Betri (umferðar) borg fyrir börn Öryggi barna í umferðinni er meðal þess sem fékk mig til að bjóða mig fram í borginni í vor. Við í Viðreisn ætlum að gera Reykjavík að betri borg fyrir börn og mikilvægur hluti af því er að gera umferðaröryggi að forgangsmáli. Skoðun 15. október 2026 07:30
Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Áform um að breyta Valhöll við Háaleitisbraut í hótel með allt að níutíu herbergjum hafa fengið samþykki umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Breytingunni á deiliskipulagi hefur verið vísað til borgarráðs. Innlent 14. október 2026 22:00
Ugla yfirgefur borgina Árni Árnason, mannauðsstjóri hjá Elju, sem slegið hefur í gegn á Facebook með alls kyns grínmyndböndum, hefur sett íbúðina sína á sölu. Hann hyggst yfirgefa borgina. Lífið 14. október 2026 21:17
Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Súkkulaðimyndir á umbúðum Swiss Miss kakódufts gefa ranga hugmynd um innihald vörunnar, að mati dansks lögmanns sem hefur kært niðurstöðu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur til atvinnuvegaráðuneytisins. Eftirlitið telur myndirnar vísa til bragðsins og vill að niðurstaða þess standi. Neytendur 14. október 2026 20:00
Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Skoða á sérstök sleppistæði við ungbarnaleikskólann í Bríetartúni eftir ábendingar foreldra um erfiða og óörugga aðkomu. Magnea Gná Jóhannsdóttir, fulltrúi Framsóknar í umhverfis- og skipulagsráði, segir að ekki hafi verið nægilega hugað að aðgengi foreldra sem koma með börn sín á bíl. Innlent 14. október 2026 16:45
Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Hjónin Óskar Hrafn Þorvaldsson og Laufey Kristjánsdóttir hafa sett á sölu 115 fermetra íbúð sína að Nesvegi. Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum í fjórbýlishúsi með sérinngangi og tvennum svölum. Ásett verð er 108,5 milljónir. Lífið 14. október 2026 13:18
Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Píanóleikarinn og tónskáldið Gabríel Örn Ólafsson hefur sett á sölu 148 fermetra íbúð sína að Ásvallagötu 26. Um er að ræða sérhæð með kjallararými á besta stað í gamla vesturbænum og er ásett verð eignarinnar 149 milljónir. Lífið 14. október 2026 11:45
Úreltar forsendur sagðar hafa leitt til stórfellds vanmats á íbúðaþörf Forsendur skipulagsyfirvalda á höfuðborgarsvæðinu um þörf fyrir nýjar íbúðir eru byggðar á úreltum forsendum um fólksfjölgun og stærð heimila, að sögn framkvæmdastjóra þróunarfélags á fasteignamarkaði, með þeim afleiðingum að eftirspurnin hefur verið stórlega vanmetin. Útlit er fyrir að þurfi að byggja ríflega tvöfalt fleiri íbúðir en gert var ráð fyrir þegar vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins voru ákveðin. Innherji 14. október 2026 11:12
Ósamræmi og skekkjur í forsendum skipulagsyfirvalda dýru verði keyptar Ósamræmi og skekkjur í forsendum skipulags á höfuðborgarsvæðinu eru dýru verði keyptar. Á sama tíma og skortur er á íbúðarhúsnæði standa nýjar íbúðir sem svara ekki þörf auðar og fasteignaverð er í hæstu hæðum. Það er kominn tími til að skipulagsyfirvöld lesi og skilji gögn sem móta þörfina í framtíð fyrir húsnæði og híbýli fólks. Umræðan 14. október 2026 08:20
Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Ný einkarekin heilbrigðisþjónusta undir nafninu Litli spítalinn er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68 í Reykjavík. Henni er ætlað að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu, meðal annars með því að sinna fólki með langvinna sjúkdóma á einum stað. Stefnt er að því að heilbrigðisstarfsfólk verði meirihlutaeigendur. Innlent 14. október 2026 07:01
Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Einn var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í nótt grunaður um líkamsárás. Alls var tilkynnt um fimmtíu mál til lögreglu í gærkvöldi og í morgun og gista þrír fangageymslu lögreglunnar. Innlent 14. október 2026 06:37
Skuldar ekkert Sjálfstæðisflokkurinn er skuldlaus. Forvarsmenn flokksins greiddu upp skuldir samhliða sölu á Valhöll. Innlent 13. október 2026 19:01
TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Veitingastaðnum TGI Fridays á Laugavegi í Reykjavík var lokað og hann innsiglaður í gær að beiðni Skattsins. Lögregluinnsigli blasti við vegfarendum í morgun. Viðskipti innlent 13. október 2026 17:52
Bandero leitar skjóls í Reykjavík Skipið Bandero siglir nú til Reykjavíkur í skjól frá austanáttinni. Til stóð að flytja skipið í gærkvöldi en þá var skipstjórinn hvergi sjáanlegur. Innlent 13. október 2026 17:21
Menningarsprautur í hvísluleik Óvenjulegt útgáfuhóf fór fram í Listasafni Einars Jónssonar á fimmtudag þegar ljóðabókin Hverfa eftir Melkorku Ólafsdóttur kom út. Hófið hófst á gjörningi myndlistarmannsins Haraldar Jónssonar sem hvíslaði óræðum orðum að gestum meðan ljóðskáldið lék á flautu úr fjarlægum sölum og las svo upp úr bókinni. Menning 13. október 2026 16:39
