Gagnrýni

Gagnrýni

Gagnrýni á kvikmyndum, bókmenntum, tónlist, leikhúsverkum og fleiru.

Fréttamynd

Teiknimyndapersónur í tilvistarkreppu

Árið 2003 í Reykjavík. Katla hefur gosið í tvö ár og öskufallið byrgir fólki sýn, bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Tvær persónur, Ingibjörg og Jón, fara út af sporinu vegna samskipta við aðrar tvær, Elísabetu og Láka, sem þykjast búa yfir leyndarmáli hins eina sanna koss, koss lífsins sem gefur andagift eða sturlun eftir því hvernig viðtakandinn bregst við. Allt endar með ósköpum, enginn gengst við ábyrgð og lífið heldur áfram, meira eða minna óbreytt. Koss lífsins reynist vera koss dauðans.

Gagnrýni
Fréttamynd

Völd og fórnarkostnaður

Mögnuð og vel gerð mynd um harðsnúna valdabaráttu og fórnarkostnað hennar. George Clooney verður sífellt betri leikstjóri. Myndir um masandi jakkalakka virðast henta honum einstaklega vel og það sem sumum kann að þykja óspennandi efniviður nær hann að matreiða á nokkuð ferskan og skemmtilegan máta.

Gagnrýni
Fréttamynd

Læsileg frásögn en brotakennd

Bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um íslenska kommúnista er læsileg frásögn, prýdd fjölda mynda og krydduð skemmtilegum arfsögnum. Kaflar eru stuttir og efnið streymir létt fram. Þetta er myndarleg bók og vel gerð, fáar ritvillur og útlit gott. Þetta er mikið verk, rúmlega 600 blaðsíður, og rækilegar eftirmálsgreinar, heimilda- og nafnaskrár.

Gagnrýni
Fréttamynd

Fágaður Felix

Þögul nóttin hefur yfir sér fágað yfirbragð. Það hefur greinilega verið vandað til verka. Á heildina litið þokkalegasta plata, en Felix gerir örugglega betur næst.

Gagnrýni
Fréttamynd

Melódískt sýrupopp

Kjarr er nýtt verkefni Kjartans Ólafssonar sem gerði góða hluti sem annar aðalmaður rafpoppsveitarinnar Ampop og var hann einnig meðlimur í Leaves. Á heildina litið er þetta ágætis plata frá hæfileikaríkum tónlistarmanni.

Gagnrýni
Fréttamynd

Magnaður rokkpakki

Ein af rokkplötum ársins. Sólstöfum hefur tekist að búa til magnaða stemningu á henni sem nær taki á manni strax í forspilinu í fyrsta laginu, Ljós í stormi, og heldur manni út plötuna.

Gagnrýni
Fréttamynd

Brosað út í annað

Tower Heist hefur allt sem til þarf nema brandarana. Leikarahópurinn er öflugur og Brett Ratner er enginn aukvisi þegar kemur að leikstjórn gamansamra spennumynda og hefði því átt að geta neglt þetta. Handritið er hins vegar ekki nógu fyndið og eftir stendur grínmynd þar sem grínið er af skornum skammti.

Gagnrýni
Fréttamynd

Hryllingur á hálendinu

Gríðarflott, frumlegt og hyldjúpt skáldverk. Frá fyrstu síðu Hálendisins liggur einhver heimsendastemning yfir öllu og andrúmsloftið er mettað beyg.

Gagnrýni
Fréttamynd

Gamlir jálkar í góðu stuði

Gylfi, Rúnar og Megas syngja saman fleiri slagara. Þrjár stjörnur er fín plata. Hún kemur manni í gott skap og virkar best spiluð á miklum styrk.

Gagnrýni
Fréttamynd

Langdregin vessaveisla

The Human Centipede 2 er langdregin og húmorslaus vessaveisla sem höfðar ekki einu sinni til markhóps síns, hryllingsmyndaáhugafólks.

