Veikari texti en fyrir ári séu vonbrigði Ráðherra sem fór fyrir Íslands hönd á COP27-loftslagsráðstefnuna fagnar því að sögulegur samningur um loftslagshamfarasjóð hafi náðst á ráðstefnunni, einkum í ljósi þess að á tímabili hafi verið tvísýnt hvort samningur næðist yfir höfuð. Það séu þó vonbrigði að ekki hafi tekist að herða á orðalagi í samkomulagi ríkja heims um að draga úr losun. Erlent 20. nóvember 2022 22:18
Sprengisandur: Forsætisráðherra, neðanjarðarlest, loftslagsmál og HM í Katar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, verður gestur Kristjáns Kristjánssonar í Sprengisandi á Bylgjunni á eftir. Hlusta má á þáttinn í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 20. nóvember 2022 09:30
Teymi frá Veðurstofu metur hvort hættan sé liðin hjá Enn er óvíst hvenær hægt verður að senda mannskap til að hreinsa aurinn sem liggur yfir Grenivíkurveg eftir að stærðarinnar skriða féll á veginn í gærmorgun. Teymi sérfræðinga frá Veðurstofu Íslands er á vettvangi og reynir að meta hvort hættan sé liðin hjá. Innlent 18. nóvember 2022 11:50
Grænþvottur: Allir þurfa að vera fullvissir um að loforð standist Grænþvottur – Er allt vænt sem vel er grænt? er yfirskrift fundar sem IcelandSIF stendur fyrir næstkomandi mánudag, en IcelandSIF eru samtök fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, tryggingafélaga og aukaaðila sem hefur það hlutverk að efla þekkingu félagsaðila á aðferðarfræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga. Atvinnulíf 18. nóvember 2022 07:01
Óvænt útspil til að forða því að loftslagsviðræður sigli í strand Útlit er fyrir að loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi ljúki án umtalsverðs árangurs nú þegar aðeins einn dagur er eftir af henni. Samningamaður Evrópusambandsins reyndi að koma viðræðunum af stað með óvæntu útspili í kvöld. Erlent 17. nóvember 2022 23:37
Samlegðaráhrif af COP27 Nú stendur yfir tuttugasta og sjöunda Loftslagsráðstefna Sameinuðu Þjóðanna (COP27) í Egyptalandi þar sem saman eru komnir fulltrúar nær allra ríkja heims til þess að semja um næstu skrefin í því að takast á við neyðarástandið í loftslagsmálum. Þó svo að lítill árangur hafi enn sem komið er náðst við samningaborðið, þá eru stór skref tekin í baráttunni við loftslagsneyðina af þúsundum annarra þátttakenda sem hafa komið hingað í þessa strandborg við Rauðahaf til þess að takast á við neyðarástandið, hver á sinn máta. Skoðun 17. nóvember 2022 09:30
Hét nýjum degi fyrir Amasonfrumskóginn Luiz Inacio Lula da Silva, nýkjörinn forseti Brasilíu, hét því að nýr dagur væri runninn upp fyrir Amasonfrumskóginn og að hann ætlaði að taka á ólöglegu skógarhöggi þar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í dag. Erlent 16. nóvember 2022 20:03
Kynnti aukin framlög Íslands til alþjóðlegra loftslagsmál Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, ávarpaði loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi í dag og greindi meðal annars frá auknum fjárframlögum Íslands til alþjóðlegra loftslagsmála. Kynnti hún einnig sameiginlegt verkefni Íslands og Síle um verndun freðhvolfs jarðar. Innlent 15. nóvember 2022 17:41
Hitamet falla um Evrópu Hlýtt hefur verið í Evrópu á síðustu misserum, hæsti hiti í nóvembermánuði í Finnlandi frá upphafi mældist í Helsinki á dögunum og hafa mikil hlýindi verið í Bretlandi. Hiti hérlendis mælist yfir meðallagi miðað við árstíma. Erlent 15. nóvember 2022 11:20
Það vantar betri gögn um tengsl sjálfbærni og fjármála Með því að beina fjármagni í atvinnugreinar og fyrirtæki sem hafa jákvæð áhrif á loftslagsvandann eða a.m.k. síður neikvæð, getur fjármálageirinn stuðlað að miklum breytingum til hins betra. En er fjármálageirinn að standa sig? Skoðun 15. nóvember 2022 10:00
