Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Lovísa Arnardóttir skrifar 29. október 2026 07:44 Micheal með gítarinn. Hann lést á jóladag fyrir tæpum tíu árum. Vísir/Getty Deilur hafa blossað upp innan fjölskyldu fyrrverandi aðstoðarkonu George Micheal vegna uppboðs á munum sem tengjast söngvaranum. Uppboðið fer fram í dag en fjölskylda hennar hefur óskað þess að það fari ekki fram í hennar nafni.
Gítarinn sem Michael lék á í tónlistarmyndbandinu við lagið Faith er meðal muna sem uppboðshúsið Sworders býður upp úr safni Siobhan Bailey, sem var lengi aðstoðarmaður hans. Michael ólst upp í Hertfordshire á Englandi og sló í gegn ásamt Andrew Ridgeley í popptvíeykinu Wham! Síðar naut hann mikillar velgengni sem sólólistamaður með lögum á borð við Faith, Careless Whisper, Father Figure, Outside og Fastlove. Hann lést á jóladag árið 2016. Siobhan lést skyndilega 2014. Eiginmaður hennar selur nú munina á uppboði en hann erfði þá við andlát hennar. Yrði skelfingu lostin Í frétt BBC er haft eftir bróður hennar, Gerard Bailey, að hún yrði „skelfingu lostin yfir því að uppboð væri haldið í hennar nafni og að persónulegar eigur hennar, sem henni þótti vænt um, væru seldar hæstbjóðanda“. Hvorki Sworders né Belcher vildu tjá sig um málið. Bailey hefur farið fram á að uppboðið verði stöðvað eða, ef það fer fram, að það verði kynnt í nafni Belcher en ekki Siobhan. Á vef Sworders eru munirnir 32, sem eru á uppboðinu, sagðir úr einkasafni Siobhan Bailey, sem hafi lengi verið aðstoðarmaður og trúnaðarvinur George Micheal. Í frétt BBC segir bróðir hennar að Siobhan hafi verið að skilja við Belcher þegar hún lést og að hún hafi ekki verið búin að semja erfðaskrá. Hún hafi verið hafin á henni og hún hafi ætlað þessum munum að renna til systkinabarna sinna. Erfðaskráin hafi þó aldrei verið formlega skráð. Í bréfi til uppboðshússins sem BBC vísar til segir bróðir hennar að fjölskyldan líti á það sem brot á friðhelgi hennar og að það sé bæði villandi og siðlaust að nota nafn hennar í tengslum við söluna. Ekkert bendir til þess að Belcher hafi ekki lagalegan rétt til að selja munina, þar sem dánarbú Siobhan rann lögum samkvæmt til hans við andlát hennar. Belcher væri að misnota nafn hennar og það væri óheiðarlegt og skammarlegt að hann ætlaði að hagnast á mununum með þessum hætti. Meðal annarra muna á uppboðinu eru áritaðar ljósmyndir af Wham! og George Michael á sviði. Skjáskot af uppboðinu. Sworders Starfaði fyrir hann í tuttugu ár Siobhan hóf störf sem einkaaðstoðarkona Michaels árið 1984, sama ár og Wham! átti sitt fyrsta lag sem náði efsta sæti vinsældalista, Wake Me Up Before You Go-Go. Hún starfaði fyrir hann í tuttugu ár. Bróðir hennar sagði BBC að hún hefði forðast sviðsljósið og gætt þess að einkalíf poppstjörnunnar væri virt, þrátt fyrir áhuga slúðurblaðamanna sem leituðu að fréttnæmu efni. „Ég held að hún hafi verið ein af fáum manneskjum sem George treysti,“ sagði Bailey. „Hún var alltaf hreinskilin og heiðarleg við hann. Ég geri ráð fyrir að það sé ástæðan fyrir því að hún starfaði svo lengi fyrir hann, bæði á mjög góðum tímum og þeim sem voru ekki eins góðir.“ Gítarinn sem nú verður boðinn upp hafi verið „gjöf“ til systur hans, enda hafi söngvarinn „metið hana svo mikils“, sagði Bailey. Í frétt BBC segir að gítarinn hafi gegnt mikilvægu hlutverki þegar hann hóf sólóferilinn sinn. Í tónlistarmyndbandinu við Faith frá árinu 1987 sést Michael leika á gamlan kassagítar, klæddur í rifnar bláar Levi's-gallabuxur, hvítan stuttermabol og svartan leðurjakka. Sagt er að hann hafi rekist á gítarinn í verslun í Los Angeles skömmu áður. Filofaxið persónulegt Áætlað verðmæti gítarsins er á bilinu 60.000 til 120.000 sterlingspund sem samsvarar um 19 milljónum íslenskra króna. Aðrir munir sem eru ekki jafn verðmætir en hafa persónulegra gildi hafa þegar farið fram úr áætluðu söluverði. Filofax-dagbók úr Faith-tónleikaferðinni árið 1988, með handskrifuðum athugasemdum Siobhan, var metin á allt að 600 pund. Hæsta boð í hana er nú 1.750 pund sem samsvarar um 250 þúsund krónum. Einnig verða boðnar upp gullplata og platínudiskur sem Siobhan fékk afhent vegna söluárangurs tónlistar Michaels. „Ég held að hún yrði miður sín yfir því að eitthvað jafn persónulegt og Filofax-dagbókin hennar og athugasemdir frá George væru sett á sölu. Þetta er svo ósmekklegt og í algerri andstöðu við það hvernig hún var,“ er haft eftir Bailey.
Bretland Tónlist Tengdar fréttir George Michael látinn Breski söngvarinn lést í dag, jóladag. 25. desember 2016 23:13 Rennt yfir feril George Michael Þær sorgarfregnir bárust á jóladag að tónlistarmaðurinn George Michael væri fallinn frá, 53 ára að aldri. Michael snerti við mörgum með tónlist sinni og afrekaði mikið á ævi sinni. Því er ekki úr vegi að stikla á stóru og rifja upp feril þessa magnaða tónlistarmanns. 27. desember 2016 11:30 Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Fleiri fréttir Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Sjá meira
Rennt yfir feril George Michael Þær sorgarfregnir bárust á jóladag að tónlistarmaðurinn George Michael væri fallinn frá, 53 ára að aldri. Michael snerti við mörgum með tónlist sinni og afrekaði mikið á ævi sinni. Því er ekki úr vegi að stikla á stóru og rifja upp feril þessa magnaða tónlistarmanns. 27. desember 2016 11:30