Fluttur á Landspítala eftir að hann drakk eitur í stað vatns Maður var fluttur á Landspítala í gærkvöldi eða nótt eftir vinnuslys í póstnúmerinu 105 en hann hafði tekið eiturefni í misgripum fyrir vatn og drukkið. Innlent 27. mars 2024 06:21
Töskurnar fundust tómar á þremur mismunandi stöðum Þjófar sem taldir eru hafa stolið spilakassafé að andvirði hátt í þrjátíu milljóna króna ganga enn lausir og peningarnir hafa heldur ekki fundist. Töskurnar sjö sem geymdu fjármunina eru allar fundnar. Tvær fundust við Lágafellskirkju í Mosfellsbæ, ein við Bugðufljót og fjórar úti í móa uppi við Esjumela. Innlent 26. mars 2024 20:41
Lögreglan lýsir eftir þjófunum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir tveimur mönnum. Þeir eru grunaðir um að hafa rænt tuttugu til þrjátíu milljónum úr peningaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi í gærmorgun. Innlent 26. mars 2024 17:17
Ekki forsvaranlegt að opna Bláa lónið að mati lögreglu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir óbreytt ástand í Grindavík og í kring og því ekki forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu á meðan eldgos er enn í gangi. Það eigi einnig við um aðra starfsemi á svæðinu. Innlent 26. mars 2024 15:42
Fundu rangan bíl með rétt skráningarnúmer Heimir Ríkharðsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni í Kópavogi, segir að litlar sem engar upplýsingar séu til staðar um þá tvo sem áttu í hlut í ráni á peningaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi í gærmorgun. Innlent 26. mars 2024 15:30
Engu nær um hvellinn dularfulla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er engu nær um hvellinn sem heyrðist víða á höfuðborgarsvæðinu á sunnudagskvöld. Innlent 26. mars 2024 14:56
Gæsluvarðhald framlengt um tvær vikur Gæsluvarðhald yfir þremur sakborningum í mansalsmáli tengdu veitingastöðum Pho Vietnam hefur verið framlengt um tvær vikur. Aðstoðaryfirlögrelguþjónn segir rannsókn miða vel en umfang gagna sé mikið og því hægur gangur. Innlent 26. mars 2024 14:26
Barnið stökk út úr bílnum á ferð Níu ára piltur sem stalst til þess að aka leigubíl um Bakkana í Breiðholti á sunnudag stökk út úr bílnum á ferð þegar lögregla kom auga á hann. Bíllinn endaði uppi á kantsteini og skemmdist lítillega. Innlent 26. mars 2024 14:16
Fundu töskurnar í Mosfellsbæ en þjófarnir enn týndir Töskur sem tveir þjófar stálu í Hamraborg í Kópavogi í gærmorgun fundust í Mosfellsbæ í dag, meðal annars í Esjumelum. Verðmæti höfðu verið tekin úr töskunum. Innlent 26. mars 2024 14:06
Litasprengjur sem eyðileggja verðmæti í töskunum sem var stolið Öryggismiðstöðin segir að fjármunum sem var stolið úr bíl fyrirtækisins úr Hamraborginni í Kópavogi í gærmorgun hafi verið í sérhæfðum læstum verðmætatöskum. Töskurnar eru búnar litasprengjum sem eyðileggja verðmæti ef tilraun er gerð til þess að nálgast þau. Innlent 26. mars 2024 13:44
Þaulskipulögð aðgerð sem tók örfáar sekúndur Tveir þjófar stálu töskum úr peningaflutningabíl Öryggismiðstöðvarinnar í Hamraborg í gær. Þjófnaðurinn virðist hafa verið þaulskipulagður og tók afar skamma stund. Innlent 26. mars 2024 12:05
Brutust inn í peningaflutningabíl og stálu milljónum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja þjófa, sem brutust inn í bifreið í Hamraborg í Kópavogi á tíunda tímanum í gærmorgun og stálu milljónum. Sérsveit var kölluð til eftir að tilkynnt var um innbrotið. Innlent 26. mars 2024 10:34
Reyndu að stela hraðbanka með því að aka lyftara á hann Lyftara var ekið á hraðbanka á Völlunum í Hafnarfirði í nótt í tilraun til að stela honum. Um er að ræða aðra tilraunina til að stela hraðbanka með vinnuvél á stuttum tíma. Sú fyrri var gerð í Breiðholti aðfaranótt laugardagsins. Innlent 26. mars 2024 09:21
Líkamsárásir, þvaglát og ferðamenn í vanda Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölmörgum og fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt og var meðal annars kölluð út vegna fjögurra til sex ferðamanna sem voru sagðir hjálparvana við Gróttuvita. Innlent 26. mars 2024 06:19
