Nýsköpun

Nýsköpun

Fréttamynd

Mikil­vægi kennslu í ný­sköpun í há­skólum

Nýsköpun er gjarnan tengd við sprotafyrirtæki, frumkvöðla. stórar fjárfestingar og uppfinningar sem ætlað er að breyta heiminum. Það er þó aðeins hluti af myndinni. Nýsköpun snýst líka um að koma auga á það sem má gera betur, finna lausnir og hafa hugrekki til að prófa nýjar leiðir. Hún getur átt sér stað hvar sem er; í litlu fyrirtæki, stórri stofnun, skólastofu, heilbrigðiskerfinu, tæknifyrirtæki eða opinberri þjónustu.

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ný­sköpun þrífst ekki í ó­vissu

Nýsköpun er lykillinn að því að leysa áskoranir nútímans og móta sjálfbæra framtíð. Án hennar stöndum við í stað, engar nýjar lausnir verða þróaðar og engin framþróun. Nýsköpun verður þó ekki til í tómarúmi.

Skoðun
Fréttamynd

Ný­sköpun sem nærir

Það hefur líklega ekki oft gerst að þrír ungir menn setjist niður og ákveði að stofna fyrirtæki með það að markmiði að breyta byggfræi í líftækniverkssmiðju fyrir nýstárleg prótein. Hugmyndin er djörf og hún hljómar langsótt.

Skoðun
Fréttamynd

Um­sóknum synjað og kurr í greininni

Það færist í vöxt að nýsköpunarfyrirtækjum sé synjað um endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar að sögn sviðsstjóra hjá Samtökum iðnaðarins. Kallað er eftir því að stjórnvöld dragi úr óvissu og samtökin benda á að tækni- og hugverkafyrirtæki hafi á síðasta ári skilað þjóðarbúinu meiri útflutningstekjum en sjávarútvegurinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ný­sköpun í breyttri heims­mynd

Þegar rætt er um útflutningsgreinar Íslands beinist athyglin oft að hinum hefðbundnu stoðum hagkerfisins. Heimurinn er hins vegar að taka hröðum breytingum og það sama á við um tækifæri og vöxt í útflutningi Íslands.

Skoðun
Fréttamynd

„Þetta módel gengur bara ekki upp“

Róbert Guð­finns­son, stofnandi og stjórnar­for­maður nýsköpunar­fyrir­tækisins Genís á Siglu­firði, segir framtíð fyrir­tækisins ráðast á næstu vikum. Ís­lenskir fjár­festar séu of áhættu­fælnir og hugsi til skamms tíma sem geri fyrir­tækjum erfitt fyrir. Ís­lendingar hafi ítrekað selt væn­leg og verðmæt nýsköpunar­fyrir­tæki úr landi og nú leiti Genís á náðir er­lendra fjár­magns­eig­enda.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Dagur verk­fræðinnar: Vilja vekja á­huga ungs fólks á tækni- og raun­greinum

„Verkfræðingar og tæknifræðingar koma að verkefnum sem hafa bein áhrif á líf okkar allra allt frá orkukerfum og samgöngum til nýsköpunar og tæknilausna framtíðarinnar. Slíkt nám opnar mörg tækifæri og býður upp á spennandi starfsferil,“ segir Helgi Gunnarsson, formaður Verkfræðingafélags Íslands en Dagur verkfræðinnar fer fram föstudaginn 20. mars á Hilton Reykjavík Nordica.

Samstarf
Fréttamynd

Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og við­kvæmu sam­tölin

„Ég áttaði mig á því mjög fljótt hversu mikil áhrif þetta var að hafa á nemendur. Sem á augabragði gátu nú breytt öllu rituðu námsefni í hljóðefni, lært í göngutúrum eða hvar sem þeim hentaði, spurt spurninga og sniðið kennsluna að því hvernig þau vildu læra en ekki hvernig ég vildi kenna,“ segir Hinrik Jósafat Atlason, stofnandi og framkvæmdastjóri Atlas Primer.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Sjávartengd ný­sköpun skilar þjóðinni milljörðum

Nýlega var greint frá því að íslenska ríkið muni fá um 40 milljarða króna eingreiðslu í kjölfar sölu á hugverkaréttindum Kerecis til danska fyrirtækisins Coloplast. Skattur vegna sölunnar verður greiddur í einu lagi í haust og heimild til að dreifa greiðslum yfir sjö ár verður ekki nýtt.

Skoðun
Fréttamynd

Affineva bar sigur úr býtum

Verkefnið Affineva bar sigur úr býtum í nýsköpunarkeppninni Gulleggið. Markmið Affineva er að þróa sértækar líftæknilausnir í greiningu og meðhöndlun sjúkdóma.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Ægi­lega hamingju­samur“ með milljarðana frá Kerecis

Það er gríðarlegt ánægjuefni að fjörutíu milljarða skattgreiðsla frá Kerecis komi að óbreyttu til með að snúa við rekstri ríkissjóðs á þessu ári, að sögn fjármálaráðherra. Ekki var gert ráð fyrir tekjunum í fjármálaáætlun en ráðherra gerir ráð fyrir að peningarnir nýtist til að ná betra jafnvægi í ríkisreksturinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kerfið er vanda­málið ef það styður ekki ný­sköpun

Með nýsköpun í heilbrigðiskerfinu er hægt að framlengja sjálfstæða búsetu fólks, draga úr þörf fyrir innlagnir og leysa stóran vanda, að mati sérfræðings hjá Fjársýslu ríkisins. Framlínustofnanir þurfi að snúa bökum saman og kerfið eigi að treysta heilbrigðisstarfsfólki til þess að leita lausna.

Innlent
Fréttamynd

Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III

Stofnaður hefur verið 7,2 milljarða króna vísisjóður, Brunnur III, með þátttöku ellefu íslenskra lífeyrissjóða, Nýsköpunarsjóðsins Kríu og Silfurbergs ehf. Sjóðurinn hefur lokið áskriftarsöfnun en hefur heimild til stækkunar upp í tíu milljarða króna með þátttöku fagfjárfesta fyrir lok febrúar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fram­tíð ís­lenskrar líf­tækni

Undanfarin ár hefur líftækni orðið ein af burðarstoðum íslensks efnahagslífs. Útflutningur lyfja og líftæknitengdra vara hefur vaxið hratt og er í dag einn stærsti einstaki útflutningsflokkur landsins.

Skoðun