Veröld átta milljarða manna Jarðarbúar verða orðnir 8 milljarðar um miðjan nóvember, þökk sé vísindalegum framförum og bættri næringu, lýðheilsu og hreinlæti. En á meðan mannkyninu fjölgar setur sundrung í æ ríkari mæli mark sitt á heiminn. Skoðun 15. nóvember 2022 08:01
Stríðsreksturinn sagður valda stórfelldri losun Innrás Rússa í Úkraínu hefur leitt til gríðarlegrar losunar á gróðurhúsalofttegundum, að sögn fulltrúa Úkraínu á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Þeir segjast safna upplýsingum um „umhverfisglæpi“ Rússa. Erlent 14. nóvember 2022 23:20
Katrín aldrei í samskiptum við Gretu Thunberg Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gaf Björk Guðmundsdóttur, söngkonu, aldrei fyrirheit um að gefa út formlega yfirlýsingu um neyðarástand í loftslagsmálum, þvert á fullyrðingar Bjarkar. Þá var forsætisráðherra aldrei í samskiptum við Gretu Thunberg sem Björk sagði að hefði verið með í ráðum. Erlent 14. nóvember 2022 17:58
Það er í okkar höndum að skapa framtíðina Þjóðir heims hittast nú á loftslagsráðstefnu COP27 í Egyptalandi og halda vinnuþing um hvernig við getum tekist á við loftslagsvána. Auk samninganefndar Íslands sækja ráðstefnuna fulltrúar úr atvinnulífinu sem láta sér loftslagsmál varða enda verður atvinnulífið drifkraftur í því að móta og innleiða grænar og sjálfbærar lausnir til framtíðar. Skoðun 14. nóvember 2022 11:00
Ætla að hafa upp á metanstórlosendum með gervihnöttum Net gervihnatta á braut um jörðu verður notað til að finna uppsprettur metanlosunar með nýju kerfi sem Sameinuðu þjóðirnar ætla að taka í notkun á næsta ári. Rannsóknir benda til þess að metanlosun í heiminum sé mun meiri en ríki gefa upp í losunarbókhaldi sínu. Erlent 11. nóvember 2022 11:35
Íslandsvinur kallar sig nú Rainnfall Heat Wave Rising Sea Levels Wilson Íslandsvinurinn og gamanleikarinn Rainn Wilson tilkynnti í gær að hann hefði breytt nafni sínu í Rainnfall Heat Wave Rising Sea Levels Wilson á helstu samfélagsmiðlum. Það gerði hann í nafni baráttunnar gegn loftslagsbreytingum. Lífið 10. nóvember 2022 18:33
Bein útsending: Kolefnihlutleysi 2030, en hvernig? Loftslagsfundur Festu og Reykjavíkurborgar er haldinn í sjöunda sinn í dag klukkan 13:00 til 16:00 í hátíðarsal Háskóla Íslands. Fundurinn ber yfirskriftina „Kolefnishlutleysi 2030. Hvernig?“ Innlent 10. nóvember 2022 12:16
Mikil fjölgun hagsmunavarða jarðefnaeldsneytisfyrirtækja á COP27 Áætlað er að um sex hundruð hagsmunaverðir jarðefnaeldsneytisiðnaðarins séu viðstaddir COP27-loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi, um fjórðungi fleiri en tóku þátt í síðustu ráðstefnu í Glasgow. Erlent 10. nóvember 2022 07:45
Fyrirtæki ákærð og stjórnendur reknir fyrir að fegra upplýsingar „Fólk verður að átta sig á því að úti í hinum stóra heimi er verið að ákæra fyrirtæki og reka stjórnendur fyrir grænþvott, en grænþvottur kallast það þegar upplýsingar gefa til kynna að starfsemin sé grænni en hún er í raun. Þetta er staðan og þetta verður framtíðin ef fyrirtæki taka ekki alvarlega á sínum sjálfbærnimálum og fara að sýna raunverulegan árangur,“ segir Þorsteinn Kári Jónsson forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla hjá Marel. Atvinnulíf 10. nóvember 2022 07:01
Sviss útvistar loftslagsmarkmiðum til snauðari þjóða Stjórnvöld í Sviss hafa gert samninga við nokkur fátækari ríki um að þau dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda en að Sviss fái heiðurinn af samdrættinum. Sérfræðingar vara við því að samningar af þessu tagi gætu tafið loftslagsaðgerðir í auðugri ríkjum heims. Erlent 9. nóvember 2022 13:49
