Hnéspark í höfuðið við Hlölla 23 ára karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Ingólfstorgi við Hlöllabáta í Reykjavík aðfaranótt fimmtudagsins 20. júlí 2017. Innlent 29. nóvember 2019 08:45
Eftirför á 120 kílómetra hraða Lögregluþjónar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gerðu í nótt tilraun til að stöðva bíl á Bústaðavegi við Flugvallarveg. Innlent 29. nóvember 2019 06:54
Kölluð til vegna kennara sem mætti í annarlegu ástandi á jólaföndur Ljóst er að nokkuð annasamt hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu framan af kvöldi. Innlent 28. nóvember 2019 23:17
Tilkynnt um líkamsárás í miðborginni Lögreglan handtók í gærkvöldi mann í miðborginni vegna gruns um líkamsárás. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi verið vistaður í fangageymslu vegna rannsókn máls. Innlent 28. nóvember 2019 07:44
Enn einu sinni undir áhrifum við akstur en nú á vespu Kona á fertugsaldri hefur verið dæmd í þrjátíu daga fangelsi og svipt ökuréttindum ævilangt eftir að hafa verið stöðvuð endurtekið án réttinda eða undir áhrifum við akstur. Innlent 27. nóvember 2019 11:06
Fór inn um dyr beint á móti lögreglustöðinni á Ísafirði Maðurinn sem braust inn í Hamraborg á Ísfirði, aðfaranótt sunnudags, hefði allt eins getað verið frá tóbaksvarnarráði. Innlent 27. nóvember 2019 09:15
Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem er til rannsóknar. Innlent 26. nóvember 2019 17:08
Ákærður fyrir tilraun til manndráps á bílastæði fyrir utan Bónus Manninum er gefið að sök að hafa veist að þolanda sínum með ofbeldi, stungið hann í höfuðið og slegið hann. Innlent 26. nóvember 2019 14:43
Lögreglan leitar manns í tengslum við innbrot á Ísafirði Lögreglan á Vestfjörðum hefur lýst eftir karlmanni í tengslum við rannsókn á innbroti í verslunina Hamraborg á Ísafirði, sem varð aðfaranótt sunnudagsins 24. nóvember síðastliðinn. Innlent 26. nóvember 2019 10:53
Sagður hafa lýst áætlunum um að drepa saksóknara og hengja lögreglustjóra Saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir karlmann um þrítugt hafa hringt í sig dag sem nótt og sömuleiðis eiginmann sinn. Engu máli skipti þótt saksóknarinn væri hættur rannsókn máls mannsins sem er brotaþoli í málinu sem er til rannsóknar. Innlent 26. nóvember 2019 10:14
Ferðamaður greiddi 190 þúsund króna sekt á staðnum Nokkrir ökumenn hafa verið staðnir að ofsaakstri á Reykjanesbraut undanfarna daga. Innlent 26. nóvember 2019 09:47
Vanhæfi hjá lögreglu tefur fyrir nálgunarbanni Landsréttur hefur ómerkt nálgunarbann yfir þrítugum karlmanni þar sem draga mátti í efa óhlutdrægni saksóknara í málinu. Karlmaðurinn þrítugi fékk nýlega upptekið tæplega tveggja áratuga gamalt kynferðisbrotamál sem legið hefur þungt á honum. Innlent 26. nóvember 2019 07:00
Spennti upp glugga og rændi íbúð Ýmislegt kom inn á borð lögreglunnar í gærkvöldi og í nótt, til dæmis var tilkynnt um innbrot og þjófnað í hverfi 104 þar sem gluggi var spenntur upp og farið inn. Innlent 26. nóvember 2019 06:53
Manni haldið í einangrun vegna gruns um ítrekað heimilisofbeldi Landsréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni sem grunaður er að hafa beitt eiginkonu sína grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi á heimili þeirra fyrr í þessum mánuði. Innlent 25. nóvember 2019 22:46
Náðist með tvö kíló af kókaíni í Leifsstöð Íslenskur karlmaður er nú í gæsluvarðhaldi fyrir að hafa reynt að smygla tæplega tveimur kílóum af kókaíni til landsins fyrr í mánuðinum. Lögreglan á Suðurnesjum hefur haldlagt á fimmta tug kílóa af sterkum fíkniefnum það sem af er ári. Innlent 25. nóvember 2019 19:15
