Sérsveitin kölluð út vegna „torkennilegs hlutar“ á Selfossi Lögregla á Suðurlandi er með mikinn viðbúnað nærri Fjölbrautaskóla Suðurlands og Vallaskóla á Selfossi eftir að tilkynnt var um „torkennilegan hlut“ á götu við skólann. Að sögn lögreglu er um að ræða ósprungna sprengju sem svipaði til þeirra sem fjallað var um í fréttum Stöðvar 2 í gær. Innlent 15. september 2022 11:03
Þrjú hundruð pörum af skóm stolið á Selfossi Þrjú hundruð skópörum var stolið úr Skóbúð Selfoss en þjófurinn eða þjófarnir söguðu gat á húsið til að komast inn. Allir skórnir voru teknir úr kössunum áður en að farið var með þá úr versluninni. Innlent 14. september 2022 22:14
Ungmenni útbúa sprengjur á Selfossi Sprengjusérfræðingar á vegum ríkislögreglustjóra voru kallaðir út á Selfossi í gær til að eyða heimagerðri sprengju. Sprengjan er ein nokkurra sem útbúin var af ungmennum í bænum. Lögregla segir sprengjurnar vera kraftmiklar og skapa verulega hættu. Innlent 14. september 2022 19:29
Ósáttur við „óstöðvandi hlátur“ og kallaði á lögreglu Lögregla var kölluð út rétt fyrir klukkan eitt í dag vegna hlæjandi manns en tilkynnandi kvaðst hafa heyrt „óstöðvandi hlátur“ allan morguninn - og fram yfir hádegi. Innlent 14. september 2022 18:33
Þjófurinn sagaði gat á þakið á Prinsinum og lét sig síga niður Fimm sinnum hefur verið brotist inn í sjoppuna Prinsinn í Árbænum í Reykjavík á árinu. Síðasta innbrotið vakti kátínu eigandans fyrir frumlegheit. Hann vekur þó athygli þjófanna á því að engin verðmæti séu til að stela í sjoppunni. Innlent 14. september 2022 12:06
Handtekinn fyrir fíkniefnasölu en grunaður um ólöglega dvöl Ökumaður bíls, sem var stöðvaður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í reglubundnu eftirliti í nótt, er grunaður um að hafa komið ólöglega inn á Schengen-svæðið. Innlent 14. september 2022 06:19
Vísbendingar um heimatilbúnar sprengjur á Selfossi Lögreglan á Suðurlandi segir að undanfarna daga hafi embættinu borist tilkynningar um sprengingar á Selfossi. Leifar af sprengibúnaði beri þess merki að um heimatilbúnar sprengjur sé að ræða. Innlent 13. september 2022 18:17
Látinn eftir slys á fjórhjóli í Þingeyjarsveit Karlmaður á áttræðisaldri er látinn eftir að fjórhjól sem hann var á, valt í Þingeyjarsveit á miðvikudaginn í síðustu viku. Innlent 13. september 2022 14:39
Fjöldi kvenna í Kvennaathvarfinu þegar orðinn meiri en í fyrra Fleiri konur og börn hafa dvalið í Kvennaathvarfinu það sem af er ári en gerðu allt árið í fyrra. Aðsókn í viðtalsþjónustu athvarfsins hefur þá margfaldast frá árinu 2021. Innlent 13. september 2022 14:27
Sleppt úr varðhaldi en sætir áfram farbanni vegna dópsmygls Landsréttur hefur úrskurðað konu til að sæta farbanni til 27. september næstkomandi eftir að hún gerði, í félagi við aðra konu, tilraun til að smygla amfetamíni með flugi til landsins um miðjan síðasta mánuð. Innlent 13. september 2022 13:57
Kannabisfnykur kom upp um ræktanda Lögreglan fann í gær kannabisræktun í Hafnarfirði eftir að hafa fundið kannabislykt úr íbúðinni sem ræktað var í. Einnig fundust tilbúin efni þar og ræddi lögregla við einn mann sem grunaður er í málinu. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 13. september 2022 06:27
Tvítugur Letti reyndi að smygla inn nær hreinu kókaíni Tvítugur karlmaður frá Lettlandi hefur verið ákærður fyrir að hafa reynt að koma nokkuð miklu magni af nær hreinu kókaíni fram hjá tollvörðum í Leifsstöð. Innlent 12. september 2022 23:45
Óska eftir vitnum að átökum Lögreglan á Akureyri hefur óskað eftir því að vitni að átökum sem áttu sér stað síðdegis í miðbæ Akureyrar í dag gefi sig fram. Innlent 12. september 2022 18:08
Þvinguðu ungt par í bíltúr og rændu með ógnandi tilburðum Tveir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir frelsissviptingu og rán sem hófst fyrir utan Hagkaup í Skeifunni. Þeim er gefið að sök að hafa hótað karli og konu með hníf, og látið fólkið keyra með sig um Reykjavík. Auk þess hafi þeir haft af fólkinu peninga, síma og bíllykla. Innlent 12. september 2022 16:11
Heimilisofbeldismál aldrei fleiri hér á landi Fjöldi tilvika tilkynninga til lögreglunnar um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra/tengdra aðila og á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 hefur aldrei verið meiri, ef litið er til sama tímabils síðustu sjö ára á undan. Beiðnir um nálgunarbann hafa ekki verið færri síðan 2014. Innlent 12. september 2022 14:45
