Sigurjón minnist David Lynch: „Jonni, við verðum að gera eitthvað fyrir Ísland“ Sigurjón Sighvatsson minnist vinar síns, David Lynch, sem eins áhrifamesta kvikmyndaleikstjóra sögunnar. Lynch hafi verið prívat maður sem þoldi ekki neikvæðni og var alltaf langt á undan sinni samtíð. Bíó og sjónvarp 19. janúar 2025 09:02
Heill hljóðheimur Hildar fer afturábak Tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir hefur sent frá sér sína fyrstu breiðskífu, Afturábak. Þetta er stórmerkilegt í ljósi þess að Hildur hefur um margra ára skeið verið ein þekktasta tónlistarkona landsins, sent frá sér hvern smellinn á fætur öðrum og samið fjölda laga fyrir sjálfa sig sem og aðra tónlistarmenn. Hún segist vera orðin þreytt á að vera oft titluð „söngkonan Hildur“ enda er hún miklu meira en bara það. Tónlist 19. janúar 2025 07:02
Fötlunin ekki stærsta áfallið heldur veikindin sem fylgdu Í dag opna ljósmyndararnir Þórsteinn Svanhildarson og Hrafn Hólmfríðarson ljósmyndasýninguna Sitt hvoru megin við sama borðið. Sýningin er þeim báðum afar persónuleg en hún fjallar um náið samband umönnunaraðila og þess sem hugsað er um. Þórsteinn á langveika dóttur og Hrafn fékk heilablæðingu árið 2009 þegar hann var aðeins 19 ára gamall. Lífið 18. janúar 2025 07:04
Mótmæltu keppninni í fyrra en ætla sér alla leið í ár Nokkrir keppendur í Söngvakeppninni árið 2025 eru á lista þeirra tónlistarmanna sem skoruðu á Ríkisútvarpið í fyrra að draga Ísland úr Eurovision vegna hernaðar Ísraela á Gasa. Tilkynnt var hvaða tíu lög munu keppa í undanúrslitum Söngvakeppninnar í ár fyrr í kvöld. Lífið 17. janúar 2025 22:01
Þetta eru keppendur Söngvakeppninnar 2025 Ríkisútvarpið hefur svipt hulunni af þeim tíu keppendum sem munu koma til með að stíga á svið í Söngvakeppninni 2025. Meðal þeirra eru Dagur Sig, Stebbi JAK, VÆB og Bjarni Ara. Lífið 17. janúar 2025 20:11
Starfsmaður frá Filippseyjum syngur og syngur á Selfossi Þeir sextíu heimilismenn á hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi eru heppnir því þar er starfsmaður frá Filippseyjum, sem syngur fyrir þá við umönnunarstörfin sín og stundum heldur starfsmaðurinn tónleika fyrir allt fólkið og þá er sungið og dansað af mikilli innlifun. Innlent 17. janúar 2025 20:05
Troðfullt hús og standandi lófaklapp Það var margt um manninn í Tjarnarbíói í gærkvöldi þegar fyrsta leiksýning ársins „Ífigeníu í Ásbrú“ var frumsýnd. Um er að ræða breskt verðlaunaverk eftir Gary Owen sem hefur farið sigurför um heiminn. Áhorfendur virtust mjög hrifnir og hlaut sýningin standandi lófaklapp, að því er fram kemur í tilkynningu. Menning 17. janúar 2025 17:03
Frumsýning á Vísi: Ferðalag um næturhimininn með Kára Egils Tónlistarmaðurinn Kári Egilsson gefur í dag frá sér nýtt lag Midnight Sky. Lagið er af nýrri plötu Kára sem kemur út í mars. Með laginu fylgir tónlistarmyndband sem er eftir listakonuna Diddu Flygenring og byggir á sögu lagsins. Tónlist 17. janúar 2025 12:31
Læra og njóta í endurmenntunarferðum KVAN KVAN sérhæfir sig í námsferðum sem eru fræðandi, uppbyggjandi og hvetjandi fyrir þátttakendur. KVAN skipuleggur námsferðir bæði innan- og utanlands fyrir skóla, stofnanir og fyrirtæki og aðlagar eftir óskum þátttakanda. Lífið samstarf 17. janúar 2025 12:26
