Arnar Freyr samdi við Keflavík Arnar Freyr Jónsson skrifaði í gær undir samning við körfuknattleiksdeild Keflavíkur og mun hann leika með sínu gamla liði á næstu leiktíð. Samningurinn er til eins árs en Arnar missti af síðasta tímabili eftir að hafa slitið krossband hægra í hné en þá var hann leikmaður með úrvalsdeildarliði í Danmörku. Körfubolti 28. júlí 2011 11:00
Hrafn Kristjánsson þjálfari KR: KR leitar að nýjum leikstíl Bakvörðurinn Emil Þór Jóhannsson gekk í gær frá tveggja ára samningi við KR. Emil hefur verið lykilmaður í liði Snæfells undanfarin tvö tímabil. Körfubolti 19. júlí 2011 06:00
Emil Þór: Berjumst um alla titla "Ég er bara helvíti spenntur. Þetta verður hörkuvetur. Bara gaman,“ sagði nýjasti liðsmaður KR í körfunni Emil Þór Jóhannsson. Emil Þór var kynntur til leiks í KR-heimilinu eftir að hafa skrifað undir samning við félagið. Körfubolti 18. júlí 2011 13:30
Emil Þór farinn frá Snæfelli yfir í KR Emil Þór Jóhannsson hefur ákveðið að ganga til liðs við Íslandsmeistara KR í körfuboltanum en hann skrifar undir við Vesturbæjarfélagið nú í hádeginu samkvæmt áræðanlegum heimildum Vísis. Emil er fyrsti íslenski leikmaðurinn sem gengur í raðir KR-inga sem hafa misst tvo lykilmenn frá því á síðasta tímabili. Körfubolti 18. júlí 2011 10:31
Nýr Bandaríkjamaður á leiðinni í Hólminn Körfuknattleiksdeild, Snæfells í Stykkishólmi, hefur gengið frá samningi við bandaríska leikmanninn, Quincy Hankins Cole fyrir næstkomandi tímabil. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Körfubolti 16. júlí 2011 20:30
Gunnar Einarsson leggur skóna á hilluna Körfuknattleikskappinn Gunnar Einarsson hefur lagt skóna á hilluna. Gunnar sem er 34 ára er leikjahæsti leikmaður Keflavíkur frá upphafi. Víkurfréttir greina frá þessu á heimasíðu sinni. Körfubolti 14. júlí 2011 10:45
Hörður Axel samdi við þýskt úrvalsdeildarlið Landsliðsmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson mun ekki leika með Keflvíkingum í IcelandExpress deild karla á næstu leiktíð. Hörður, sem er 22 ára gamall leikstjórnandi, hefur samið við þýska úrvalsdeildarliðið Mitteldeutscher til þriggja ára. Frá þessu er greint á karfan.is. Körfubolti 7. júlí 2011 15:26
Bandaríkjamaður á að fylla skarð Pavels KR er búið að finna arftaka Pavel Ermolinskij. Sá heitir Dewayne Reed og hann kemur frá Auburn-háskólanum í Bandaríkjunum. Körfubolti 3. júlí 2011 22:19
Brynjar spilar ekki með KR næsta vetur - búinn að semja við Jämtland KR-ingurinn Brynjar Þór Björnsson hefur leikið sinn síðasta leik í bili fyrir Vesturbæjarliðið því hann er búinn að gera samning við sænska félagið Jämtland. Þetta kemur fram á basketsverige.se. Körfubolti 13. júní 2011 18:15
Justin Shouse og Darrell Flake orðnir Íslendingar Bandarísku körfuboltamennirnir Justin Shouse og Darrell Flake fengu í dag úthlutað íslenskum ríkisborgararétti hjá Allsherjanefnd Alþingis og nú er að sjá hvort að landsliðsþjálfarinn Peter Öqvist vilji nota þá í A-landsliðið. Körfubolti 8. júní 2011 16:00
