Góður dagur hjá Söndru: Á topp tíu í fyrsta sinn og búin að gera nýjan samning Landsliðsmarkvörðurinn Sandra Sigurðardóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Íslands- og bikarmeistara Vals. Íslenski boltinn 23. desember 2022 10:07
„Fór eins óheppilega og gat verið á fyrsta ári“ Víðir Sigurðsson hefur gefið út bókina um Íslenska knattspyrnu í fjörutíu ár og á dögunum kom út 42. bókin í bókaflokknum. Sú nýjasta sker sig úr meðal allra hinna og ekki bara með því að vera með fleiri blaðsíður. Íslenski boltinn 21. desember 2022 10:01
Besta kvenna hefst á risaleik og Besta karla á Kópavogsslag Íslandsmeistarar síðustu fimm ára, Valur og Breiðablik, mætast í 1. umferð Bestu deildar kvenna. Í Bestu deild karla hefst titilvörn Breiðabliks á Kópavogsslag gegn HK. Íslenski boltinn 20. desember 2022 13:13
Beitir leggur hanskana á hilluna Beitir Ólafsson, markvörður KR, er hættur í fótbolta. Hann er 36 ára. Íslenski boltinn 19. desember 2022 12:11
Joey Gibbs til Stjörnunnar Ástralski framherjinn Joey Gibbs er genginn í raðir Stjörnunnar frá Keflavík þar sem hann lék í þrjú ár. Íslenski boltinn 16. desember 2022 16:41
Laufabrauð fyrirliða Íslandsmeistaranna hefur slegið í gegn: Erfiðara en fótboltinn Höskuldur Gunnlaugsson er ekki bara Íslandsmeistari í fótbolta með Breiðabliki því hann er líka algjör meistari í laufabrauðsbakstri. Guðjón Guðmundsson heimsótti fyrirliði Blika og fékk að skoða laufabrauðsgerðina. Íslenski boltinn 16. desember 2022 08:01
KSÍ breytir leyfiskerfinu: Félög í efstu deild karla verða að vera með kvennalið Knattspyrnusamband Íslands hefur samþykkt breytingu á leyfiskerfi sambandsins sem hljóðar þannig að lið í Bestu deild karla verða að vera með meistaraflokkslið sem keppir á Íslandsmóti kvenna. Íslenski boltinn 15. desember 2022 18:35
Tiernan tekur sjötta sumarið í röð með Tindastól Bandaríska knattspyrnukonan Murielle Tiernan hefur samið um að koma aftur til Tindastóls næsta sumar. Íslenski boltinn 15. desember 2022 14:00
„Þetta var okkar leið og hún svínvirkaði“ Birkir Már Sævarsson var sóknarþenkjandi bakvörður áður en það komst í tísku. Hann reynir að taka hvern leik eins og hann kemur, sama hvort það sé gegn Leikni R. í Breiðholti eða Lionel Messi og félögum í Argentínu. Fótbolti 15. desember 2022 09:00
KA ekki enn fengið greitt fyrir Nökkva Þey Belgíska félagið Beerschot festi kaup á Nökkva Þey Þórissyni, leikmanni KA í Bestu deild karla í fótbolta, undir lok síðasta sumars. KA hefur hins vegar ekki enn fengið greitt fyrir leikmanninn. Íslenski boltinn 14. desember 2022 18:01
KR og Valur fengu sameiginlegan styrk Knattspyrnusamband Evrópu hefur veitt styrki til verkefna sem tengjast málefnum flóttafólks og hælisleitenda. Íslenski boltinn 14. desember 2022 15:31
Óskar Hrafn um Klæmint: Við höfum saknað þess að hafa hreinræktaða níu Færeyski markaskorarinn Klæmint Andrasson Olsen er orðinn leikmaður Íslandsmeistara Breiðabliks en hann kemur til Blika á eins árs lánsamningi og skiptir úr Betri deildinni í Færeyjum yfir í Bestu deildina á Íslandi. Íslenski boltinn 14. desember 2022 08:31
Mesti markahrókur Færeyja til Breiðabliks Íslandsmeistarar Breiðabliks hafa fengið færeyska framherjann Klæmint Andrasson Olsen á láni frá NSÍ Runavík. Lánssamningurinn er til eins árs. Íslenski boltinn 13. desember 2022 09:50
Kristinn Freyr til Vals í þriðja sinn Kristinn Freyr Sigurðsson er genginn í raðir Vals í þriðja sinn. Hann kemur til liðsins frá FH. Íslenski boltinn 9. desember 2022 13:34
Nýliðar HK sækja liðsstyrk til Eyja HK hefur sótt sinn fyrsta leikmann fyrir komandi tímabil í Bestu deild karla í fótbolta. Sá heitir Atli Hrafn Andrason og kemur frá ÍBV. Íslenski boltinn 7. desember 2022 19:00