Joan Plowright er látin Breska stórleikkonan Joan Plowright er látin 95 ára að aldri. Hún starfaði sem leikkona í sextíu ár bæði á sviði og á skjánum í kvikmyndum og sjónvarpi. Lífið 17. janúar 2025 10:18
„Kallaðu mig Meistara, þá fæ ég það“ Rithöfundurinn Neil Gaiman neitar því staðfastlega að hafa nokkurn tímann brotið gegn konum og þvingað þær til að gera eitthvað gegn vilja þeirra. Hann viðurkennir þó að hafa átt að gera betur. Erlent 17. janúar 2025 08:20
Illa bruggaðar Guðaveigar Fjórir íslenskir prestar fara til Spánar í leit að nýju messuvíni fyrir þjóðkirkjuna. Bílstjórinn forfallast og barnabarn hans, ung kona með drykkjuvandamál, kemur í ferðina í hans stað. Prestarnir sötra mikið vín, lenda í ýmsum hremmingum og komast í kast við lögin. Gagnrýni 17. janúar 2025 07:30
Mætti með fertugan Paddington á forsýninguna Þriðja og nýjasta myndin um krúttlega marmelaði- elskandinn björninn Paddington, Paddington í Perú, var frumsýnd með fyrir fullum sal áhorfenda í Smárabíói í gær. Myndin er fyrir alla fjölskylduna og voru því börn í miklum meirihluta á meðal áhorfenda. Lífið 16. janúar 2025 20:45
David Lynch er látinn David Lynch, einn áhrifamesti kvikmyndagerðarmaður Bandaríkjanna, er látinn 78 ára að aldri. Hann hafði glímt við alvarlega lungnaþembu undanfarin fimm ár. Lífið 16. janúar 2025 18:30
Troðfylltu Iðnó: „Þetta kom okkur alveg í opna skjöldu“ Það var þakklæti í lofti hjá spenntum tónleikagestum þegar harðkjarnahljómsveitin I adapt steig á svið í Iðnó í desember í síðasta sinn. Uppselt var á tónleikana og gríðarleg stemning. Sveitin kom aftur saman í sumar eftir tólf ára hlé en söngvari sveitarinnar segir almættið eitt geta svarað því hvenær sveitin kemur aftur saman. Tónlist 16. janúar 2025 15:45
Bobbysocks og Wig Wam vilja aftur í Eurovision Sléttum fjörutíu árum eftir að þau komu, sáu og sigruðu Eurovision söngvakeppnina með La de swinge! stefnir hljómsveitin á endurkomu í keppnina. Sveitin ætlar að taka þátt í norsku undankeppninni Melodi Grand Prix en athygli vekur að þar er einnig að finna hljómsveitina Wig Wam sem keppti fyrir hönd Noregs í keppninni árið 2005 og sló í gegn hér á landi. Lífið 16. janúar 2025 15:43
Kvikmyndirnar sem beðið er eftir 2025 Vísir hefur tekið saman lista yfir 34 kvikmyndir sem koma út á árinu og er beðið eftir með eftirvæntingu. Ofurhetjumyndir, leiknar endurgerðir af teiknimyndum, hrollvekjur og íþróttamyndir eru áberandi en þar fyrir utan er von á alls konar góðgæti. Bíó og sjónvarp 16. janúar 2025 07:02
Bestu vinir sem fá að vinna við það sem þeir elska Strákarnir í Tónhyl Akademíu eru allir í kringum átján ára aldur og lifa og hrærast í heimi tónlistarinnar. Þeir voru að senda frá sér plötu sem hefur slegið í gegn og á sama tíma seldu þeir upp á tónleika í Gamla Bíói. Blaðamaður ræddi við þessa upprennandi tónlistarmenn. Tónlist 15. janúar 2025 20:00
„Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Rakel Garðarsdóttir framleiðandi Vigdísarþáttanna svokölluðu segir það mikinn misskilning að persónan Elmar eigi að tákna Helga Skúlason leikara og leikstjóra. Menning 15. janúar 2025 14:49
Linda Nolan látin Írska söngkonan Linda Nolan er látin, 65 ára að aldri. Hún gerði garðinn frægan með sveitinni The Nolans sem átti fjölda smella á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Lífið 15. janúar 2025 13:54
Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Hallgrímur Helgi Helgason, þýðandi, handritahöfundur og sonur Helga Skúlasonar leikara og leikstjóra, segir furðulegu ljósi brugðið upp af föður sínum í annars rómuðum þáttum um Vigdísi Finnbogadóttur. Menning 15. janúar 2025 13:49
Ögn um Vigdísarþætti Ég hef eins og aðrir fylgst af ánægju með sjónvarpsþáttunum um Vigdísi. Það hefur verið sönn gleði að sjá metnaðinn í framleiðslunni, útlitinu og leiknum og ástæða til að fagna því öllu og þakka fyrir. Skoðun 15. janúar 2025 13:45
Gert að halda öllum gögnum um „Nicepool“ Lögmaður bandaríska leikstjórans Justin Baldoni hefur farið fram á það við Marvel kvikmyndaverið að það varðveiti öll gögn sem það á um persónuna „Nicepool“ í ofurhetjumyndinni Deadpool & Wolverine. Svo virðist vera sem Baldoni telji að persónan sé byggð á honum. Lífið 15. janúar 2025 13:41
Handritin öll komin á nýja heimilið Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur nú flutt öll handrit, sem hún hefur til varðveislu, í nýtt öryggisrými í Eddu við Arngrímsgötu 5. Innlent 15. janúar 2025 13:20
Embla og Timothée Chalamet glæsileg á dreglinum Íslenska TikTok stjarnan Embla Wigum átti ævintýralegt kvöld í gær þegar hún skellti sér á forsýningu kvikmyndarinnar A Complete Unknown í London. Þar var hún í félagsskap stórstjarna á borð við Timothée Chalamet. Bíó og sjónvarp 15. janúar 2025 13:02
Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Leik- og söngkonan Katrína Halldóra Sigurðardóttir ætlar í langt og gott frí eftir mikla vinnutörn. Hún ætlar þó alls ekki til Tenerife og segir eyjuna hræðilegan stað. Í staðinn ætlar hún í ferðalag um Ítalíu eða Spán. Menning 15. janúar 2025 10:01
Krefur Disney um tíu milljarða dala Teiknarinn Buck Woodall segir Disney hafa stolið hugmyndum úr verkum hans og notað í tveimur teiknimyndum. Woodall óskar eftir skaðabótum upp á tíu milljarða Bandaríkjadala eða 2,5 prósentum af tekjum Moana. Bíó og sjónvarp 14. janúar 2025 15:18
Heitasti leikarinn í Hollywood Erótíski spennutryllirinn Babygirl hefur vakið athygli og umtal að undanförnu en kvikmyndin inniheldur fjöldann allan af djörfum kynlífssenum og einkennist af ögrandi söguþræði. Stórstjarnan Nicole Kidman fer þar á kostum í aðalhlutverki og hefur mótleikari hennar Harris Dickinson ekki vakið minni athygli. Lífið 14. janúar 2025 11:30
Vínartónleika skorti léttleika: Dansararnir stálu senunni Vínartónleikarnir sem Sinfóníuhljómsveit Íslands bauð upp á í Hörpu síðastliðinn laugardag höfðu alla burði til að verða eftirminnilegir. Fjölbreytt efnisskrá, glæsilegir einsöngvarar, fimir dansarar og efnisskrá í léttum dúr lofaði svo sannarlega góðu. Það kom því nokkuð á óvart hversu stemningin var stundum vandræðaleg í Eldborgarsalnum þetta kvöld. Óperettur kalla iðulega á leikgleði, gáska og yndisþokka, en hér var maður sjaldnast heillaður upp úr skónum. Gagnrýni 14. janúar 2025 07:00
Las sjálfshjálparbók í miðjum leik AJ Brown, einn besti útherji NFL-deildarinnar, las bók á hliðarlínunni þegar lið hans, Philadelphia Eagles, sigraði Green Bay Packers, 22-10, í 1. umferð úrslitakeppninnar í gær. Sport 13. janúar 2025 12:45