Sunnlendingar buðu best í breikkun á Kjalarnesi Verktakarnir Suðurverk og Fossvélar áttu lægsta boð í breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarganga. Sameiginlegt tilboð þeirra hljóðar upp á nærri 4,7 milljarða króna. Það er hálfum milljarði króna undir kostnaðaráætlun, eða 90,4 prósent af áætluðum verkakakostnaði, sem er tæplega 5,2 milljarðar króna. Innlent 16.9.2026 17:44
Tekjur Bílastæðasjóðs 258 milljónum yfir áætlun með hjálp skannbílsins Skannbíll Bílastæðasjóðs Reykjavíkur á töluverðan þátt í að tekjur sjóðsins fóru 258 milljónum króna fram úr áætlun á fyrri helmingi ársins, að sögn deildarstjóra hans. Hann segir tæknina einnig gera sjóðnum kleift að sinna eftirliti með færra starfsfólki en áætlað var. Innlent 16.9.2026 16:20
Fimm aukaíbúðir þar sem aðeins mátti vera ein Eigendur einbýlishúss í Breiðholti verða að breyta húsinu eftir að fimm aukaíbúðir voru innréttaðar þar sem borgin leyfir aðeins eina. Borgin gaf þeim þó of skamman tíma til breytinganna og tók ekki nægilegt tillit til fólksins sem leigir íbúðirnar. Innlent 16.9.2026 15:37
„Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Mannekla er minni í leikskólum, grunnskólum og frístund í Reykjavík í ár miðað við fyrri ár. Sviðsstjóri segist ekki hafa séð svo góðar tölur í mörg ár. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að 67 prósent leikskólanna annaðhvort fullmannaðir eða nálægt því að vera fullmannaðir. Innlent 15. september 2026 21:33
Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Á horni Öldugötu og Ægisgötu í hjarta gamla Vesturbæjar stendur tæplega 400 fermetra hús frá árinu 1927. Húsið er í eigu Kesöru Margrétar Jónsson og er nú komið á sölu. Lífið 15. september 2026 20:01
Ekki víst að asbestmengun hafi borist með reyknum Sérfræðingur í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun segir íbúa í grennd við Toppstöðina í Elliðaárdal ekki þurfa að óttast asbestmengun þrátt fyrir að asbest sé í húsinu. Heljarinnar tiltekt sé fram undan. Innlent 15. september 2026 17:34
Fangar þurfi að fylgja samþykktri dagskrá í dagsleyfum Fangar þurfa að skila ítarlegri dagskrá áður en þeir fá dagsleyfi og fallast á þau skilyrði sem leyfinu fylgja. Að sögn Fangelsismálastofnunar liggur áhættumat fyrir þegar um alvarleg brot er að ræða og hægt er að takmarka ferðir fanga og samskipti þeirra við aðra. Innlent 15. september 2026 14:26
Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Móðir sem lagði fram kæru gegn starfsmanni leikskóla í Múlaborgarmálinu segir það hafa verið enn eitt áfallið að sjá brotamanninn fyrir utan heimili sitt tæpum fimm mánuðum eftir að maðurinn var fundinn sekur um kynferðisbrot gegn barni. Innlent 15. september 2026 12:02
Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Eldsupptök í Toppstöðinni í Elliðaárdal liggja ekki fyrir en slökkviliðsstjóri segir að umgangur virðist hafa verið um húsið sem eigi að vera mannlaust. Ekki er talið að um altjón sé að ræða og enn er stefnt að opnun miðstöðvar jarðaríþrótta í húsinu. Innlent 15. september 2026 11:47
Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Nýr meirihluti vill gera úrbætur á aðgengi og upplýsingagjöf um bílastæðahúsin í borginni. Þau séu vannýtt. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti nýlega að minnka gjaldskyldu í miðbæ um klukkutíma. Þá segir formaður umhverfis- og skipulagsráðs tímabært að ræða vaxtarmörk borgarinnar og aukna uppbyggingu í austurhluta borgarinnar. Innlent 15. september 2026 10:17
Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Borgarstjóri vill finna Tækniskólanum lóð í Reykjavík eftir að samkomulag skólans og Hafnarfjarðarbæjar fór út um þúfur. Skólinn gæti risið í Úlfarsárdal og segir borgarstjóri að það yrði lyftistöng fyrir efri byggðir Reykjavíkur að fá skólann þangað. Innlent 15. september 2026 06:17
