Manchester United og Barcelona mætast í ágúst Manchester United og Barcelona hafa samið um að mætast í æfingaleik í Gautaborg 8. ágúst næstkomandi en þetta verður annað sumarið í röð þar sem þessi stórlið mætast á undirbúningstímabilinu. Fótbolti 28. júní 2012 17:30
Þorvaldur dæmir í Meistaradeild UEFA Þorvaldur Árnason mun dæma seinni leik SP Tre Penne frá San Marínó og F91 Dudelange frá Luxemborg en leikurinn er í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildar UEFA. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Fótbolti 28. júní 2012 13:00
KR mætir HJK Helsinki í Meistaradeildinni Íslands- og bikarmeistarar KR drógust á móti finnska liðinu HJK Helsinki í annarri umferð Meistardeildarinnar en dregið var í dag. KR átti einnig möguleika á því að lenda á móti liðum frá Sviss, Austurríki, Svíþjóð, Lettlandi eða Litháen. Þetta kemur fram á ksi.is Íslenski boltinn 25. júní 2012 10:47
Dregið í Meistaradeild og Evrópudeild UEFA í dag Í dag verður dregið í Meistaradeild UEFA sem og Evrópudeild UEFA en fjögur íslensk félög eru í þessum keppnum. Íslandsmeistarar KR eru í potinnum í Meistaradeildinni en FH, ÍBV og Þór Akureyri eru í pottinum í Evrópudeildinni. Fótbolti 25. júní 2012 09:45
Messi skoraði 82 mörk fyrir Barcelona og Argentínu á tímabilinu Lionel Messi skoraði þrennu í 4-3 sigri á Brasilíu í vináttulandsleik í New Jersey í gærkvöldi og hefur þar með skorað 82 mörk fyrir Barcelona og Argentínu á þessu tímabili. Þetta var lokaleikur kappans á tímabilinu 2011-12 og það verður ansi erfitt fyrir einhvern leikmann, þar á meðal hann sjálfan, að bæta þessa tölfræði í framtíðini. Fótbolti 10. júní 2012 08:00
Faðir Van Persie segir að strákurinn hans fari aldrei til City Faðir Robin van Persie hefur tjáð sig um framtíðarplön stráksins síns við spænskt blað en Van Persie sjálfur er eins og kunnugt er í fjölmiðlabanni á meðan EM stendur, að beiðni félags hans Arsenal. Enski boltinn 9. júní 2012 16:45
UEFA lengir leikbann John Terry UEFA hefur lengt leikbann John Terry, fyrirliða Chelsea, í Meistaradeildinni og hann mun missa af fyrstu tveim leikjum liðsins í deildinni næsta vetur. Fótbolti 1. júní 2012 10:45
22 úr unglingaliði Barca fengu fyrsta tækifærið í tíð Guardiola Pep Guardiola, fráfarandi þjálfari spænska liðsins Barcelona, var óhræddur að gefa uppöldum leikmönnum tækifæri í aðalliðinu þau fjögur tímabil sem hann var með liðið. Barcelona vann fjórtán titla undir hans stjórn á þessum fjórum árum en þá fengu einnig 22 leikmenn úr unglingaliði Barca sitt fyrsta tækifæri með aðalliðinu. Heimasíða Barcelona hefur tekið saman upplýsingar um hvaða leikmenn spiluðu sinn fyrsta leik undir stjórn Guardiola Fótbolti 29. maí 2012 23:15
Dempsey: Ég vil spila í Meistaradeildinni Clint Dempsey átti frábært tímabil með Fulham í ensku úrvalsdeildinni og skoraði alls 23 mörk í öllum keppnum á leiktíðinni. Svo gæti farið að Dempsey yfirgefi Craven Cottage í sumar en hann á bara eitt ár eftir af samningi sínum og hefur talað opinberlega um áhuga sinn að komast í sterkara lið. Enski boltinn 25. maí 2012 19:45
Pistillinn: Vítaspyrnukeppni – algjör heppni? "Þegar leikir fara í vítaspyrnukeppni er um happdrætti að ræða. Heppnin var einfaldlega með okkur í kvöld," sagði knattspyrnustjórinn Roberto Di Matteo að loknum dramatískum sigri Chelsea á Bayern München í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á laugardag. Fótbolti 22. maí 2012 07:00