Bombur á Barokki á klúbbnum Tónlistarhátíðin State Of The Art fór fram með pompi og prakt síðastliðna helgi. Meðal viðburða hátíðarinnar er Barokk á klúbbnum sem hefur alltaf slegið í gegn. Lífið 13. október 2026 10:08
Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Á fimmtudag breytist leið 8 hjá Strætó, háskólaleiðinni. Vagninum verður þá ekið í gegnum miðbæinn, fram hjá Háskóla Íslands og svo að Háskólanum í Reykjavík. Innlent 13. október 2026 07:42
Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Nóbelsverðlaunahafinn Anne Carson segist hafa slysast út í skrifin og geti ekki hætt úr þessu. Ekkert sem hún geri sé úthugsað og yfirleitt rambi hún á góðar hugmyndir. Hún og maður hennar keyptu sér íbúð á Ægisíðu og urðu íslenskir ríkisborgarar árið 2022 eftir að hafa heimsótt landið reglulega frá árinu 2008. Íslendingar hafi tekið þeim opnum örmum en því fylgir einmanaleiki að tala ekki tungumálið. Carson greindist með Parkinsons-sjúkdóm fyrir þremur árum og heldur honum í skefjum með boxi, sundi og spinning-tímum. Menning 13. október 2026 07:02
Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Lögreglustöð eitt barst tilkynning í morgun eða í dag þar sem kom fram að grindverk hefði fokið fyrir akbraut. Voru gerðar viðeigandi ráðstafanir en líkt og fram hefur komið er útlit fyrir vonskuveður um mestallt landið á miðvikudag þegar dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár gengur yfir. Þá hefur fólk verið hvatt til að taka inn lausamuni og hliðra plönum. Innlent 12. október 2026 18:56
Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona hefur sett einbýlishús sitt við Barónsstíg í miðbæ Reykjavíkur á sölu eftir tveggja ára dvöl í húsinu. Hún keypti húsið eftir sögulega sölu á einbýlishúsi við Mávanes í Garðabæ á 850 milljónir króna. Lífið 12. október 2026 12:59
„Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Halldór Eldjárn heldur tónleikasýningu, blöndu af tónleikum og sýningu, í Tjarnarbíói á miðvikudaginn og smíðaði fyrir hana tvö ný hljóðfæri. Annars vegar byggði hann pípuorgel frá grunni og hins vegar endurskapaði hann kliðhörpu sem uppfinningamaðurinn Magnús K. Guðnason bjó til á fyrri hluta síðustu aldar. Halldór heillaðist nýverið af Magnúsi sem lifði við harðan kost, fann upp ýmsar uppfinningar og keyrði sig áfram á hugsjóninni. Tónlist 12. október 2026 10:56
Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ákveðið hefur verið að breyta opnunartíma endurvinnslustöðva Sorpu á Dalvegi og í Jafnaseli í ljósi þess að móttekið magn á stöðvunum hefur minnkað síðustu mánuði og heimsóknum fyrir hádegi fækkað. Vetraropnun á Dalvegi og í Jafnaseli tekur gildi 1. nóvember 2026. Neytendur 12. október 2026 10:03
Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Fjöldi fólks kom saman til að mótmæla sjókvíaeldi Kaldavíkur á Seyðisfirði í dag, bæði á Seyðisfirði og í Reykjavík en mótmælin fóru fram samtímis. Breiður hópur náttúruverndarsamtaka stóð fyrir mótmælunum. Innlent 11. október 2026 21:53
Brotist inn í tvö fyrirtæki Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um innbrot á svipuðu svæði miðsvæðis í Reykjavík í dag. Málin eru bæði í rannsókn. Innlent 11. október 2026 18:12
Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bílar hafa verið rispaðir í að minnsta kosti þremur hverfum Reykjavíkur undanfarna daga. Íbúi í Vesturbæ segir ljóst að um mikið tjón sé að ræða fyrir íbúa en sjálfur greiddi hann 150 þúsund krónur fyrir viðgerð vegna hakakross sem rispaður var á bíl hans. Innlent 11. október 2026 14:01
Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Hjónin Markús Hauksson og Bríet Guðrúnardóttir opnuðu nýlega kaffihúsið Róst að Suðurlandsbraut 8 þar sem Te og kaffi var áður til húsa. Þau tóku við rekstri kaffihússins Kaffi Laugalækjar fyrir rúmu ári síðan og segja að töluverð samlegðaráhrif verði með kaffihúsunum þó það séu ólíkar áherslur. Viðskipti innlent 10. október 2026 22:01
Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Endurheimt bílastæða sem koma í stað bekkja og blómapotta í miðborg Reykjavíkur er áhyggjuefni að mati formanns Samtaka um bíllausan lífsstíls. Formaður umhverfis-og skipulagsráðs borgarinnar segir um eðlilega ráðstöfun að ræða fyrir veturinn. Báðir formenn eru opnir fyrir frekara samtali um málið og vilja draga umræður um bílastæði og samgöngumál upp úr skotgröfunum. Innlent 10. október 2026 18:51
Á annað hundrað sektaðir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sektaði yfir hundrað ökumenn fyrir að leggja ólöglega við Laugardalshöll og víða um Laugardal í Reykjavík í dag. Innlent 10. október 2026 18:21
Þrír réðust á einn Þrír voru handteknir og vistaðir í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaðir um að ráðast á einn. Sá var fluttur á bráðamóttöku til skoðunar en ekki er vitað um alvarleika meiðsla. Tveir hinna handteknu eru undir átján ára aldri. Innlent 10. október 2026 17:34
Opið hús í Höfða í dag Landsmönnum gefst kostur á að skoða hið sögumerka hús Höfða í Reykjavík í dag en þar er búið að koma fyrir söguhorni. Tilefnið er friðarvika á vegum Reykjavíkurborgar. Innlent 10. október 2026 13:11