Eldur í Elliðaárdal Eldur kviknaði í Toppstöðinni í Elliðaárdal í Reykjavík á sjöunda tímanum í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna eldsins. Innlent 14. september 2026 18:34
Unnið að uppfærslu umferðarljósa Á næstu dögum verður unnið að uppfærslu á umferðarljósastýringu á gatnamótum Miklubrautar og Klambratúns annars vegar og Miklubraut og Stakkahlíðar hins vegar. Slökkt verður á ljósunum hluta miðvikudagsins og fimmtudagsins næstkomandi. Innlent 14. september 2026 17:41
Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns 25 milljónir króna fundust í þrotabúi veitingamannsins Einars Sturlu Möinichen en lýstar kröfur námu alls 244 milljónum króna. Af milljónunum 25 fóru 15 í skiptakostnað en þrotabúið var tekið til skipta árið 2020 og ágreiningsmál við skiptin rataði alla leið í Hæstarétt. Viðskipti innlent 14. september 2026 16:12
Greip um eistu lögreglumanns Kona á sextugsaldri hefur verið dæmd til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir brot gegn valdstjórninni og kynferðislega áreitni. Konan greip um kynfæri lögreglumanns þegar hann var að færa hana í fangaklefa. Innlent 14. september 2026 14:16
Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Aðstandendur íþrótta- og æskulýðsstarf fá að beina upplýsingum tímasetningar í starfinu beint til barna í grunnskólum með breytingum sem borgarráð samþykkti. Slíkum upplýsingum hefur hingað til átt að beina til foreldra. Innlent 14. september 2026 13:48
Betri borg fyrir börn Stefnan Betri borg fyrir börn var í takt við þá hugsun sem var lögfest með lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021. Skoðun 14. september 2026 11:30
Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Tveir hópferðabílar skullu saman við gatnamót Suðurlandsbrautar og Reykjavegar sem leiðir inn í Laugardal. Atvikið átti sér stað rétt fyrir klukkan tíu. Innlent 14. september 2026 10:00
Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Tilkynnt var um hópslagsmál í bílakjallara í Reykjavík í gærkvöldi og þá var ökumaður tekinn á 117 kílómetra hraða á svæði lögreglunnar í Kópavogi og Breiðholti. Innlent 14. september 2026 06:13
Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Þriðjungur Reykvíkinga sem aka til vinnu vill skipta um ferðamáta og til að mynda nýta sér almenningssamgöngur og hjólreiðar samkvæmt niðurstöðum úr rannsóknarverkefni Reykjavíkurborgar. Að auki kemur þar fram að yfir 90 prósent svarenda flokki reglulega úrgang en flokkunarvenjur ráðist fyrst og fremst af aðgengi að innviðum og þjónustu. Innlent 13. september 2026 21:13
Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um innbrot og þjófnað í fyrirtæki í hverfi 101 í Reykjavík. Gerandi er enn ókunnur. Innlent 13. september 2026 17:44
Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Hertar reglur um aðgengi í sundlaugar í Reykjavík tóku gildi með breyttri gjaldskrá í maí. Sundlaugagestur sem gleymdi sundkorti þurfti frá að hverfa þar sem ekki dugir lengur að gefa upp kennitölu í afgreiðslunni. Innlent 13. september 2026 12:45
Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði samkvæmi, sem fram fór í samkomusal, í gærkvöld eða nótt vegna brots á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Innlent 13. september 2026 07:27
Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Deildarstjóri samgangna hjá Reykjavíkurborg segir ekki hagkvæmt að gera gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar fullmislæg nú. Vegagerðin telur ljósastýrðu lausnina geta annað umferð vel í tuttugu ár eftir opnun, þótt bílferðum á höfuðborgarsvæðinu sé spáð að fjölga verulega. Innlent 11. september 2026 15:14