Sigurvilji Chelsea-manna bræddi þýska stálið Sigur Chelsea í Meistaradeildinni er efni í góða og dramatíska Rocky-bíómynd. Hvað eftir annað lifðu Chelsea-menn af þegar allir voru búnir að afskrifa þá og þeir komnir í nær vonlausa stöðu. Þetta er liðið sem tapaði 3-1 í fyrri leiknum í Napólí í 16 liða úrslitunum, liðið sem þurfti að spila manni færra á móti Lionel Messi og félögum á Nývangi í 53 mínútur og liðið sem lenti 1-0 undir í úrslitaleiknum á móti Bayern München þegar aðeins sjö mínútur voru eftir. Fótbolti 21. maí 2012 06:00
Tíu flottustu mörkin í Meistaradeild Evrópu tímabilið 2011-12 Meistaradeild Evrópu lauk í gær þegar Chelsea tryggði sér titilinn sjálfan eftir magnaðan úrslitaleik gegn Bayern Munchen. Fótbolti 20. maí 2012 23:45
Olic: Það vildi enginn taka víti Ivica Olic, leikmaður Bayern Munich, sagði í viðtali eftir úrslitaleikinn í Meistaradeild Evrópu í gær að hann hafi ekki viljað taka spyrnu í vítaspyrnukeppninni, en sökum þess að allir neituðu því í kringum hann varð Olic að stíga fram. Fótbolti 20. maí 2012 22:30
Robben: Vítaspyrnan mín var hræðileg Arjen Robben, leikmaður Bayern München , átti erfitt með að leyna tilfinningum sínum eftir tapið gegn Chelsea í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær en úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni. Fótbolti 20. maí 2012 15:00
Lineker búinn að breyta Þjóðverjakenningu sinni Gary Lineker er ekki bara þekktur fyrir framgöngu sína inn á fótboltavellinum því hann á ein frægustu ummæli fótboltasögunnar eftir enn eitt tap Englendinga á móti Þjóðverjum í vítakeppni. Fótbolti 20. maí 2012 14:00
Hvernig fóru Chelsea-menn að því að vinna? - Þorsteinn Joð leitaði svara Inn á Vísi er núna hægt að skoða allan þátt Þorsteins Joð Vilhjálmssonar frá því í gær þar sem úrslitaleikur Meistaradeildarinnar var gerður upp. Fótbolti 20. maí 2012 12:30
Lovísa fékk ekki að leiða uppáhaldið Lovísa Scheving, íslenska stelpan sem fékk að leiða leikmann inn á völlinn fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar í gær, fékk ekki ósk sína uppfyllta. Lovísa vildi helst leiða Philipp Lahm, fyrirliða Bayern en leiddi þess í stað Jerome Boateng. Fótbolti 20. maí 2012 12:15
Didier Drogba: Níu úrslitaleikir - níu mörk Didier Drogba skoraði að sjálfsögðu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í München í gær alveg eins og hann gerði í sigrinum á Liverpool í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar á Wembley á dögunum. Drogba er maður stórleikjanna og tölfræðin hans sýnir það svart á hvítu. Fótbolti 20. maí 2012 12:00
Chelsea vann Meistaradeildina - myndir Chelsea-menn fögnuðu gríðarlega á Allianz Arena í kvöld þegar liðið tryggði sér sigur í Meistaradeildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins. Chelsea vann þá þýska liðið Bayern München í vítakeppni eftir að staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Fótbolti 19. maí 2012 23:20
Di Matteo: Við erum með marga leikmenn með stórt hjarta Roberto di Matteo, stjóra Chelsea, tókst hið ótrúlega. Hann tók við Chelsea-liðinu í tómu tjóni í marsbyrjun en nú rúmum tveimur mánuðum síðar hefur hann stýrt Chelsea til sigurs í Meistaradeildinni. Fótbolti 19. maí 2012 22:34
Cech fór í rétt horn í öllum sex vítum Bayern - varði þrjú Ein af allra stærstu hetjum Chelsea í München í kvöld var tékkneski markvörðurinn Petr Cech sem átti magnaðan úrslitaleik og magnað tímabil í Meistaradeildinni. Cech varði þrjú víti Bæjara í leiknum, eitt í framlengingunni og tvö í vítakeppninni þar sem að hann fór í rétt horn í öllum spyrnum Bayern. Fótbolti 19. maí 2012 22:23