Snæfellingar fá svaka frákastara að norðan Akureyringurinn Ólafur Halldór Torfason skrifaði í dag undir samnning við Snæfell og mun spila með liðinu í Iceland Express deild karla á næsta tímabili. Þetta kemur fram á heimasíðu Snæfells. Körfubolti 6. júní 2011 15:15
Dallas náði ekki að stöðva James og Wade Miami Heat er komið með 1-0 forystu í úrslitarimmu sinni gegn Dallas Mavericks um NBA-meistaratitilinn í körfubolta eftir sigur í leik liðanna í nótt, 92-84. Körfubolti 1. júní 2011 09:00
Njarðvík samdi við tvo kana Njarðvík hefur gengið frá samningum við tvo bandaríska leikmenn sem munu leika með félaginu á næsta tímabili í Iceland Express-deild karla. Körfubolti 30. maí 2011 11:30
Brynjar Þór samdi við KR Brynjar Þór Björnsson, lykilmaður í Íslandsmeistaraliði KR, gerði í gær nýjan tveggja ára samning við félagið. Það er þó með þeim fyrirvara að hann fari mögulega erlendis en hann er að þreifa fyrir sér þar. Körfubolti 27. maí 2011 06:00
Ætlum okkur titilinn "Við ætlum okkur titilinn og ekkert kjaftæði,“ sagði ákveðinn formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, Magnús Andri Hjaltason, en félagið gekk í gær frá samningum við þá Sigurð Þorsteinsson og Jóhann Árna Ólafsson. Körfubolti 26. maí 2011 06:30
Sigurður Gunnar og Jóhann Árni í Grindavík Grindvíkingar eru að fá stóran liðstyrk í körfunni því samkvæmt heimildum Víkurfrétta þá munu þeir Sigurður Gunnar Þorsteinsson og Jóhann Árni Ólafsson skrifa undir samning við Grindavík í kvöld. Sigurður Gunnar kemur frá Keflavík en Jóhann Árni frá Njarðvík. Körfubolti 25. maí 2011 16:37
Guðmundur fer frá Njarðvík til Þorlákshafnar Guðmundur Jónsson, bakvörður Njarðvíkinga, hefur ákveðið að yfirgefa Njarðvíkurliðið og spila með nýliðum Þórs úr Þorlákshöfn í Iceland Express deild karla í körfubolta á næsta tímabili. Þetta kom fram á karfan.is. Körfubolti 23. maí 2011 09:15
Fyrirliðarnir áfram hjá Snæfelli næsta vetur Pálmi Freyr Sigurgeirsson og Alda Leif Jónsdóttir, fyrirliðar meistaraflokka Snæfells í Iceland Express deildunum í körfubolta, skrifuðu í kvöld undir nýjan samning við Snæfellsliðið. Körfubolti 19. maí 2011 20:26
Valur Orri samdi við Keflavík - 12 leikmenn sömdu við liðið Karlalið Keflavíkur í körfubolta fékk liðsstyrk í gær þegar Valur Orri Valsson samdi við félagið en hinn 17 ára gamli leikstjórnandi er einn efnilegasti leikmaður landsins. Körfubolti 16. maí 2011 12:30
Ægir og Tómas fara í sama skóla í Bandaríkjunum Fjölnisstrákarnir Ægir Þór Steinarsson og Tómas Heiðar Tómasson hafa ákveðið að fara í sama háskóla í Bandaríkjunum næstu fjögur árin en þeir hafa samþykkt að spila með Newsberry college í Norður-Karólínu sem er í 2. deild bandaríska háskólaboltans. Körfubolti 16. maí 2011 11:00
Keflvíkingar missa besta miðherja deildarinnar Keflvíkingar tilkynntu það á heimasíðu sinni í dag að ísfirski miðherjinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson muni ekki endurnýja samning sinn við félagið. Sigurður Gunnar hefur verið í stóru hlutverki hjá Keflvíkingum undanfarin fimm ár og var á dögunum valinn í úrvalslið ársins í annað skiptið á þremur árum. Körfubolti 10. maí 2011 13:00