Móbergið mögulega jákvæð lausn fyrir heiminn en ekki íslenska bókhaldið Það kemur kannski á óvart að heyra hversu mikil rannsóknar- og nýsköpunarstarf fer fram hjá BM Vallá. Fyrirtækið vinnur að nokkrum nýsköpunarverkefnum þessi misserin, þar sem hver steypuuppskriftin á fætur annarrar er blönduð, prófuð, rannsökuð og mæld. Atvinnulíf 9. nóvember 2022 07:00
Vilja taka eins á jarðefnaeldsneyti og kjarnavopnum Hópur eyríkja leggur til að ríkis heims semji um að takmarka útbreiðslu jarðefnaeldsneytis líkt og gert var með kjarnavopn. Áætlað er að þróunarríki þurfi um tvær biljónir dollara á ári til að fjármagna orkuskipti og aðlögun og til að bæta tjón af völdum loftslagshamfara. Erlent 8. nóvember 2022 14:41
Deila um hver borgi brúsann fyrir loftslagstjón Kostnaðurinn við afleiðingar loftslagsbreytinga og hver á að bera hann er ofarlega á baugi á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi. Þróunarríki vilji aukið fé frá iðnríkjum til að hjálpa sér að aðlagast breyttum heimi og þá eru kröfur um að olíufyrirtæki sem græða á tá og fingri greiði fyrir tjón sem þau hafa valdið. Erlent 8. nóvember 2022 09:08
Óttast bakslag vegna orkukreppunnar „Það er mikið í húfi á þessari ráðstefnu,“ segir Egill Hermannsson, varaforseti Ungra umhverfissinna, sem situr nú loftslagsráðstefnuna COP27 fyrir hönd samtakanna. Innlent 7. nóvember 2022 14:48
Sjálfbærni: Tökum stökk í upplýsingagjöf en erum langt á eftir í öðru Niðurstöður viðamikillar úttektar KMPG á heimsvísu um sjálfbærni fyrirtækja sýnir að íslensk fyrirtæki hafa tekið risastórt stökk í upplýsingagjöf um sjálfbærni. Atvinnulíf 7. nóvember 2022 07:00
Ekki nóg að mæta á ráðstefnur heldur þurfi að framkvæma þegar heim er komið Ungmennafulltrúi Íslands á Loftslagsráðstefnunni COP27 segir ekki nóg að Ísland sæki ráðstefnur um málaflokkinn og lofi aðgerðum. Stjórnvöld þurfi að fylgja þeim aðgerðum eftir þegar heim er komið. Innlent 6. nóvember 2022 10:53
Villt dýr hrynja niður í sögulegum þurrki í Kenía Hundruð sebrahesta og fíla eru á meðal fleiri en þúsund villtra skepna sem hafa drepist í langvarandi þurrki í Kenía. Óttast er að þurrkurinn eigi eftir að leiða til hörmunga fyrir menn í Eþiópíu, Kenía og Sómalíu. Erlent 6. nóvember 2022 09:31
Stöðvuðu ferðir einkaþotna á Schiphol-flugvelli Hundruð loftslagsaðgerðarsinna réðust inn á stæði fyrir einkaflugvélar á Schiphol-flugvelli í Amsterdam og komu í veg fyrir að þær gætu farið í loftið í nokkrar klukkustundur í gær. Herlögregla var kvödd til og handtók fleiri en hundrað manns. Erlent 6. nóvember 2022 08:43
Of fáar gulrætur í loftslags- og sjálfbærnimálum Aðgerðir á sviði sjálfbærni geta verið kostnaðarsamar og umfangsmiklar og því getur verið krefjandi fyrir stjórnendur og stjórnir fyrirtækja að réttlæta dýrar fjárfestingar í tækni, innviðum, byggingum og breytingum á starfsemi sem bera með sér óljósan fjárhagslegan ávinning, að minnsta kosti til skemmri tíma. Því vaknar upp sú spurning hvort það sé ekki íslenska ríkinu í hag að bjóða upp „gulrætur“ í formi hvata til að koma á móts við áskoranir fyrirtækja á þessu sviði? Umræðan 5. nóvember 2022 10:31
Á fimmta tug fulltrúa Íslands á COP27 Fjörutíu og fjórir Íslendingar halda til Egyptalands í næstu viku til að sækja aðildarríkjafund Loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna (COP27). Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra fer fyrir hönd íslenskra stjórnvalda og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ávarpar viðburðinn í gegnum streymi. Innlent 5. nóvember 2022 08:00