Heimilisfaðir gengst við fíkniefnaræktun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann sem grunaður er um líkamsárás og brot á vopnalögum. Þolandinn er sagður hafa hlotið minniháttar áverka. Innlent 1. september 2021 06:21
Hótaði að skjóta flóðljósin á Laugardalsvelli niður Maðurinn sem hafði í hótunum við starfsfólk Knattspyrnusambands Íslands í höfuðstöðvum sambandsins fyrr í dag hótaði að nota skotvopn til þess að skjóta flóðljós Laugardalsvallar niður. Innlent 31. ágúst 2021 18:47
Lögregla kölluð til að höfuðstöðvum KSÍ Lögreglan var kölluð til að höfuðstöðvum KSÍ fyrr í dag þegar maður gekk þar inn og hafði í hótunum í starfsfólk. Þetta staðfestir Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Innlent 31. ágúst 2021 14:48
Lögregla lýsir eftir Veroniku Lögreglan á Suðurnesjum hefur lýst eftir Veroniku Regínu Hafþórsdóttur sem er fædd 2003. Innlent 31. ágúst 2021 12:49
Brotist inn í níu geymslur og verðmætum stolið Brotist var inn í níu geymslur í fjölbýlishúsi í póstnúmerinu 110 í nótt. Voru hurðir spenntar upp og verðmætum stolið, meðal annars dýru rafmagnsfjallahjóli. Innlent 31. ágúst 2021 05:55
Hjúkrunarfræðingurinn laus úr haldi lögreglu Hjúkrunarfræðingur sem sakaður er um að hafa orðið sjúklingi á geðdeild að bana er laus úr haldi lögreglu. Landsréttur felldi í dag úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 30. ágúst 2021 17:26
Útiloka hvorki ásetning né gáleysi Lögreglan útilokar ekki að ásetningur hafi legið að baki þegar kona, sem lögð hafði verið inn á geðdeild Landspítalans, lést fyrr í mánuðinum. Hjúkrunarfræðingur á geðdeildinni er grunuð um að hafa orðið valdur að dauða konunnar. Innlent 30. ágúst 2021 11:29
Skotmaðurinn úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald Maðurinn sem skotinn var af lögreglu, og grunaður er um skotárás, á Egilsstöðum fimmtudaginn 26. ágúst hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Gæsluvarðhaldið rennur út laugardaginn 11. september. Innlent 30. ágúst 2021 10:35
Maðurinn er kominn í leitirnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Innlent 30. ágúst 2021 10:19
Ekkert sem bendir til að verklagi lögreglu hafi ekki verið fylgt Ekkert bendir á þessu stigi til þess að verklagi lögreglu í atburðunum sem áttu sér stað í Dalseli á Egilsstöðum aðfararnótt föstudagsins hafi ekki verið fylgt. Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi sem hafi rýnt í atburðina innanhúss. Þá segir að lögreglumenn sem að aðgerðinni komu hafi fengið sálræna aðstoð. Innlent 30. ágúst 2021 07:52
Segir Landspítalann notast við hugmyndafræði sem leyfi þvinganir Málfríður Hrund Einarsdóttir, formaður Hugarafls, harmar andlát sem talið er hafa borið að með saknæmum hætti á geðdeild Landspítalans fyrr í mánuðinum en segir atvikið ekki koma sér á óvart. Innlent 29. ágúst 2021 22:52
Hjúkrunarfræðingur á Landspítala grunaður um manndráp Hjúkrunarfræðingur á geðdeild Landspítalans hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um manndráp. Heimildir fréttastofu herma að hjúkrunarfræðingurinn hafi reynt að þvinga mat ofan í sjúkling með þeim afleiðingum að hann kafnaði. Sjúklingurinn var kona á sextugsaldri en hún lést fyrr í þessum mánuði. Innlent 29. ágúst 2021 11:55
Lögregla telur lát konu á Landspítala hafa borið að með saknæmum hætti Andlát konu á sextugsaldri sem lést á Landspítalanum fyrr í þessum mánuði er talið hafa borið að með saknæmum hætti. Rannsókn lögreglu er sögð miða vel og var kona á sextugsaldri úrskurðuð í gæsluvarðhald í síðustu viku. Innlent 29. ágúst 2021 10:26
Hvetur íbúa til að standa saman eftir skotárásina Sveitarstjóri Múlaþings hvetur íbúa á Egilsstöðum til þess að standa við bakið hver á öðrum eftir skotárás sem varð í bænum í fyrradag og er þakklátur lögreglu fyrir góð viðbrögð. Nokkrar fjölskyldur hafa leitað sér áfallahjálpar eftir árásina. Innlent 28. ágúst 2021 12:34
Reyndi að bíta lögreglumenn Karlmaður sem tilkynnt var um að hefði verið ógnandi í garð ungmenna reyndi að bíta lögreglumenn eftir að hann var handtekinn. Innlent 28. ágúst 2021 07:07
Bæjarbúar skelkaðir og þeim boðin áfallahjálp Íbúar á Egilsstöðum eru slegnir eftir að lögregla skaut mann þar í gærkvöldi. Líðan skotmannsins er stöðug en hann gekkst undir aðgerð í nótt eftir að hafa orðið fyrir skoti í kviðinn. Innlent 27. ágúst 2021 21:06
