„Eitthvað ótrúlegasta mark sem ég hef orðið vitni af sem þjálfari“
Ólafur Kristjánsson segir að markið sem Guðmundur Pétursson skoraði fyrir Breiðablik gegn KR í Pepsi-deildinni árið 2010 sé eitt það ótrúlegasta sem hann hefur séð á ferlinum.
Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.
Ólafur Kristjánsson segir að markið sem Guðmundur Pétursson skoraði fyrir Breiðablik gegn KR í Pepsi-deildinni árið 2010 sé eitt það ótrúlegasta sem hann hefur séð á ferlinum.
Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar.
„Þetta voru mjög erfiðar 90 mínútur,“ sagði þjálfarinn Ólafur Kristjánsson þegar hann rifjaði upp lokahnykkinn í Íslandsmeistaratitli Breiðabliks í fótbolta karla árið 2010, þeim fyrsta og eina í sögu liðsins.
Það er nóg um að vera á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í dag.
Landsliðskonan og atvinnumaðurinn Anna Björk Kristjánsdóttir stefnir á að spila á Íslandi í sumar.
Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri Breiðabliks, minnir á að eins gleðilegt og það sé að skipulagt íþróttastarf barna hefjist aftur á mánudaginn þá verði fólk að fara varlega.
Enski miðjumaðurinn Louis Wardle kemur aftur til Magna á Grenivík í sumar og mun spila með liðinu í 1. deildinni í fótbolta.
Ólafur Kristjánsson þjálfari FH og fyrrum þjálfari meðal annars Breiðabliks segir að Þorvaldur Örlygsson sé afskaplega klókur þjálfari sem les leikinn vel. Hann segir einnig að Þorvaldur sé algjör refur.
Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH í dag og fyrrum þjálfari Breiðabliks, segir að hefði hann ekki stýrt Blikum til bikarmeistaratitils árið 2009 hefði hann verið rekinn hjá félaginu.
Logi Ólafsson segir að ekki hafi verið hátt risið á leikmannahópi KR er hann tók við liðinu í júlímánuði 2007. KR var í neðsta sæti deildarinnar er Logi tók við af liðinu af Teiti Þórðarsyni.
Möguleikum íslenskra íþróttafélaga til að sækja sér styrki myndi fjölga ef áfengis- og veðmálaauglýsingar yrðu heimilar á íslenskum íþróttaviðburðum.
Þrátt fyrir að vera ekki orðinn fjárráða er Valgeir Valgeirsson besti leikmaður HK. Þetta segir Hjörvar Hafliðason.
FH-ingar hefðu unnið fyrsta Íslandsmeistaratitilinn sinn árið 2001 en ekki þremur árum seinna ef Logi Ólafsson hefði getað notað Sigurð Jónsson á miðju liðsins. Þessu hélt Logi fram í Sportinu í kvöld á Stöð 2 Sport.
Hjörvar Hafliðason og Freyr Alexandersson hafa smá áhyggjur af leikmannamálum KA-liðsins og þá sérstaklega heilsuleysi liðsins þar sem margir leikmenn eru meiddir, að koma til baka úr meiðslum eða hafa verið óheppnir með meiðsli i gegnum tíðina.
Knattspyrnumaðurinn Aron Bjarnason er á leið úr atvinnumennsku í Ungverjalandi til Vals. Gestir Gumma Ben í Sportinu í kvöld segja slíkt vandmeðfarið í ljósi þess að leikmenn Vals hafi tekið á sig launalækkun vegna kórónuveirukrísunnar, en telja þó að það valdi ekki vandræðum.
„Þetta er gríðarlega gott verkfæri fyrir iðkendur, þjálfara og KSÍ,“ segja knattspyrnukonurnar Lára Hafliðadóttir og Katrín Ýr Friðgeirsdóttir sem í meistaranámi sínu í íþróttafræði við HR hafa kannað líkamlegt atgervi 15-16 ára knattspyrnufólks á Íslandi.
Stjórn KSÍ hefur samþykkt breytingar á reglum um knattspyrnuleiki yngstu flokka, þar sem spilað er í 5, 7 og 8 manna liðum. Innspörk eða knattrak koma í stað innkasta og heimilt verður að rekja boltann úr markspyrnu.
Hvaða þjálfari setur nítján marka mann í nýja stöðu í lokaumferðinni? Jú það gerði Ásgeir heitinn Elíasson í lokaumferðinni sumarið 1986.
Aron Bjarnason er sagður vera á heimleið þar sem hann mun leika með Val.
Logi Ólafsson ákvað að spara það að leyfa feðgunum Arnóri Guðjohnsen og Eiði Smára Guðjohnsen að spila saman í íslenska landsliðinu og síðan tóku örlögin í taumana.
Fjársterkir stuðningsmenn eru lífæð margra knattspyrnudeilda á Íslandi, sérstaklega á meðal bestu liðanna í Pepsi Max-deild karla.
Jóhann Már Helgason, höfundur skýrslu um fjárhagsstöðu íslenskra knattspyrnufélaga, ræddi í Sportinu í dag um hugmynd að nýju samningakerfi fyrir félögin sem ætlað er að gera launaumhverfið í íslenska boltanum heilbrigðara og auka gagnsæi.
„Það er ekki að koma króna ný inn á okkar reikning sem ekki er búið að ráðstafa,“ segir Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, varðandi styrki frá FIFA og UEFA. Styrkirnir berast sambandinu fyrr en ella vegna kórónuveirukrísunnar.
Þegar Valur var að leita að styrktaraðila til að kaupa nafnið á heimavelli félagsins bönkuðu tvö veðmálafyrirtæki upp á. Slíkum fyrirtækjum er óheimilt að auglýsa á íþróttaviðburðum á Íslandi.
Guðmundur Torfason sagði frá afdrifaríkum mistökum sem hann gerði sem ungur maður í landsliðsferð.
Knattspyrnusamband Íslands hafði gert ráð fyrir greiðslunum sem koma frá FIFA og UEFA.
Fyrrum landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Lárus Orri Sigurðsson, virðist vera orðinn þreyttur á því að hlusta á framkvæmdastjóra félaganna og segir þeim að halda sig fjarri sviðsljósinu.
Ítalskur knattspyrnumaður sem kom til reynslu hjá KA á sínum tíma tók því vægast sagt illa þegar félagið ákvað að bjóða honum ekki samning.
Guðmundur Torfason ræddi um tónlistarferilinn í hlaðvarpsþættinum Miðjunni. Hann lék á böllum með meðlimum Mezzoforte.
UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, hefur ákveðið að veita hverju aðildarsambandi sínu 4,3 milljónir evra eða jafnvirði rúmlega 680 milljóna íslenskra króna, vegna kórónuveirukrísunnar.