Ákærð fyrir að ljúga nauðgun upp á mann sem svipti sig lífi Tuttugu og þriggja ára gömul kona hefur verið ákærð fyrir að hafa borið mann röngum sökum um að hann hafi nauðgað henni. Tæpum mánuði eftir að maðurinn var handtekinn eftir kæru konunnar fyrirfór hann sér. Innlent 15. nóvember 2023 13:17
Stefán Logi grunaður um stórfellda líkamsárás Stefán Logi Sívarsson, rúmlega fertugur karlmaður sem á að baki langan sakaferil fyrir ofbeldisbrot, sætir nú gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði. Hann er sakaður um stórfellda líkamsárás fyrir rúmri viku. Innlent 15. nóvember 2023 10:50
Tilbúin með áætlanir fyrir daginn Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna, segir nóttina hafa verið nokkuð rólega og tíðindalausa. Dagurinn byrji núna með mati vísindamanna á nýjum gögnum. Innlent 15. nóvember 2023 08:02
Rýmdu bæinn á 95 sekúndum Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, segir að vonandi verði hægt að hleypa Grindvíkingum aftur tímabundið inn í bæinn á morgun. Bærinn var rýmdur í dag þegar tugir íbúa voru þar, en rýmingin tók 95 sekúndur. Innlent 14. nóvember 2023 18:24
„Þetta skotgekk en þetta er óheppilegt“ Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjórinn á Suðurnesjum, segir í samtali við Vísi að Grindavík hafi verið rýmd vegna þess að lögreglu barst boð þess efnis frá samhæfingarstöð almannavarna. Innlent 14. nóvember 2023 15:36
Rýma bæinn og bíða svo og sjá Verið er að rýma Grindavík í þessum töluðu orðum af öryggisástæðum. Samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum mældist SO2 gas í gasmælum Veðurstofunnar. Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi áréttar að ekki sé um neyðarrýmingu að ræða. Rýming verði gerð skipulega. Innlent 14. nóvember 2023 15:07
Hleypa öllum inn í bæinn: Hámark tveir í hverjum bíl Lögreglan á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa öllum íbúum Grindavíkur inn í bæinn núna. Innlent 13. nóvember 2023 13:45
Víðtæk lokun hindrar för um stóran hluta Reykjanesskaga Akstursbann það sem Almannavarnir tilkynntu um á föstudagskvöld á öllum leiðum til Grindavíkur er enn í gildi. Svo víðtæk er lokunin að hún bannar för ökutækja um stóran hluta Reykjanesskagans. Innlent 13. nóvember 2023 10:43
Ölvaður ökumaður ók á ljósastaur Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um að bíl hafði verið ekið á ljósastaur í hverfi 103 í Reykjavík. Þegar að var komið var bíllinn var ofan á ljósastaurnum og ökumaðurinn enn í ökumannssætinu. Innlent 13. nóvember 2023 07:28
Þó nokkur verkefni vegna ökumanna og annarra í annarlegu ástandi Lögregla sinnti nokkrum útköllum í gærkvöldi og nótt þar sem tilkynnt var um einstaklinga í annarlegu ástandi og aðstoðar þurfti við til að koma þeim á brott. Innlent 13. nóvember 2023 05:55
„Nú er biðstaða“ Lögreglan á Suðurnesjum og aðrir viðbragðsaðilar eru nú í biðstöðu. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir nóttina hafa verið viðburðarlitla en viðbragðsaðilar munu funda klukkan 11:00. Innlent 12. nóvember 2023 10:24
Ók ölvaður á gangandi vegfaranda Einn var handtekinn og vistaður í fangaklefa eftir að hafa ekið ölvaður á gangandi vegfaranda í miðbæ Reykjavíkur. Vegfarandinn hlaut minniháttar meiðsl en ekki er nánar greint frá áverkum hans. Innlent 12. nóvember 2023 05:28
Slepptu einum úr haldi en vilja halda fimm lengur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sleppti einum, sem handtekinn var í tengslum við skotárás í Úlfarsárdal, úr gæsluvarðhaldi í gær. Eftir hádegi verður gerð krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fimm sem grunaðir eru um aðild að árásinni. Innlent 10. nóvember 2023 11:01
Fundu sand af seðlum og svo fíkniefni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi ökumann vegna gruns um sölu og dreifingu fíkniefna, þar sem mikið magn reiðufjár var í bifreiðinni. Innlent 10. nóvember 2023 07:48
Sérsveit kölluð til vegna minniháttar rifrildis Lögreglu barst í gærkvöldi tilkynning um hóp manna að veitast að einum manni. Einn var sagður hafa haldið hníf upp að árásarþola. Lögregla fór þegar á vettvang ásamt sérsveit en málið reyndist minniháttar rifrildi. Innlent 10. nóvember 2023 07:31