Yfirlögregluþjónn vill auka löggæslu til að sporna gegn hraðakstri Töluverðar fjárhæðir tapast ár hvert vegna óborgaðra hraðasekta. Ítrekað kemur upp sú staða að erlendir ferðamenn fái háar fjársektir fyrir of háan akstur, sem kemst upp um í gegn um hraðamyndavélar, en þær eru aldrei borgaðar. Innlent 25. nóvember 2019 18:17
Maðurinn sem leitað var að er fundinn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir karlmanni. Hann er fæddur árið 1992 og er talinn vera í svartri úlpu, gráum buxum og grárri hettupeysu. Innlent 25. nóvember 2019 13:53
Náði myndskeiði af utanvegaakstri sem leiddi til 150 þúsund króna sektar Ökumaður jepplings á Suðurlandi var sektaður um 150 þúsund krónur í síðustu viku fyrir að hafa ekið í hringi utan vegar á Skeiðarársandi. Þetta kemur fram í skýrslu Lögreglunnar á Suðurlandi um verkefni síðustu viku. Innlent 25. nóvember 2019 13:22
Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um grófa árás gegn ungri konu Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á föstudaginn á gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu yfir tvítugum karlmanni sem grunaður er um tilraun til manndráps eða mjög grófa líkamsárás á sautján ára kærustu sína. Innlent 25. nóvember 2019 11:28
Drukkinn ferðamaður með of marga farþega Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann í vesturbæ Reykjavíkur um klukkan tvö í nótt. Innlent 25. nóvember 2019 06:35
Leita erlendra árásarmanna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að þremur erlendum mönnum í tengslum við fólskulega árás á þrjá dyraverði. Innlent 25. nóvember 2019 06:15
Lögreglan leitar að eiganda bílhurðar Lögreglan á Suðurnesjum hefur nú í fórum sínum bílhurð og í færslu á Facebook-síðu Lögreglustjórans á Suðurnesjum hefur nú verið auglýst eftir réttmætum eiganda hurðarinnar. Innlent 24. nóvember 2019 17:18
Maðurinn sem lýst var eftir er fundinn Ólafur Lárusson er fundinn. Lögreglan lýsti eftir honum í morgun en í gær hvarf hann frá Rangárseli. Lögreglan þakkar veitta aðstoð. Innlent 24. nóvember 2019 08:19
Þrír dyraverðir slasaðir eftir að ráðist var á þá Tilkynnt var um líkamsárás á veitingahúsi í miðbænum þegar klukkan var að ganga hálf tvö. Dyraverðir voru að vísa þremur mönnum úr húsi þegar mennirnir réðust á þá. Innlent 24. nóvember 2019 07:39
Erlendir ferðamenn sleppa oftast við hraðasektargreiðslur meðan Íslendingar greiða Félag íslenskra bifreiðaeiganda vekur athygli á að nánast allar hraðasektir sem erlendir ferðamenn fá séu felldar niður. Þannig séu um 250 milljónir á ári afskrifaðar. Framkvæmdastjórinn telur eðlilegt að tekið sé á þessu í nýjum umferðarlögum. Innlent 23. nóvember 2019 15:00
Hvernig á að finna óþrifafé? Það er ekki spurning að margir stunda peningaþvætti hér á landi að sögn stjórnarmanns í félaginu Gagnsæi. Félagið, Blaðamannafélag Íslands og Kjarninn standa í dag fyrir vinnustofunni "Hvernig á að finna óþrifafé“ Innlent 23. nóvember 2019 15:00
Mótorhjólamaður flúði lögreglu óttin var fjörug hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og var nóg um að vera, sérstaklega í miðborginni. Innlent 23. nóvember 2019 09:29
Ekið á hjólreiðamann á Akureyri Ekið var á hjólreiðamann á Miðhúsabraut við Þórunnarstræti á Akureyri upp úr klukkan tvö í dag. Var hjólreiðamaðurinn fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. Innlent 22. nóvember 2019 14:59
Lögreglumaður ákærður fyrir líkamsárás í starfi Tæplega þrítugur lögreglumaður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi. Er lögreglumaðurinn sakaður um að hafa ekki gætt lögmætra aðferða við handtöku karlmanns. Innlent 22. nóvember 2019 09:30
Ofbeldi og hótanir í október Í október voru skráð níu tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi.Það sem af er ári hafa verið skráð um 34 prósent fleiri slík tilvik en skráð voru að meðaltali síðustu þrjú ár á undan. Innlent 21. nóvember 2019 22:27