Tilkynnt um rúmlega tuttugu nauðganir á mánuði Lögregla á Íslandi skráði um 125 nauðganir fyrstu sex mánuði ársins 2022 og samsvarar það um 28 prósenta fjölgun frá því á síðasta ári. Ef borið er saman við sama tímabil síðustu þrjú ár þar á undan þá fjölgar skráðum nauðgunum um 30 prósent og eru nú að meðaltali skráðar tilkynningar um 21 nauðgun á mánuði hjá lögreglunni. Innlent 12. september 2022 13:11
Fjarlægðu skriðdýr af vettvangi fíkniefnasölu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ræddi í gærkvöldi við húsráðendur á heimili þar sem fíkniefnasala fór fram. Á heimilinu var skriðdýr sem var fjarlægt en óheimilt er að eiga slíkt dýr hér á landi. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en ekki er vitað af hvaða tegund skriðdýrið var. Innlent 12. september 2022 07:45
Mikil fjölgun öryggismyndavéla við heimili: Góðkunningjar lögreglu þekkjast oft á upptökum Töluverð aukning hefur orðið á því að myndbandsupptökur berist lögreglu í þjófnaðarmálum, en þær liggja fyrir í fjórða hverju máli. Sala á öryggismyndavélum til heimila hefur margfaldast en á sama tíma hefur kvörtunum til Persónuverndar vegna slíkra myndavéla fjölgað. Innlent 12. september 2022 06:00
Handtekinn vopnaður í húsgagnaverslun Karlmaður var handtekinn vopnaður í húsgagnaverslun í austurborginni um hádegisbil í dag. Verslunin var lokuð en vegfarandi kom auga á manninn, sem var sofandi inni í versluninni með vopn undir höndum. Innlent 11. september 2022 15:19
Mikil ölvun í nótt og grunur um tvær byrlanir Mikið hefur verið um að vera í borginni í gærkvöld í nótt en lögregla hafði í nógu að snúast, meðal annars vegna hávaðatilkynninga og ölvunar í miðbænum. Grunur er um að tveimur hafi verið byrlað í nótt. Innlent 11. september 2022 07:26
Börn grýttu hús í Breiðholti Töluverður erill hefur verið hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag. Um klukkan fjögur var tilkynnt um hóp tíu til fimmtán ára barna að grýta hús í Seljahverfi í Breiðholti. Innlent 10. september 2022 19:39
Lögregla skoðar verkferla þegar kemur að byrlunum: „Við verðum einfaldlega að taka þessu mjög alvarlega“ Lögregla vinnur að bættum verkferlum í málum þar sem grunur er um byrlun. Verkefnastjóri aðgerða gegn ofbeldis hjá ríkislögreglustjóra segir að taka þurfi fjölda frásagna af byrlun alvarlega og telur samfélagið og yfirvöld geta gert betur í málaflokknum. Á endanum liggi ábyrgðin þó alltaf hjá þeim sem byrla en ekki þolendum. Innlent 10. september 2022 12:38
Hljóp upp á borð, sparkaði í hluti og gekk berserksgang Lögregla handtók karlmann á tólfta tímanum í gærkvöldi en sá gekk berserksgang og var í mjög annarlegu ástandi fyrir utan veitingastað í miðborg Reykjavíkur. Innlent 10. september 2022 07:24
Leita upplýsinga vegna meints innbrots í Tunguskógi Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar innbrot sem á að hafa átt sér stað í Tunguskógi í Skutulsfirði einhvern tímann frá klukkan níu í gærkvöldi þar til klukkan ellefu í morgun. Innlent 9. september 2022 19:14
Reyndi að komast um borð í skemmtiferðaskip Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út þegar tilkynnt var um ölvaðan mann sem var til vandræða við Skarfabakka í Reykjavík, en maðurinn hafði reynt að komast um borð við skemmtiferðaskip sem þar lá við bryggju. Innlent 9. september 2022 07:42
Yfirheyrslum yfir feðgunum ekki lokið Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ekki lokið skýrslutöku yfir feðgum sem hafa stöðu sakbornings eftir árás á Blönduósi í síðasta mánuði þar sem tvennt lést. Lögreglustjórinn segir málið ekki fullrannsakað og enn sé verið að yfirheyra aðila sem tengjast því. Réttarkrufningu hinna látnu sé lokið. Innlent 8. september 2022 11:50
Tveir handteknir vegna innbrots Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt tvo einstaklinga vegna innbrots og þjófnaðar í hverfi 109 í Reykjavík. Innlent 8. september 2022 07:28
Handtekinn grunaður um að reyna að tæla börn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í kvöld einstakling sem grunaður er um að hafa verið að tæla börn í Árbæ. Innlent 7. september 2022 22:46
Engin svör fást um rannsókn Óshlíðarmálsins frá 1973 Lögreglan á Vestfjörðum segir ekki tímabært að svara einstökum spurningum eða bæta við upplýsingum umfram þær sem fram komu í lok maí um rannsókn embættisins á bílslysi sem varð á Óshlíðarvegi í september 1973. Innlent 7. september 2022 14:01
Tveir handteknir vegna hnífaslagsmála í nótt Lögregla handtók tvo í verslun í miðborg Reykjavíkur klukkan eitt í nótt en þeir höfðu átt í slagsmálum inni í versluninni. Báðir höfðu verið að beita hnífum gegn hvor öðrum. Annar var látinn gista fangageymslur sökum vímu en hinn látinn fara að lokinni skýrslutöku. Innlent 7. september 2022 07:03