Flúðu á hlaupum eða bíl í fyrstu heimsókn Fyrsta heimsókn starfsfólks Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur (HER) í geymslurými í kjallaranum í Sóltúni 20 virðist hafa komið fólki á svæðinu í opna skjöldu. Þeir tóku á rás og ekki náðist að ræða við þá. Innlent 9. nóvember 2023 15:55
Starfsfólk Vy-þrifa reyndi að koma matvælum undan Tæplega fimm tonn af matvælum sem höfðu nýlega verið flutt til Íslands voru á meðal þeirra sem fundust í geymslu í kjallara húsnæðis við Sóltún í Reykjavík í lok september. Þá eru vísbendingar um að fólk hafi dvalið í geymslunni og er sá angi málsins kominn á borð lögreglu. Innlent 9. nóvember 2023 15:03
Ferðamaður mögulega ísbjörninn á Langjökli Leit lögreglunnar á Vesturlandi og Landhelgisgæslunnar að ísbirni á Langjökli í gær skilaði litlu. Enginn hvítabjörn fannst og enginn ummerki eftir slíkt dýr heldur. Innlent 8. nóvember 2023 11:31
Sprengingar í Seljahverfi og „mögulegt rán“ í 105 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til vegna háværra spreninga í Seljahverfi í Reykjavík í nótt en ekkert var að heyra eða sjá þegar hún mætti á vettvang. Innlent 8. nóvember 2023 06:18
Landhelgisgæslan og lögregla um borð í Amelíu Rose Landhelgisgæslan stöðvaði farþegaskipið Amelíu Rose um átta sjómílur úti fyrir Akranesi í dag. Í ljós kom að farþegafjöldi á skipinu var margfaldur miðað við leyfilegan fjölda. Upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir málið alvarlegt en skipið hafi ítrekað verið stöðvað með of marga farþega. Innlent 7. nóvember 2023 18:48
Vísbendingar um ísbjörn á Langjökli Lögreglan á Vesturlandi og Landhelgisgæslan leita nú mögulegs ísbjarnar á Langjökli. Þetta staðfestir Kristján Ingi Kristjánsson, settur yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, í samtali við fréttastofu. Innlent 7. nóvember 2023 16:04
Losnaði úr fangelsi fjórum mánuðum eftir tveggja ára dóm Karlmaðurinn sem særðist í skotárás við Silfratjörn í Úlfarsárdal í síðustu viku losnaði úr fangelsi í sumar. Hann hlaut tveggja ára fangelsisdóm í mars fyrir sérlega hættulega líkamsárás, en losnaði úr fangelsi í júlí. Ástæðan mun vera sú að hann hafði þegar afplánað stóran hluta refsingar sinnar í gæsluvarðhaldi. Innlent 7. nóvember 2023 14:43
Telja sig vita hver krafðist vopnahlés Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig vita hver spreyjaði stór skilaboð til Alþingismanna í gærmorgun. Innlent 7. nóvember 2023 10:30
Hvellirnir afleiðing strákapara í Fellunum Miklir hvellir sem heyrðust víða á höfuðborgarsvæðinu seint í gærkvöldi voru hvellir í flugeldum, sem átt hafði verið við, í Fellunum í Breiðholti. Innlent 6. nóvember 2023 10:24
Mikill léttir að vera heima en ekki í Laugardalnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um einstakling sem var að banka á hurðir á fjölbýlishúsi í dag. Þegar lögreglu bar að garði sá hún einstaklinginn sofandi ölvunarsvefni í sameign fjölbýlishússins. Innlent 5. nóvember 2023 17:30
Árekstur á Þingvallavegi Lögregla og sjúkralið var kallað til vegna áreksturs á Þingvallavegi í morgun. Innlent 5. nóvember 2023 10:01
Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála Lögreglu barst tilkynning um mann sem reyndi ítrekað að stofna til slagsmála rétt fyrir klukkan hálf fimm í morgun. Hann var handtekinn á vettvangi og kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt en látinn laus að því loknu. Innlent 5. nóvember 2023 07:28
Miklar umferðartafir í Hafnarfirði vegna lögregluaðgerða Stór lögregluaðgerð er í gangi í Hafnarfirði. Mikil umferðarteppa er á svæðinu og hefur umferð verið beint í aðra átt. Innlent 4. nóvember 2023 16:13
Slagsmál reyndust rán Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Lögreglan fékk tilkynningu um slagsmál í miðbæ Reykjavíkur um hálf tíuleytið í gærkvöldi og fór strax á vettvang. Þar komst hún að því að nokkrir einstaklingar virtust vera að ræna einn. Innlent 4. nóvember 2023 07:25
Keyrði á gangandi vegfaranda og stakk af Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir vitnum vegna umferðarslyss þar sem ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Þingvallastrætis og Dalsbrautar klukkan 18:15 í kvöld. Ökumaður bifreiðarinnar ók af vettvangi án þess að tilkynna slysið. Innlent 3. nóvember 2023 20:03