Drogba: Þetta var skrifað í skýin fyrir löngu síðan Didier Drogba var hetja Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í München í kvöld þegar Chelsea vann titilinn eftir sigur á Bayern í vítakeppni. Drogba tryggði Chelsea framlengingu með því að skora jöfnunarmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok og skoraði síðan úr síðustu spyrnunni í vítakeppninni. Fótbolti 19. maí 2012 22:09
Frank Lampard: Drogba er hetjan okkar Frank Lampard átti flottan leik á miðju Chelsea þegar liðið tryggði sér sigur í Meistaradeildinni með því að vinna Bayern München í úrslitaleiknum á Allianz Arena í München. Fótbolti 19. maí 2012 21:59
Chelsea vann Bayern í vítakeppni | Drogba og Cech voru hetjur liðsins Chelsea vann Meistaradeildina í fyrsta sinn eftir að hafa unnið Bayern München 4-3 í vítakeppni á þeirra eigin heimavelli á Allianz Arena í München. Didier Drogba og Petr Cech voru hetjur Chelsea í þessum leik. Drogba tryggði Chelsea framlengingu með því að skora jöfnunarmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok og skoraði síðan úr síðustu spyrnunni í vítakeppninni. Petr Cech varði aftur á móti víti Arjen Robben í framlengingunni og tók síðan tvö víti Bæjara í vítakeppninni. Fótbolti 19. maí 2012 18:15
Byrjunarliðin í München: Bertrand byrjar en Torres er á bekknum Jupp Heynckes, þjálfari Bayern og Roberto Di Matteo, stjóri Chelsea hafa tilkynnt inn byrjunarliðin sín í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem hefst klukkan 18.45 á Allianz Arena í München. Leikurinn er í beinni á Stöð 2 Sport. Fótbolti 19. maí 2012 18:02
Cech: Ég mæti undirbúinn ef að það verður vítakeppni Petr Cech, tékkneski markvörðurinn hjá Chelsea, segist hafa unnið heimavinnu sína fyrir leikinn á móti Bayern München fari svo að úrslitaleikur Meistaradeildarinnar endi í vítakeppni. Cech er viss um að Chelsea geti klárað leikinn í venjulegum leiktíma en hefur samt sem áður skoðað vel upptökur af vítum leikmanna Bayern. Fótbolti 19. maí 2012 17:45
Ætlar Di Matteo að byrja með Ryan Bertrand í úrslitaleiknum í kvöld? Enskir fjölmiðlar spá því að Ryan Bertrand verði í byrjunarliði Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í München í kvöld en þessi 22 ára strákur hefur aldrei spilað leik í Meistaradeildinni áður og lék aðeins 7 leiki í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Fótbolti 19. maí 2012 15:30
Drogba ekki tilbúinn að segja að þetta sé síðasti leikurinn hans Didier Drogba, framherji Chelsea, hefur ekkert viljað tjá sig um hvort að úrslitaleikur Meistaradeildarinnar í München í kvöld, verði síðasta leikurinn hans með Chelsea. Drogba er orðinn 34 ára gamall, samningur hann við enska félagið rennur út í sumar og Chelsea hefur ekki viljað gera við hann tveggja ára samning eins og Drogba sækist eftir. Fótbolti 19. maí 2012 14:00
Höddi Magg hitti stuðningsmenn Bayern og Chelsea í miðborg München Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport, er staddur í München í Þýskalandi þar sem hann ætlar að fylgjast með úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld. Leikur Bayern München og Chelsea hefst klukkan 18.45 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Fótbolti 19. maí 2012 13:32
Ronaldo um sig og Messi: Ekki hægt að bera saman Ferrari og Porsche Cristiano Ronaldo segir að það sé erfitt að bera tvo ólíka leikmenn saman eins og sig sjálfan og Lionel Messi hjá Barcelona. Þeir skoruðu saman 96 mörk í spænsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni og eru í flestra huga tveir bestu knattspyrnumenn heims. Fótbolti 18. maí 2012 23:30