Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Stjórnvöld í Washington eru sögð hafa misreiknað sig verulega við skipulagningu aðgerðanna gegn Íran og ekki gert ráð fyrir því að þarlend yfirvöld myndu reynast viljug til að loka Hormuz-sundi. Erlent 13.3.2026 07:53
Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Ísraelsher hefur haldið árásum sínum á suðurhluta Líbanon áfram og hefur nú beint þeim tilmælum til íbúa á stóru svæði sem nær til nokkurra borga og fjölda þorpa að flýja heimili sín og halda norður. Erlent 13.3.2026 06:49
Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Íslendingar skipa sér í hóp með öfgaríkjum með þátttöku í málsókn Suður-Afríku gegn Ísrael að mati formanns Miðflokksins. Ákvörðunin muni óhjákvæmilega hafa afleiðingar í samskiptum við bandamenn Íslendinga. Utanríkisráðherra segir Ísland vera að standa með alþjóðalögum. Innlent 12.3.2026 19:00
Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Ráðist var á að minnsta kosti þrjú flutningaskip á og við Persaflóa í grennd við Hormuz-sund í nótt. Tvö þeirra urðu fyrir tiltölulega litlum skemmdum en áhöfn þess þriðja þurfti að yfirgefa skipið eftir að eldur kviknaði þar um borð. Svo virðist sem skipin hafi orðið fyrir eldflaugum en það hefur ekki verið staðfest. Erlent 11. mars 2026 08:52
Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlendir fjölmiðlar hafa birt sönnungargögn sem benda til þess að bandarískt flugskeyti hafi hæft stúlknaskóla í Íran. Að minnsta kosti 168 létust í árásinni, af þeim voru langflestir ungir nemendur við skólann. Bandaríkjaforseti segir Írani ábyrga. Erlent 10. mars 2026 22:40
Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að dagurinn í dag verði sá ákafasti hingað til, hvað varðar árásir Bandaríkjanna á Íran. Ráðamenn í Íran segjast ætla að berjast áfram en ráðgjafar Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, eru sagðir hvetja hann til að finna leið til að binda enda á stríðið. Erlent 10. mars 2026 13:39
Íranir enn vígreifir Byltingavörðurinn í Íran segir að Íranir muni ákveða hvenær átökum lýkur, ekki Bandaríkin eða Ísrael. Þá muni stjórnvöld þar í landi ekki leyfa „einum dropa“ af olíu að komast frá Mið-Austurlöndum ef árásir halda áfram. Erlent 10. mars 2026 06:42
Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Stjórnvöld í Tyrklandi, Katar, Barein, Sádi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum segjast hafa skotið niður íranskar eldflaugar í landhelgi þeirra í dag. Á sama tíma hafa Ísraelar og Bandaríkjamenn haldið linnulausum árásum á Íran áfram. Erlent 9. mars 2026 18:55
Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Stríð geisar í Mið-Austurlöndum, sem ógnar lífi og limum íbúa á svæðinu, orkubúskap heimsins og pólitískum- og efnahagslegum stöðugleika almennt. Þá er fátt eitt talið til. Tilefnislaust, segja sumir. Tímabært, segja aðrir. Eitt þykir víst; lagt var í styrjöldina án djúprar greiningar á mögulegum afleiðingum, sem gætu orðið gríðarlega umfangsmiklar og náð langt út fyrir Íran og nágrannaríkin. Enginn virðist vita hvert endamarkið er né hvenær því verður mögulega náð. Erlent 9. mars 2026 07:05
Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stríðið við Íran aðeins munu enda með sameiginlegri ákvörðun hans og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, um að láta af árásum á landið. Erlent 9. mars 2026 06:42
Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands ræddust við í síma í dag um málefni Mið-Austurlanda og samvinnu Breta og Bandaríkjamanna í stríðinu gegn Íran. Enn hefur ekki verið tilkynnt um hver sé nýr leiðtogi Íran. Erlent 8. mars 2026 16:26
Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei Donald Trump forseti Bandaríkjanna útilokar ekki að senda bandaríska hermenn til Mið-Austurlanda en segist hafa nánast gjöreytt írönsku stjórninni. Á sama tíma er greint frá því á Guardian að nokkuð víðtæk samstaða hafi náðst um eftirmann æðsta leiðtoga Írans, Ayatollah Ali Khamenei. Það sagði Ayatollah Mohammadmehdi Mirbaqeri, meðlimur sérfræðingaráðsins, í dag, að sögn fréttastofunnar Mehr. Erlent 8. mars 2026 08:23
Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Masoud Pezeshkian, forseti Íran, segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf „draum sem þeir ættu að taka með sér í gröfina“. Íranir og Ísraelar héldu loftárásum sínum áfram í nótt og í morgun. Erlent 7. mars 2026 08:12
Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Yfirvöld í Rússlandi deila upplýsingum með Írönum um staðsetningar Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum, byggingar og önnur möguleg skotmörk fyrir skotflaugar og sjálfsprengidróna Írana. Erlent 6. mars 2026 15:30
Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að ekkert samkomulag verði gert við klerkastjórnina í Íran. Alger og skilyrðislaus uppgjöf sé það eina sem komi til greina. Eftir að búið sé að velja nýja(n) ásættanlega(n) leiðtoga landsins, sem hann segist vilja fá að velja, geti uppbygging Íran hafist. Erlent 6. mars 2026 14:19
Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handboltamaðurinn Sveinbjörn Pétursson og eiginkona hans eru ekki á heimleið til Íslands frá Ísrael. Þau eru ekki í stöðu til að ferðast í flug sem þeim var boðið frá Jórdaníu eða Sádi-Arabíu, en myndu stökkva upp í næstu vél frá Ísrael. Þau eru þó að eigin sögn örugg, enda með neðanjarðarbyrgi til að skýla sér bæði heima fyrir og á æfingum. Handbolti 6. mars 2026 13:45
Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Rannsakendur Bandaríkjahers telja líklegt að Bandaríkjamenn beri ábyrgð á árás á stúlknaskóla í suðurhluta Íran í upphafi stríðsins þar. Rannsókn þeirra er ekki lokið en að minnsta kosti 175 dóu í árásinni og þar af mest skólastúlkur. Erlent 6. mars 2026 10:32
Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ísrael hafa varað við því að árásir á Íran muni aukast enn á næstu dögum. Ísraelsher sagðist í nótt hafa gert árásir á innviði klerkastjórnarinnar í Tehran og innviði Hezbollah í Beirút. Erlent 6. mars 2026 06:46
Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Ísraelsher segir að Íranir hafi snemma í morgun sent skæðadrífu flugskeyta á skotmörk víðsvegar um Ísrael en enn hafa engar fregnir borist af tjóni vegna þeirra. Erlent 5. mars 2026 06:49
Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Tyrkneska varnarmálaráðuneytið greindi frá því fyrr í dag að varnarkerfi Atlantshafsbandalagsins hefðu skotið niður eldflaug sem skotið var frá Íran og var á leið inn í lofthelgi Tyrklands. Sérfræðingur í varnarmálum segir líklega meira þurfa til að 5. grein Atlantshafssáttmálans verði virkjuð og að Ísland dragist inn í þau átök sem nú standa yfir. Erlent 4. mars 2026 14:50
Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Hernaðaryfirvöldum í Íran annars vegar og Bandaríkjunum hins vegar ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi. Íranir sögðust í gær hafa fulla stjórn á skipaumferð um sundið og að allir sem fær þar um ættu á hættu að verða fyrir árásum eldflauga eða dróna. Erlent 4. mars 2026 06:40
Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Fjármálaráðherra segir átök í Mið-Austurlöndum, með tilheyrandi hækkun olíuverðs, slæm tíðindi fyrir baráttuna við þráláta verðbólgu. Hann eigi í góðu samtali við aðila vinnumarkaðar og muni kynna aðgerðir á allra næstu dögum. Viðskipti innlent 3. mars 2026 12:08
Vaktin: Átökin breiðast enn út Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. Erlent 3. mars 2026 09:35
Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hefur nú breiðst út um öll Mið-Austurlönd, með gagnárásum Írana á herstöðvar og sendiráð Bandaríkjanna og skotmörk í Ísrael. Erlent 3. mars 2026 06:31