Kópavogur

Kópavogur

Mannfjöldi: 40.041 (2025). Flatarmál: 110 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Mennirnir séu ís­lenskir og tengist fjöl­skyldu­böndum

Rannsókn lögreglu vegna andláts í Kópavogi í liðinni viku miðar vel að sögn E. Agnesar Eide, yfirlögregluþjóns rannsóknarsviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem verst allra fregna. Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna málsins. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Dósaþjófur hótaði að bíta hús­ráðanda

Húsráðandi á Seltjarnarnesi lenti illa í dósaþjófi sem ráfaði um garð sinn. Eftir að hafa tilkynnt konuna, sem vígbúin var dósum og öðru slíku, til lögreglu hélt húsráðandi út í garðinn og reyndi að ræða við konuna. Hún brást þá hin versta við og hótaði að bíta hann.

Innlent
Fréttamynd

Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjöl­býlis­húss

Meðal þess helsta á lista lögreglustöðvar eitt, sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi, var tilkynning um líkamsárás þar sem aðila var fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss. Þeir sem fleygðu honum fram af fundust skammt frá vettvangi og voru handteknir en árásarþoli var fluttur á slysadeild til aðhlynningar með minniháttar áverka. Málið er enn í rannsókn.

Innlent
Fréttamynd

Á sjúkra­hús eftir að hafa flogið af mótor­hjólinu

Mótorhjólaslys átti sér stað í Kópavogi seint í kvöld og var ökumaður fluttur slasaður á bráðamóttöku með sjúkrabíl eftir að hafa flogið af hjólinu. Hann var með meðvitund en atvikið átti sér stað á veginum við Kópavogslæk í átt að Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum

Umferðarteppa hefur myndast við ný gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Bæjarstjóri Kópavogs segir ástandið óásættanlegt en Vegagerðin bendir á að um bráðabirgðafyrirkomulag sé að ræða. Full reynsla fáist ekki fyrr en fleiri akreinar hafa verið opnaðar og ljósastýringin tekin í fulla notkun.

Innlent
Fréttamynd

Vilja reisa 140 stúdenta­í­búðir á Kársnesi

FS, Félagsstofnun stúdenta, hefur sent skipulagsfulltrúa Kópavogsbæjar erindi um uppbyggingu 144 stúdentaíbúða á Kársnesi. Um er að ræða einstaklingsíbúðir sem að meðaltali verða tuttugu og níu fermetrar að stærð. Í samtali við Heiði Önnu Helgadóttur framkvæmdastjóra FS kemur fram að stöðug vöntun sé á stúdentaíbúðum.

Innlent
Fréttamynd

„Við skírðum hana Halla Sykur­vatn Tómatsósu­dóttir“

Erfðaefni og maurar er á meðal þess sem nemendur fræðast um í Vísindaskóla Náttúrusafns Kópavogs og umsjónarmaður segir mikilvægt að kynna náttúruna fyrir börnum. Mauradrottningin er í sérstöku uppáhaldi og óhætt að segja að hún hafi fengið áhugavert nafn.

Innlent
Fréttamynd

Réðst að hópi drengja í sund­laug

Karlmaður réðst að hópi drengja í sundlaug í vesturhluta borgarinnar eftir að þeir renndu sér á eftir honum í rennibraut og lentu á manninum og ungum syni hans. Greint er frá málinu í dagbók lögreglu en ekki er tekið fram hvar atvikið átti sér stað.

Innlent