Líðan skotmannsins stöðug eftir aðgerð Karlmaður á fimmtugsaldri sem skotinn var af lögreglu á Egilsstöðum í gærkvöldi liggur á gjörgæsludeild Landspítalans. Líðan hans er stöðug en hann gekkst undir aðgerð í nótt eftir að hafa verið skotinn í kviðinn. Innlent 27. ágúst 2021 17:49
Blóðugur á ferli í miðbænum með hníf og nokkuð magn fíkniefna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í morgun mann sem tilkynnt hafði verið að væri á ferli í miðbænum, blóðugur með hníf. Innlent 27. ágúst 2021 13:54
Mætti með loftbyssu og skaut á glerhurð Nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja mætti með loftbyssu og skaut úr henni inni í skólanum síðastliðinn föstudag. Innlent 27. ágúst 2021 12:52
Mætti heim til barnsföður kærustu sinnar Karlmaður á fimmtugsaldri var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík frá Egilsstöðum í gær eftir að lögregla skaut hann við Dalsel í útjaðri bæjarins í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætlaði hann að eiga samskipti við barnsföður kærustu sinnar sem býr í götunni og mætti þangað vopnaður. Innlent 27. ágúst 2021 12:51
Opna áfallamiðstöð eftir atburði gærkvöldsins Rauði Krossinn mun opna áfallamiðstöð í Egilstaðaskóla vegna atviks sem þar kom upp í gærkvöldi, þegar lögregla skaut vopnaðan karlmann á Egilsstöðum. Innlent 27. ágúst 2021 12:21
Íbúi í húsi sem skotið var á: „Maður á ekki von á villta vestrinu hérna í ysta útverfi Egilsstaða“ „Húsið er allt sundurskotið. Það eru þrír gluggar hérna í húsinu sundurskotnir. Maður á ekki von á villta vestrinu hérna í ysta úthverfi Egilsstaða. Kannski í Reykjavík, en ekki hér.“ Innlent 27. ágúst 2021 08:48
Maður fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir að hafa verið skotinn af lögreglu Maður var fluttur frá Egilsstöðum til Reyjavíkur í nótt eftir að hafa verið skotinn af lögreglu. Hann hafði áður skotið að lögreglu og neitað að leggja frá sér vopn sitt. Innlent 27. ágúst 2021 06:17
Einn laminn með hælaskó og öðrum hrint í veg fyrir bíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók konu um klukkan 19 í gærkvöldi eftir að hún hafði lamið vegfaranda á Hverfisgötu með hælaskól í höfuðið. Fólkið þekktist ekki og ekki er vitað hvað konunni gekk til, segir í tilkynningu lögreglu. Innlent 27. ágúst 2021 06:05
Lögreglan skaut mann vopnaðan byssu á Egilsstöðum í kvöld Lögreglan á Egilsstöðum skaut mann sem vopnaður var byssu á ellefta tímanum í kvöld. Lögreglan var kölluð út að Dalseli á Egilsstöðum um klukkan hálf ellefu eftir að skothvellir heyrðust í götunni. Innlent 26. ágúst 2021 23:21
Rannsókn að ljúka í fimm kannabismálum: Málin tengjast Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fimm málum sem tengjast skipulagðri kannabisframleiðslu, lýkur á næstu tveimur vikum. Fimm hafa réttarstöðu sakbornings. Málin tengjast öll með einum eða öðrum hætti að sögn yfirlögregluþjóns. Innlent 26. ágúst 2021 15:00
Byssumaður ákærður: „Ég er að fara að stúta einum gaur skilurðu“ 29 ára karlmaður hefur verið ákærður fyrir að beina hlaðinni skammbyssu að fólki og lögreglumönnum við og nærri Kaffistofu Samhjálpar í júní síðastliðnum. Maðurinn hafði ekki skotvopnaleyfi, hann var með 24 skothylki og ekkert öryggi á byssunni. Hann er grunaður um handrukkun og hnífaárás á veitingastaðnum Sushi Social. Innlent 26. ágúst 2021 10:53
Lögregla leitar ljósum logum að karókíþyrstu Covid-sjúklingunum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veit engin deili á fólki sem tilkynnt var um að ætlaði sér á karókíkvöld á skemmtistaðnum Gauknum í Reykjavík í gær, þrátt fyrir að hluti hópsins væri Covid-smitaður. Málinu er þó ekki lokið af hálfu lögreglu. Innlent 25. ágúst 2021 10:28
Rúðubrot, eldur og ónáðaseggir Verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru nokkuð fjölbreytt í gærkvöldi og nótt. Lögregla var meðal annars kölluð til í tvígang vegna manns sem var með ónæði á veitingastöðum í miðborginni. Hefur viðkomandi ítrekað komið við sögu lögreglu. Innlent 25. ágúst 2021 06:15
Gauknum lokað skyndilega vegna karaokíþyrstra Covid-sjúklinga Skemmtistaðurinn Gaukurinn verður lokaður í kvöld eftir að stjórnendum staðarins barst það til eyrna að karaokí þyrstir Covid-sjúklingar hygðust mæta á karaokí-kvöld, sem átti að vera á staðnum í kvöld. Þetta staðfestir rekstrarstjóri Gauksins í samtali við fréttastofu. Viðskipti innlent 24. ágúst 2021 18:19