Tveir fluttir með sjúkraflugi eftir harðan árekstur Harður árekstur varð á þjóðvegi 1 á fimmta tímanum í dag, um 20 kílómetra frá Blönduósi. Tveir voru fluttir slasaðir með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Innlent 25. mars 2024 21:04
Börnin nýbúin að taka brunaæfingu Engin grunnskólabörn voru í Húsaskóla í Grafarvogi í dag, þar sem eldur kom upp síðdegis í dag. Um 40 leikskólabörn á leikskólanum Fífuborg og 20 börn á frístundaheimilinu Kastala voru í húsinu. Aðstoðarskólastjóri segir börnin hafa vitað upp á hár hvernig bregðast ætti við, vegna brunaæfingar sem haldin var á dögunum. Innlent 25. mars 2024 17:50
Búið að slökkva eldinn í Húsaskóla Búið er að slökkva eld sem kviknaði í þaki Húsaskóla í Grafarvogi í dag. Skólinn hefur verið tæmdur og öllum börnum komið í skjól í nálægu íþróttahúsi. Innlent 25. mars 2024 15:09
Lögreglan leitar að Toyotu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir dökkgráum Toyotu-bíl sem er af gerðinni Yaris, árgerð 2014. Skráningarnúmer bílsins er NMA 87. Innlent 25. mars 2024 14:21
Kæra Ómar til lögreglu og kvarta til siðanefndar og Persónuverndar Ungt par hefur ákveðið að kæra lögmanninn Ómar R. Valdimarsson vegna birtingar hans á viðkvæmum persónuupplýsingum um það á samfélagsmiðlum. Ómar birti tölvupóstsamskipti sín við parið á Facebooksíðu lögmannsstofu sinnar vegna deilu um störf hans í flugbótamáli fólksins. Innlent 25. mars 2024 11:07
Fylgdist með ókunnugum karlmanni fara inn í bílinn hans Íbúi í Grindavík er orðinn langþreyttur á því að ókunnugir geti valsað um í Grindavík. Ókunnugur karlmaður fór inn í bílinn hans í innkeyrslunni við yfirgefið hús hans í bænum. Hann kallar eftir aðgangspössum til Grindvíkinga og betra eftirlits til að standa vörð um eigur Grindvíkinga. Innlent 25. mars 2024 10:45
Barn ók leigubíl í leyfisleysi Myndskeið af ungu barni aka leigubíl um götur Breiðholts hefur verið í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum um helgina. Lögreglan segir málið unnið í samstarfi við foreldra og barnaverndaryfirvöld. Innlent 25. mars 2024 10:22
Nokkur útköll þar sem kalla þurfti til foreldra og barnavernd Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti þó nokkrum útköllum í gærkvöldi og nótt þar sem ungmenni komu við sögu og í þremur tilvikum þurfti að kalla til foreldra og fulltrúa barnaverndar. Innlent 25. mars 2024 06:29
Kærustuparið og bróðirinn enn í haldi Davíð Viðarsson, kærasta hans og bróðir hans sæta enn einangrun í tengslum við rannsókn lögreglu á vinnumansali, peningaþvætti og skipulagðri brotastarfsemi. Bókara fyrirtækja Davíðs, föður hennar og eiginkonu bróður hans hefur verið sleppt. Innlent 24. mars 2024 11:19
Innbrot til rannsóknar eftir nóttina Lögregla hefur til rannsóknar tvö innbrot eftir nóttina. Eitt á skemmtistað og annað í verslun. Innlent 24. mars 2024 07:36
Missti stjórn á skapi sínu og dró upp hníf Maður á þrítugsaldri var handtekinn í versluninni Hagkaup í Skeifunni í gærkvöldi eftir að hafa ógnað fólki með hnífi. Maðurinn missti stjórn á skapi sínu. Innlent 23. mars 2024 10:08
Með tvo hnífa á lofti í Hagkaup Maður var handtekinn í gærkvöldi eftir að hafa sýnt ógnandi tilburði inn í verslun í Reykjavík. Innlent 23. mars 2024 09:03
Sérsveitin kölluð til og maður handtekinn í Hagkaup Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í Hagkaup í Skeifunni í kvöld. Að sögn vitna var mikill fjöldi ungra pilta á svæðinu en ekki liggur fyrir hvort þeir tengjast málinu. Innlent 23. mars 2024 01:07
Einum til sleppt úr haldi Einum til viðbótar hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikið mansalsmál. Rannsóknarhagsmunir eru ekki lengur taldir fyrir hendi. Innlent 21. mars 2024 17:21
Nýjar vísbendingar í áratugagömlu íslensku morðmáli Ný vitni hafa stigið fram í áratugagömlu óupplýstu morðmáli sem vakti mikinn óhug meðal þjóðarinnar. Sigursteinn Másson, sem nú hefur einnig fengið aðgang að öllum rannsóknargögnum lögreglunnar varpar nýju ljósi á málið í nýrri þáttaröð sem hefur göngu sína í kvöld. Innlent 21. mars 2024 14:18
Tveimur úr mansalsmálinu sleppt úr haldi Tveimur af þeim sex sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að umfangsmiklu mansalsmáli var sleppt úr haldi síðdegis í gær þar sem þeirra hlutur í málinu telst upplýstur. Innlent 21. mars 2024 11:06