Fleiri Færeyingar á leiðinni í Kópavog? Það er nóg um að vera á skrifstofu Íslandsmeistara Breiðabliks en félagið er nú orðað við færeyska landsliðsmanninn Klæmint Olsen sem leikur með NSÍ Runavík í heimalandinu. Íslenski boltinn 7. desember 2022 18:31
Ágúst snýr aftur í Smárann Ágúst Eðvald Hlynsson er genginn í raðir Breiðabliks frá Horsens í Danmörku. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Íslandsmeistarana. Íslenski boltinn 7. desember 2022 15:30
Breiðablik heldur áfram að sækja leikmenn Mikaela Nótt Pétursdóttir hefur samið við Breiðablik og mun leika með liðinu í Bestu deild kvenna á næstu leiktíð. Hún kemur frá Haukum en var í láni hjá Íslandsmeisturum Vals á síðustu leiktíð. Íslenski boltinn 5. desember 2022 22:30
Fjölskyldan flutt frá Eyjum og Andri Rúnar líklegast ekki með ÍBV Framherjinn Andri Rúnar Bjarnason hefur líklega spilað sinn síðasta leik með Eyjamönnum en fjölskylda hans er flutt á höfuðborgarsvæðið. Íslenski boltinn 5. desember 2022 15:13
Adam Örn í Fram Bakvörðurinn Adam Örn Arnarson hefur gert tveggja ára samning við Fram. Félagið greindi frá þessu í kvöld. Íslenski boltinn 2. desember 2022 22:00
Elfar Freyr skrifar undir tveggja ára samning á Hlíðarenda Valur hefur staðfest komu miðvarðarins Elfars Freys Helgasonar. Hann skrifar undir tveggja ára samning við liðið. Íslenski boltinn 2. desember 2022 19:35
Óskar Örn ekki búinn að ákveða hvort hann beygi til vinstri eða hægri á Reykjanesbrautinni Óskar Örn Hauksson er ekki búinn að semja við nýtt lið eftir að hann yfirgaf Stjörnuna að loknu tímabilinu í Bestu deildinni. Hann viðurkennir að tíminn hjá Stjörnunni hafi verið vonbrigði. Íslenski boltinn 2. desember 2022 07:00
Ekki meir Geir hjá ÍA Geir Þorsteinsson hættir sem framkvæmdastjóri ÍA á næstunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Íslenski boltinn 30. nóvember 2022 13:32
„Er bara 27 ára gamall og hungraður í að sýna öllum hér heima hvað ég get“ Adam Örn Arnarson spilaði í Bestu deild karla í sumar eftir að hafa spilað til fjölda ára sem atvinnumaður. Hann er án félags í dag en stefnir á að láta að sér kveða í sumar og sýna fólki hér á landi að hann sé enn sami leikmaður og spilaði við góðan orðstír í atvinnumennsku í öll þessi ár. Íslenski boltinn 30. nóvember 2022 09:00
Glenn tekur tvær knattspyrnukonur með sér úr Eyjum Keflavík hefur samið við tvo nýja erlenda leikmenn sem báðar fylgja nýjum þjálfara liðsins úr Eyjum. Íslenski boltinn 30. nóvember 2022 08:46
Ingunn úr Vesturbænum í Laugardalinn Ingunn Haraldsdóttir, fyrrverandi fyrirliði KR, er gengin í raðir Þróttar og mun leika með liðinu í Bestu deild kvenna á næstu leiktíð. Ingunn var samningslaus og því þarf Þróttur ekki að greiða fyrir miðvörðinn öfluga. Íslenski boltinn 28. nóvember 2022 19:30
Arnór Sveinn aftur heim Íslandsmeistarar Breiðabliks halda áfram að þétta raðirnar og hafa fengið Arnór Svein Aðalsteinsson aftur heim frá KR. Íslenski boltinn 25. nóvember 2022 15:59
Einar Karl til Grindavíkur Grindavík hefur fengið góðan liðsstyrk í Lengjudeild karla því Einar Karl Ingvarsson er genginn í raðir liðsins. Íslenski boltinn 25. nóvember 2022 14:29
Matthías vildi finna gleðina aftur í fótboltanum: Sóknarbolti Víkings heillaði Ein af stærstu félagsskiptunum eftir tímabilið var þegar Víkingar kræktu í reynsluboltann og fyrirliða FH-liðsins, Matthías Vilhjálmsson. Íslenski boltinn 25. nóvember 2022 08:01
Blikar kræktu í góðan bita úr Laugardal Breiðablik hefur fengið til sín hina nítján ára gömlu Andreu Rut Bjarnadóttur frá Þrótti R., sem þrátt fyrir ungan aldur var að ljúka sinni þriðju heilu leiktíð í efstu deild. Íslenski boltinn 24. nóvember 2022 09:46