Gagnrýni
Fréttamynd

Sögur í rými

Óhætt er að mæla með sýningu þeirra Hildar Bjarnadóttur og Guðjóns Ketilssonar. Persónuleg list beggja tengir aldagamlar hefðir og efnivið samtímalistum á frumlegan hátt. Einstaklega falleg og aðgengileg sýning þar sem form, litir, hefðir og saga fá að njóta sín.

Gagnrýni
Fréttamynd

Spilist hátt

Rauðhærði rokkriddarinn Dave Mustaine gefur nú út þrettándu hljóðversplötu sína ásamt hljómsveit sinni Megadeth.

Gagnrýni
Fréttamynd

Miklar væntingar til Hjálma

Með síðustu hljóðversskífu sinni treystu Hjálmar sig í sessi sem ein albesta hljómsveit landsins hin síðustu ár. Og, það sem meira er, ekki einungis sem eitthvert illskilgreinanlegt lopapeysuafbrigði heldur alvöru, dúndurfín reggísveit. Væntingar voru því miklar fyrir þessa nýju plötu, Óra, en svekkelsið að sama skapi töluvert. Krafturinn sem einkennt hefur Hjálma er víðsfjarri og svo virðist sem sköpunargleðin hafi lent í hremmingum.

Gagnrýni
Fréttamynd

Kraftaverkastelpan á kassanum

Bónusstelpan er prýðileg skáldsaga sem ef til vill ristir ekki sérlega djúpt, en státar af skemmtilegum persónum og byggir á frumlegri hugmynd.

Gagnrýni
Fréttamynd

Lágstemmd fegurð fiskanna

Yndislega fallegt verk. Tregafullt og kímið í senn. Eins og í fleiri bókum sem Gyrðir Elíasson velur sér til fylgilags, þá er hröð og æsileg atburðarás, mögnuð flækja og óvænt lausn í lokin, ekki til staðar í Hvernig ég kynntist fiskunum. Þessi saga er af öðrum toga og alveg stórskemmtileg á sinn lágstemmda máta.

Gagnrýni
Fréttamynd

Ég man, því er ég

Heillandi lýsing á uppvexti skálds, þar sem skynjun barnsins rennur í gegnum rökhugsun hins fullorðna manns og skapar dýpt og víddir sem vandfundnar eru í æviminningum.

Gagnrýni
Fréttamynd

Alltaf hægt að fá nýtt lán

Kirsuberjagarðurinn var frumsýndur í Borgarleikhúsinu á föstudaginn var. Þvílík leikgleði og þvílíkt listaverk. Frábærlega unnin sýning fyrir alla fjölskylduna.

Gagnrýni
Fréttamynd

Verðugur arftaki Dr. Jones

Uncharted 3 er flottari en svölustu hasarmyndir og heldur manni rígföstum frá upphafi til enda. Hreint frábær leikur sem ætti að vera skyldueign fyrir alla unnendur ævintýra og hasars.

Gagnrýni
Fréttamynd

Gefur frumsmíðinni ekkert eftir

Mesópótamía flott plata sem gefur frumsmíðinni ekkert eftir. Agnes Björt er skemmtileg söngkona sem gerir mikið fyrir sveitina, bæði á plötunni og með líflegri sviðsframkomu á tónleikum. Aðdáendur FM Belfast, Gus Gus og Bloodgroup ættu að kíkja á Sykur.

Gagnrýni
Fréttamynd

Flott framhald

Balkansveitin Orphic Oxtra rúllar plötu númer tvö upp með stæl. Kebab diskó er fín plata sem sýnir að það er mikill hugur í meðlimum Orphic Oxtra og þeir eru opnir fyrir því að taka nýja strauma inn í tónlistina. Það verður spennandi að fylgjast með því hvernig tónlist sveitarinnar þróast á næstu plötum.

Gagnrýni
Fréttamynd

Kambur í hrauni, kryppan á Heklu

Meistaraverkið og fleiri sögur er ekki gallalaus bók en ber þegar best lætur öll bestu höfundareinkenni Ólafs Gunnarssonar, skemmtir, vekur umhugsun og skilur eftir örlítinn hroll í sálinni. Fjórtán ólíkar smásögur frá sagnamanni af guðs náð. Grimmd, húmor og fullkomið vald á forminu.

Gagnrýni