendingum og erlendum ferðamönnum á Íslandi. En nú er fyrirtækið að færa út kvíarnar og fer alla leið til Japan.
Kynning: Hönnun – Leiðsögn í máli og myndum er vönduð og yfirgripsmikil bók fyrir alla unnendur klassískrar hönnunar. Í bókinni eru fallegar myndir og aðgengilegur texti um alþjóðlega og íslenska hönnun.
Leikkonan knáa er með skemmtilegan fatastíl sem auðvelt er að apa eftir.
Fatahönnuðirnir Aníta Hirlekar og Magnea Einarsdóttir reka verslunina og sýningarrýmið A.M.Concept Space. Í versluninni selja þær sína eigin hönnun ásamt því að setja upp nýjar listsýningar eftir ýmsa listamenn með reglulegu millibili.
Foreldrar handboltamannsins Arnars Freys höfðu mikil áhrif á fatastíl hans þegar hann var yngri.
"Það fannst mörgum það skrýtin ákvörðun að hætta í góðri vinnu til þess að flytja út á land,“ segir arkitektinn og húsgagnasmiðurinn Magnús Freyr Gíslason sem flutti ásamt fjölskyldu sinni á Sauðárkrók, meðal annars til að fá útrás fyrir sköpunargleðina.
Álfrún Pálsdóttir fór í gegnum klæðaburð helstu stjórnmálamanna landsins í sérstöku innslagi sem var í Risa stóra kosningaþættinum með Gumma Ben á Stöð 2 í kvöld.
Um helgina verða opnaðar tvær hönnunarsýningar en þær eiga rætur að rekja til ólíkra heimshluta.
Vigdís Ásgeirsdóttir söngkona hefur gaman af því að klæða sig upp á og ullarpeysukápa með hlébarðamynstri er uppáhaldsflíkin hennar.
Tískuhúsin Valentino og Bulgari, auk útgáfurisans Condé Nast, hafa lýst því yfir að þau hyggist hætta að vinna með ljósmyndaranum Terry Richardson.
Hönnuðurinn Ýr Jóhannsdóttir bíður spennt eftir að fá stafrænu prjónavélina sína í hendurnar en verið er að búa vélina til í Kína. Ýr mun eignast vél úr fyrsta upplagi og þarf að læra á tæknina í London.
Það hefur fyrir löngu sýnt sig og sannað að klæðaburður og ásýnd fólks skiptir miklu máli þegar það vill ná góðum árangri í pólitík. Í tilefni þess að það styttist í kosningar leitaði Lífið til nokkurra álitsgjafa sem sögðu sína skoðun á því hvaða frambjóðendur væru flottastir í tauinu.
Aðalheiður Birgisdóttir, aðalhönnuður hjá Cintamani, segir mikinn undirbúning að baki hverri einustu flík. Fötin eigi að vera flott, þægileg og hagnýt.
Kynning: Nýja vetrarlína ZO•ON byggir á fjölþættri notkun, vönduðum efnum og þægilegum sniðum. Línuna er hægt að nota bæði á götum borgarinnar og í útivist úti í náttúrunni.
Hönnuðurinn Erdem Moralioglu, maðurinn á bak við ERDEM, er nýjasti hönnuðurinn til að komast í það eftirsótta verkefni að vinna fatalínu með H&M. Innblásturinn kom úr ýmsum áttum við gerð línunnar, meðal annars frá flíkum sem hann klæddist sem barn og ullarpeysur línunnar eru dæmi um það.
Særós Mist Hrannarsdóttir saumaði, sýndi og seldi fyrstu fatalínuna sína síðasta árið í grunnskóla. Nú býr hún, nemur og starfar í Kaupmannahöfn, meðal annars fyrir hið þekkta tískufyrirtæki Monki.
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir er dansari og danshöfundur sem stendur fyrir litlu listahátíðinni Ég býð mig fram sem fram fer í Mengi. Hún segist vera að henda sér í alls kyns hlutverk þessa dagana.
Nú styttist í að nýjasta jólalína IKEA, eða réttara sagt vetrarlína, komi í verslanir. Það vill svo skemmtilega til að sú lína er innblásin af Íslandi og nokkrir íslenskir hönnuður lögðu sitt af mörkum við gerð línunnar.