Teitur verður áfram með Stjörnuliðið - samdi til 2013 Teitur Örlygsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna um tvö ár og verður því áfram við stjórnvölinn í Garðabænum. Þetta kemur fram á heimasíðu Stjörnunnar.Teitur hefur þjálfað Stjörnuna síðan í ársloks 2008 og hefur síðan þá komið liðinu í hóp bestu liða deildarinnar. Körfubolti 4. maí 2011 10:45
Pavel og Margrét Kara valin best KR-ingarnir Pavel Ermolinskij og Margrét Kara Sturludóttir voru í gærkvöldi valin bestu leikmenn Iceland Express-deildanna í körfubolta á lokahófi KKÍ sem haldið var á Broadway. Körfubolti 1. maí 2011 11:32
Ingi Þór búinn að semja við Snæfell til ársins 2014 Ingi Þór Steinþórsson framlengdi í gær samning sinn við Snæfell um tvö ár og mun því þjálfa karla- og kvennalið félagsins til ársins 2014. Ingi Þór var að klára sitt annað tímabil í Hólminum en hann gerði karlaliðið að tvöföldum meisturum á sínu fyrsta ári og í vetur vann liðið Lengjubikarinn og Meistarakeppnina. Körfubolti 30. apríl 2011 09:00
Sigurður tekur við Keflavíkurliðinu Sigurður Ingimundarson hefur gert tveggja ára samning við Keflavík um að taka við karlaliði félagsins. Sigurður var látinn fara frá Njarðvík á miðjutímabili en snýr nú aftur á heimaslóðirnar. Þetta kemur fram á Víkurfréttum. Körfubolti 29. apríl 2011 15:54
Einar Árni og Friðrik verða áfram með Njarðvík Njarðvík tilkynnti í dag að þeir Einar Árni Jóhannsson og Friðrik Ragnarsson myndu stýra körfuboltaliði félagsins næstu þrjú árin. Körfubolti 26. apríl 2011 14:00
Marcus tók stigametið af Damon Marcus Walker verður örugglega á milli tannanna hjá íslensku körfuboltafólki um ókomna tíð eftir magnaða frammistöðu sína í úrslitakeppninni. Þegar menn fóru að skoða sögubækurnar betur kom líka í ljós að spilamennska þessa eldfljóta og stórskemmtilega bakvarðar væri einstök í 28 ára sögu úrslitakeppninnar. Körfubolti 21. apríl 2011 07:00
KR átti fjóra bestu leikmenn úrslitaeinvígisins Fjórir KR-ingar voru efstir á listanum yfir hæsta framlagið í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla sem lauk með öruggum sigri KR-inga í fjórða leiknum í Garðabænum í gær. KR vann einvígið 3-1. Körfubolti 20. apríl 2011 16:45
Vinna bara á oddaárunum eins og San Antonio Spurs KR-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í gær með því að vinna fjórða leikinn í úrslitaeinvígi sínu á móti Stjörnunni. Þetta er í þriðja sinn frá og með árinu 2007 sem Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, lyfti Íslandsbikarnum glæsilega en líkt og hjá NBA-liðinu San Antonio Spurs þá hafa KR-ingar bara unnið titilinn á oddaárum síðan að Fannar kom í Vesturbæinn. Körfubolti 20. apríl 2011 16:00
Hrafn og Fannar fetuðu í fótspor Gunnars og Einars Bolla Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, og Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, fetuðu í gærkvöldi í fótspor Gunnars Gunnarssonar og Einars Bollasonar þegar KR-ingar urðu Íslandsmeistarar. Þetta er nefnilega í fyrsta sinn í 32 ár sem KR vinnur tvöfalt í karlakörfunni, það er verður Íslandsmeistari og bikarmeistari á sama tímabilinu. Körfubolti 20. apríl 2011 14:15